-
Upplýsingar um OpenAccess
Upplýsingasíðu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um opinn aðgang, openaccess.is, hefur verið lokað tímabundið. Fræðast má um opinn aðgang á eftirfarandi síðum: http://www.opinnadgangur.is (Íslensk síða um opinn aðgang) http://www.open-access.dk/ (Dönsk síða um opinn aðgang) http://www.kb.se/openaccess/ (Sænsk síða um opinn aðgang) http://www.openaccess.no/ (Norsk síða um opinn aðgang) http://www.openaccess.fi/info/english.html (Finnsk síða um opinn aðgang) http://creativecommons.org/ http://www.earlham.edu/~peters/fos/oawritings.htm (Greinar um…
-
Prufuaðgangur að rafbókum UPO
Í október er prufuaðgangur að University Publishing Online sem veitir aðgang að rafrænum bókum frá Cambridge útgáfunni og fleiri þekktum fræðiritaútgáfum. Bækurnar eru á sviðum hug- og félagsvísinda ásamt raunvísinda, tækni og heilbrigðisvísinda. Aðgangurinn er á háskólasvæðinu og tengillinn er http://ebooks.cambridge.org/aaa/home.jsf Notið þetta einstæða tækifæri
-
Nordill 2012
Norræn ráðstefna um millisafnalán verður haldin á Hótel Nordica dagana 3.-5. október. Síðastliðin 20 ár hafa norrænir bókaverðir fundað annað hvert ár um samnýtingu og uppbyggingu safnkosts. Yfirskrift ráðstefnunnar er Resource Sharing, Reference and Collection Management. Móttaka verður fyrir þátttakendur hér í safninu miðvikudaginn 3. október kl. 18-19.
-
Bestu jóla- og nýárskveðjur
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna. Jólasveinar eiga sér fornar rætur í íslenskri þjóðtrú. Þeir eru nú oftast taldir vera 13. Þeir eru af tröllakyni, synir óvættanna Grýlu og Leppalúða og eiga heima í óbyggðum. Frásagnir af jólasveinum setja svip á íslenskt jólahald…
-
Bókasafnsdagur 16. sept 2008
BÓKASAFNSDAGUR (opið hús) verður í Þjóðarbókhlöðu, Bókasafni Háskóla Íslands, þriðjudaginn 16. september kl. 13:00 -16:00. Við bjóðum upp á stuttar kynnisferðir um húsið á heila og hálfa tímanum og Gegnir, Tímaritaskrá A-Ö og valin gagnasöfn verða kynnt í fyrirlestrarsal á 2. hæð. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í bókasafnið! Eðaltoppur í boði Vífilfells.