-
Yfirlit yfir þjóðsagnahandrit Jóns Árnasonar
Fimmtudaginn 31. janúar kl. 10:30 flytur Bragi Þ. Ólafsson fyrirlestur um þjóðsagnahandrit Jóns Árnasonar í fyrirlestrasal safnsins en nú stendur yfir sýning í tilefni af því að liðin eru 150 ár frá því að fyrra bindi Íslenskra þjóðsagna og ævintýra kom út Þjóðsögur Jóns Árnasonar hafa lifað með þjóðinni í 150 ár og hafa þær fest…
-
Vísindi og vélar í Evrópubókasafninu
Á vef Evrópubókasafnsins er að finna nýja vefsýningu sem dregur fram stafrænar endurgerðir efnis sem tengist framþróun vísindanna á 19. og 20. öld. Þar getur að líta meðal annars bréfaskipti við Albert Einstein, kvikmyndir frá skurðstofu á 4. áratug 20. aldar, elstu röntgenmyndirnar sem Wilhelm Conrad Röntgen tók, myndir af Marie og Pierre Curie og…
-
Rafbækur frá Springer í Landsaðgangi
Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum – hvar.is samdi nýlega við Springer forlagið um kaup á nýjum rafbókum. Þegar er kominn aðgangur að um 1000 titlum og um 2000 munu bætast við á árinu. Bækurnar eru á eftirfarandi fræðasviðum, Humanities, Social Science & Law; Business and Economics; Computer Science; Biomedical and Life Science; Earth and Environmental…
-
Punktur punktur komma strik á handritasafni
Í lok nóvember afhenti Pétur Gunnarsson rithöfundur handrit og drög að skáldsögu sinni, Punktur punktur komma strik. Sagan kom fyrst út árið 1976 og náði strax miklum vinsældum og var t.d. tekin til kennslu í skólum landsins ári síðar. Í henni er fylgst með uppvaxtarárum söguhetjunnar, Andra Haraldssonar, og þeim fylgt eftir í síðari verkum…
-
Thorbjørn Egner í 100 ár
Miðvikudaginn 12. desember 2012 kl 15.30 verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu Thorbjørns Egner. Ávörp flytja: Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður og dr. Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leikminjasafns Íslands. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Þjóðleikhússins, Leikminjasafns Íslands,…
-
Bókbindarasafn afhent
Þann 6. desember s.l. afhenti Félag bókagerðarmanna Lbs-Hbs svokallað Bókbindarasafn til eignar. Í því eru bækur sem eru handbundnar af hinum ýmsu bókbindurum og merktar þeim. Auk þess fylgir aukaefni s.s. band frá þekktum bókbandsstofnum og fagbækur. Með safninu fylgir einföld skrá en það verður skráð í Gegni. Alls er um að ræða 195 bækur…
-
Nýir vefir
Þann 30. nóvember síðastliðinn, í tilefni af 18 ára afmæli safnsins, voru tveir nýir vefir formlega opnaðir: Söguleg Íslandskort og Þýðingar Íslendingasagna. Sá fyrrnefndi er raunar elsta verkefni safnsins á sviði stafrænnar endurgerðar og hófst árið 1996 en hefur nú verið breytt töluvert með nýju viðmóti og nýjum stafrænum myndum af kortunum sem þar er…
-
Dagur íslenskrar tungu 2012
Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, vekjum við athygli á að ýmsar upplýsingar á vefnum Jonashallgrimsson.is hafa verið uppfærðar. Þar á meðal eru skrár um rit Jónasar og nýjar útgáfur rita eftir hann. Á fréttasíðu vefjarins má finna upplýsingar um ný rit og viðburði í ýmsum stofnunum.
-
Nýtt vefviðmót Springer Link
Vefur útgáfufyrirtækisins Springer hefur fengið nýtt viðmót en þar eru tæplega 1400 rafræn tímarit opin á landsvísu. Eigið svæði notenda „MySpringerLink“ í eldra viðmóti flyst EKKI sjálfkrafa í nýja viðmótið og er þeim sem eiga reikning bent á að gera sínar ráðstafanir með gögn sem þar eru. Hægt er að stofna reikning á nýja viðmótinu undir „Sign up…
-
Heimsókn fyrrum forstöðumanna ríkisstofnana
Miðvikudaginn 7. nóvember heimsótti safnið hópur fyrrverandi forstöðumanna ríkisstofnana og kynnti sér starfsemina. Hópurinn heimsótti Tón- og myndsafn, Íslandssafn, Handritasafn og kynnti sér stafræna endurgerð í Myndastofu.
-
Prufuaðgangur að rafrænu efni o.fl.
Minnum á opinn prufuaðgang fyrir notendur á háskólanetinu að eftirfarandi gögnum: Cambridge Books Online. Aðgangur að rafbókum frá Cambridge og fleiri þekktum fræðiritaútgáfum. Bækurnar eru á sviðum hug- og félagsvísinda ásamt raunvísindum, tækni og heilbrigðisvísindum. Aðganginum lýkur 9. nóvember nk. Handbook of Translation Studies. Ýmis fróðleikur um þýðingar og túlkun. Gagnlegt rit fyrir fræðimenn, nemendur…
-
Berlínaryfirlýsingin um opinn aðgang
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur undirritað Berlínaryfirlýsinguna um opinn aðgang. Þar með staðfestir safnið stefnu sína varðandi opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum sem unnar eru fyrir opinbert fé. Fræðsla um Berlínarsamþykktina Heildarlisti yfir þá sem hafa skrifað undir samþykktina