Landsbókasafn
EN – English

Vika opins aðgangs – fræðslufundir

Alþjóðleg vika opins aðgangs er dagana 23. – 29. október 2017

Þema vikunnar: „Open in order to…“ sem útleggst á íslensku: „Opið til þess að…“.

Í tilefni vikunnar var kynning á stefnu Háskóla Íslands um opinn aðgang, ORCID auðkennum  og varðveislusafninu Opnum vísindum þriðjudag 24. október 2017, kl. 12:20 – 13:00 á Háskólatorgi í stofu 103.

Á Morgunkorni Upplýsingar (sjá upptöku), 
miðvikudag 25. október 2017 kl. 8:30-9:45 í fyrirlestrasal í Þjóðarbókhlöðu voru tvö erindi:

  • Anna Sigríður Guðnadóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur á heilbrigðisvísindabókasafni LSH og HÍ, hélt erindið „OpenAIRE verkefni Evrópusambandisins, hvað gengur það út á?“ 
  • Sigurgeir Finnsson, bókasafns- og upplýsingafræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, hélt erindið „Opinn aðgangur, hvað er það?“ Sjá glærur Sigurgeirs