Markmið samstarfssamningsins er þrískipt:
Koma skal í réttan farveg skylduskilum til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á útgefnu efni tónskálda, sem Tónlistarmiðstöð hefur milligöngu um að merkja með ISMN-númerum, og ákveða með hvaða hætti aðgengi að því efni skuli háttað.
Tryggja skal áframhaldandi varðveislu á tónlistarhandritum Tónlistarmiðstöðvar – frumgögnum – í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Afhenda Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni til varðveislu tónlistarhandrit sem eru í vörslu Tónlistarmiðstöðvar og úr höfundarétti.
Mikilvægi samstarfsins:
Þessi samningur leggur grunn að varðveislu íslenskra tónverka. Hann tryggir ekki aðeins að þessi verk glatist ekki heldur einnig að þau verði aðgengileg til rannsókna í framtíðinni. Með þessu er verið að styrkja hlutverk bæði Landsbókasafns og Tónlistarmiðstöðvar sem lykilstofnana í varðveislu og miðlun íslenskrar menningar.
