Landsbókasafn
EN – English

Við erum margar

Sýning í Þjóðarbókhlöðu 17.10.2025 – 09.03.2026

VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins.

Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili fyrstu forstöðukonu þess, Önnu Sigurðardóttur, í blokkaríbúð hennar við Hjarðarhaga. Stofnun safnsins var fyrsti íslenski viðburðurinn á alþjóðlegu kvennaári Sameinuðu þjóðanna en árið 2025 hefur einnig verið útnefnt kvennaár.

Markmið Kvennasögusafns er að safna, skrá og varðveita heimildir um sögu kvenna og stuðla að rannsóknum á kvennasögu. Starfsemi safnsins byggir á þeirri sannfæringu að líf húsmóðurinnar sem sýður fisk í potti sé jafnórjúfanlegur hluti sögunnar og stjórnmálakarlsins sem stígur í pontu á Alþingi.

Frá árinu 1996 hefur Kvennasögusafn starfað innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðu en það var draumur Önnu Sigurðardóttur frá upphafi – enda er kvennasagan hluti af þjóðarsögunni.

Sýningarskrá