Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-
Kvennasmiðja
24. október 1985 héldu konur útifundi til að vekja athygli á stöðu sinni. Talið er að um 18 þúsund manns hafi sótt fund á Lækjartorgi, aðallega konur. Þar bar mjög á kröfum dagsins um réttlát laun fyrir vinnu kvenna. Árið 1985 var lokaár kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna og margir aðrir viðburðir voru skipulagðir af hálfu kvennasamtaka.…
-
Menntaskólinn opnar dyr
Árið 1904 fengu Íslendingar heimastjórn með sérstakan ráðherra. Konungur valdi Hannes Hafstein sem ráðherra. Eitt fyrsta embættisverk hans var að breyta reglugerðinni um Hinn lærða skóla á þann veg að hann opnaði dyr sínar stúlkum og hét jafnframt þar eftir Hinn almenni menntaskóli. Nýja reglugerðin var dagsett 9. september 1904 og sagði þar í 3.…
-
Konur hefja á loft sérstakan fána Íslendinga
Þann 2. ágúst 1897 var haldin þjóðminningarhátíð í Reykjavík. Slík hátíð var haldin fyrst árið 1875 til að fagna stjórnarskránni og hafði þessi siður haldist með nokkrum hléum (enn eimir eftir af siðnum í formi þjóðhátíðar Vestmannaeyinga). Meðal atriða var skrúðganga frá Lækjartorgi inn að Rauðarártúni þar sem hátíðin var haldin. Félagskonur Hins íslenska kvenfélags…
-
Drög að jarðeldasögu Íslands
Frá landnámi hefur fjórum sinnum gosið í Eyjafjallajökli. Fyrst um 920, síðan 1612, 1821 og nú 2010. Í handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er varðveitt lýsing á eldgosinu 1821. Hana er að finna í handritinu ÍB 11 fol, en það er drög að jarðeldasögu Íslands sem Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðingur tók saman á árunum…
-
Kosningaréttur kvenna og Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Þann 19. júní verða liðin 95 ár frá því að Kristján konungur X skrifaði undir lög frá Alþingi þess efnis að íslenskar konur ættu kosningarétt til Alþingis en karlmenn höfðu nokkuð almennt haft þann rétt frá árinu 1875. Að vísu settu íslenskir þingmenn konum í landinu þau skilyrði að þær yrðu að vera orðnar fertugar…
-
Íslandssaga handa börnum og skólamaðurinn Jónas frá Hriflu
Í ár eru 125 ár liðin frá fæðingu Jónasar Jónssonar frá Hriflu en hann fæddist 1. maí 1885. Hann var einn umdeildasti og virtasti stjórnmálamaður Íslendinga á síðustu öld. Jónas lét til sín taka á fleiri sviðum og var mikill frömuður í menntamálum. Hann var boðberi róttækra hugmynda í kennslufræðum sem hann lýsti í grein…
-
Bréf Áslaugar Torfadóttur til föður síns, Torfa Bjarnasonar í Ólafsdal
Sendibréf Áslaugar Torfadóttur til föður síns, Torfa Bjarnasonar, eru kjörgripur aprílmánaðar. Alls er hér um 50 sendibréf að ræða sem Áslaug sendi á árunum 1887-1914. Áslaug Torfadóttir þegar hún var kennari í Ögri Áslaug Torfadóttir fæddist 17. maí 1869 og var hún dóttir hjónanna Guðlaugar Zakaríasdóttur (1845-1937) og Torfa Bjarnasonar (1838-1915). Áslaug ólst upp að…
-
Aldrei að víkja
Árið 1909 gaf Vestur-Íslendingurinn A. J. Johnson (Andrés Jónsson í Ásbúð) út röð póstkorta í Winnipeg sem tileinkuð voru þekktum Íslendingum. Á kortunum eru ljósmyndir af viðkomandi mönnum en í bakgrunninn er bláhvíti fáninn og skjaldarmerki með fálka á bláum grunni. Fáninn og skjaldarmerkið voru upprunalega hugmyndir Einars Benediktssonar skálds um fullveldistákn Íslands. Einnig voru…
-
Fyrsta íslenska skáldsagan
Piltur og stúlka, dálítil frásaga eftir Jón Þórðarson Thoroddsen er talin vera fyrsta íslenska skáldsagan. Sagan er rómantísk ástarsaga en aðalsögupersónurnar eru Indriði og Sigríður. Sagan hefst á Héraði á austurlandi en færist síðan til Reykjavíkur. Í henni er sveitalífið rómað en dregin er upp dökk mynd af mannlífinu í Reykjavík. Jón skrifaði skáldsögu sína…
-
Barátta góðs og ills í barnabók eftir John Ruskin
Kóngurinn í Gullá er barnabók sem skrifuð var í þjóðsagnastíl. Í henni segir frá dal einum þar sem menn lifa góðu og hamingjusömu lífi. Í sögunni segir frá þremur bræðrum. Tveir þeirra eru afar sjálfselskir og grimmir og greiða ógjarnan sína tíund til samfélagsins. Illska þeirra verður til þess að hörmungar ríða yfir hinn frjósama…
-
Aldarsaga Landsbókasafns Íslands 1818-1918
Jón Jacobson (1860-1925) landsbókavörður samdi í byrjun síðustu aldar minningarrit um aldarsögu Landsbókasafns Íslands 1818-1918, mikið verk er kom út árið 1920. Jón rekur sögu safnsins í annálsformi frá ári til árs, fyrst er inngangur um tildrög að stofnun þess en síðan kemur sjálf saga safnsins sem hefur verið skipt niður í þrjá aðalþætti: I.…
-
Íslendingar safna fyrir nauðstatt fólk í Noregi
Á árum seinni heimsstyrjaldarinnar söfnuðu Íslendingar talsverðu fé til bágstaddra vegna stríðsátakanna. Alls safnaðist um fjórtán og hálf milljón króna, nú að raunvirði um einn milljarður króna miðað við vísitölu neysluverðs. Til Noregs söfnuðust um 1,74 milljónir króna sem núna væru rúmlega 118 milljóna króna virði. Jólakortið frá árinu 1944, sem hér sést, var hluti…