Landsbókasafn
EN – English

Rafræn vöktun

Fræðsla um notkun eftirlitsmyndavéla hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (Lbs-Hbs)

Tilgangur

Húsnæði Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns (Lbs-Hbs) og lóðir eru vöktuð með rafrænum hætti og í safninu eru merkingar sem upplýsa starfsfólk og gesti um að rafræn vöktun sé í gangi. Tilgangurinn með vöktuninni er að tryggja öryggi starfsfólks, gesta, safnkosts og eigna.

Heimild til vinnslu

Rafræn vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Lbs-Hbs sbr. f. lið 1. mgr. 6. gr. persónuverndarreglugerðar ESB 2016/679. Þeir hagsmunir snúa að verndun gagna sem safnið varðveitir lögum samkvæmt og jafnframt að því að tryggja öryggi gesta og starfsfólks.

Tegundir persónuupplýsinga

Við vöktunina verður til myndefni þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur

Myndvöktun og öryggisgæsla fer fram í hússtjórn safnsins. Aðeins hússtjóri hefur aðgang að vistuðum skrám úr eftirlitsmyndavélum. Efni sem verður til við vöktunina verður ekki skoðað né afhent öðrum nema á grundvelli heimildar í 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamála. Ef til þess kemur að skoða þurfi efnið er unnið eftir verklagsreglu um öryggismyndavélar í Handbók starfsfólks.

Varðveislutími myndefnis

Myndefni úr öryggismyndavélum er ekki varðveitt lengur en í 30 daga nema í undantekningartilfellum. Dæmi: „Til þess að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.“ Að öðru leyti er farið að reglum um rafræna vöktun nr. 50/2023.

Réttindi hinna skráðu

Þau sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að skoða myndefni þar sem þau sjást. Þau eiga einnig rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttinn samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd

Þau sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þau telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Persónuverndar https://www.personuvernd.is/.

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Lbs-Hbs)
Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík
Sími 5255600
landsbokasafn (hjá) landsbokasafn.is

Persónuverndarfulltrúi

Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Lbs-Hbs á landsbokasafn (hjá) landsbokasafn.is

Tilvísun

Persónuverndarstefna

Texta þessa skjals skal birta á ytri vef safnsins á slóðinni: oryggi.landsbokasafn.is

Tilvísun í eldra gæðakerfi

Rafræn vöktun – Fræðsla um notkun eftirlitsmyndavéla hjá Lbs-Hbs – Skjalanúmer: LB-0041 – Útgáfa: 2 – Útgáfudagur: 22.11.2023