Landsbókasafn
EN – English

Bókagjöf Hermanns Kjartanssonar stærðfræðings

Sýning í Þjóðarbókhlöðu 08.09.2023 – 29.10.2023

Hermann Kjartansson stærðfræðingur hefur gefið Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni höfðinglega gjöf bóka um stærðfræði auk nokkurra bóka um skyld efni, stærðfræðilega eðlisfræði, stjarn­eðlisfræði og tölvunarfræði. Allar bækurnar í gjöfinni, um það bil 100 talsins, eru nýlegar og vel með farnar. Bróðurparturinn er ætlaður nemendum í framhaldsnámi og öðrum sem stunda rannsóknir í stærðfræði og skyldum fögum. Bókum sem ætlaðar eru nemendum í grunnnámi í stærðfræði verður stillt upp í stærðfræðihillum safnsins, en kennslubókum fyrir framhaldsnema og rannsóknaritum verður stillt upp í safndeildinni í Tæknigarði.

Bæklingur