Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Um frelsið eftir John Stuart Mill
Bókin Um frelsið, eftir John Stuart Mill (1806-1873), er eitt af grundvallarritum vestrænnar lýðræðishugsunar en Mill var einn áhrifamesti heimspekingur og hagfræðingur Breta. Bók hans Principles of Political Economy (1848) tók við af Auðlegð þjóðanna, eftir Adam Smith, sem mikilvægasta kennslubók hagfræðinnar og var það í hálfa öld. Þótt Mill væri frjálshyggjumaður var hann gagnrýninn…
-
Ímynd Íslendinga ógnað
Árið 1607 kom út í Leyden í Hollandi bókin Islandia eftir Dithmar Blefken, sem fjallaði um Ísland og Íslendinga. Sú mynd sem þar var dregin upp var ófögur og var mörgum brugðið. Landsmenn hafa löngum verið viðkvæmir fyrir því hvaða augum útlendingar líta þá. Í byrjun 17. aldar áttu Íslendingar því við „ímyndarvanda“ að etja…
-
1. september 1930
Talkvikmyndir sýndar í fyrsta sinn á Íslandi 30. október 1909 er sagt frá því í dagblaðinu Ísafold að kvöldið áður hafi verið haldin „reynslusýning“ í nýju kvikmyndahúsi í Reykjavík og var „boðið til fjölda bæjarbúa, svo að Bárubúð var troðfull … Ein landlagsmynd var sýnd frá Palermó á Sikiley. Af þesskonar myndum ætti kvikmyndaleikhúsin endilega…
-
Jón Ólafsson Indíafari
Frægasta ferðasagan Jón Ólafsson, sem nefndur var „Indíafari“ (4. nóvember 1593 – 3. maí 1679) var bóndasonur frá Svarthamri í Álftafirði á Vestfjörðum. Þegar hann var tuttugu og tveggja ára lagði hann af stað í ferðalag sem stóð í ellefu ár. Löngu seinna skrifaði hann einstæða ferðabók, Æfisögu Jóns Ólafssonar Indíafara, og var þá orðinn…
-
Bók Ólafs Egilssonar um Tyrkjaránið
Tyrkjaránið 1627 – samtímalýsing séra Ólafs Egilssonar Arabískir víkingar frá Alsír sóttu Íslendinga heim sumarið 1627 en Alsír tilheyrði þá ríki Tyrkjasoldáns. Hingað til lands komu fjögur skip í þeim erindum að ræna fjármunum og fólki í þrældóm. Alls fönguðu víkingarnir 370 manns og drápu um 35-45 landsmenn. Einn þeirra var sr. Jón Þorsteinsson, sálmaskáld…
-
Auglýsingar Jörundar hundadagakonungs
Jörundur hundadagakonungur undirbýr lýðveldisstofnun í júní 1809 Jörgen Jörgensen (1780-1841), sem kallaður var hundadagakonungur, kom til Íslands í júní 1809. Englendingar, undir forystu Jörgens, handtóku Trampe stiftamtmann þann 25. júní í kjölfarið á deilum Englendinga og Dana um samning þeirra um verslun enskra þegna hér á landi. Sama dag birti Jörgen yfirlýsingu í ellefu greinum…
-
Höfuðrit hagfræðinnar gegn kreppu
Í kjölfar heimskreppunnar á fjórða áratug síðustu aldar var atvinnuleysi mikið á Vesturlöndum. Milljónir manna gengu atvinnulausar og örbirgð var mikil. Stjórnvöld gripu víða til aðgerða til að skapa atvinnu en forseti Bandaríkjanna, Franklin D. Roosevelt, var þar fremstur í flokki. Hann innleiddi nýja efnahagsstefnu, „nýja sátt“ (New Deal), sem fólst í miklum framkvæmdum á…
-
Leiðbeiningar fyrir Vesturfara
Um þessar mundir ríkir óáran og efnahagsþrengingar á Íslandi og óttast margir að landflótti bresti á. Ýmsir vilja flytja austur um haf en aðrir vestur. Á seinni hluta 19. aldar og fram yfir aldamótin fluttu margir vestur um haf og settust að í Kanada og Bandaríkjunum. Kanadastjórn sendi „agenta“ til Íslands til að aðstoða og…
-
Drottning Lovísa, með brjóstskildi
Fyrir nokkru komu óvenjulegir prentgripir í ljós í Landsbókasafni er forvörður safnsins tók til handargagns nokkurs konar veski úr skinni sem talið er hafa ratað í safnið fyrir löngu sem umbúðir utan um handrit. Handritið hefur verið fjarlægt á sínum tíma og því fenginn annar umbúnaður en þessu ómerkta „bandi“ haldið til haga. Við nánari…