Landsbókasafn
EN – English

Maístjarnan

Sýning í Þjóðarbókhlöðu 30,04,2025 – 30,09,2025

Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar voru kynntar í Gunnarshúsi miðvikudaginn 30. apríl 2025. Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2024, alls 62, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru gjaldgengar.

Tilnefndar bækur eru, í stafrófsröð:

Aðlögun – Þórdís Gísladóttir. Útgefandi: Benedikt.

Ég hugsa mig  – Anton Helgi Jónsson. Útgefandi: Mál og menning.

Flaumgosar – Sigurbjörg Þrastardóttir. Útgefandi: JPV.

Geðhrærivélar – Árni Jakob Larsson. Útgefandi: Sæmundur.

Ógeðslegir hlutir – Sunneva Kristín Sigurðardóttir. Útgefandi Pirrandi útgáfa.

Þar sem dragsúgurinn er hvítur refur – Eyþór Árnason. Útgefandi: Bjartur – Veröld.

Ljóðaverðlaunin Maístjarnan eru einu verðlaunin á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Tilnefndar bækur eru til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 14. maí.

Dómnefnd skipa Sölvi Björn Sigurðsson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Kamilla Einarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Hér er listi yfir allar nýjar útgefnar ljóðabækur 2024.