Landsbókasafn
EN – English

Þjóðarbókhlaðan

Í Þjóðarbókhlöðunni er fyrsta flokks aðstaða til náms og rannsókna og greiður aðgangur að safnkosti, bæði rafrænum og á prenti. Starfsemi safnsins er á fjórum hæðum. Hér eru upplýsingar um starfsemi, aðstöðu og safnkost á hverri hæð.

1. hæð

Á fyrstu hæð eru Íslandssafn, Handritasafn, Kvennasögusafn og lessalur

2. hæð

Á annarri hæð eru þjónustuborð, útlána- og upplýsingaþjónusta og vinnuaðstaða fyrir hópa.

3. hæð

Á þriðju hæð eru tímarit, námsbókasafn, lokaverkefni, afgreiðsla ritvers HÍ og rými til að vinna í næði.

4. hæð

Á fjórðu hæð eru Hljóð- og myndsafn, Tónlistarsafn, Leikminjasafn og Miðstöð munnlegrar sögu. Þar má finna tónlist og kvikmyndir, auk rýmis til að vinna í næði.