Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er þjóðbókasafn Íslands og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið safnar öllum íslenskum gögnum, varðveitir þau, skráir og flokkar. Safnið sinnir þjónustu við kennslu og rannsóknarstarfsemi Háskóla Íslands og heldur uppi bókasafns- og upplýsingaþjónustu í þágu atvinnuvega, stjórnsýslu og rannsókna á Íslandi. Í Þjóðarbókhlöðu býður safnið upp á góða vinnuaðstöðu þar sem er greiður aðgangur að safnkostinum.
Lög og samningar
Í lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nr. 142/2011 er mælt fyrir um hlutverk safnsins.
Stjórn og skipurit
Landsbókavörður og sviðsstjórar eiga sæti í framkvæmdaráði. Ráðið er vettvangur æðstu stjórnenda safnsins til að fara yfir málefni þess og ræða þær ákvarðanir sem þarf að taka.
Velkomin í Þjóðarbókhlöðuna
Myndband um þjónustu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðunni. Höfundar myndbandsins eru Áslaug Tóka Gunnlaugadóttir og Atli Týr Ægisson, nemendur í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands.