Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Þáttur Þórðar Jónssonar um Fjalla-Bensa – upphaf Aðventu
Aðventa, skáldsaga Gunnars Gunnarssonar (1889–1975), er sú íslenska jólasaga sem hefur farið víðar um lönd og verið lesin á fleiri tungumálum en aðrar sögur höfundar. Upphaf Aðventu hefur verið rakið til smásögunnar „Den gode Hyrde“ sem birtist í danska tímaritinu Julesne árið 1931. Gunnar sótti oft efnivið í þjóðlegan fróðleik og sagan á bakvið söguna „Den gode Hyrde“ er…
-

Ferðalok. ÍB 13 fol.
Eiginhandarrit Jónasar Hallgrímssonar. Jónas var dáð og áhrifamikið skáld og rithöfundur snemma á nítjándu öld, sem og rómaður náttúrufræðingur, stundum kallaður ástmögur þjóðarinnar. Jónas ólst upp á Íslandi en fór í nám við Háskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist 1838. Hann lagði í fyrstu stund á lögfræði, en náttúrufræðin tók fljótt yfir allan hans áhuga. Hann…
-

Træk af Thorvaldsens konstner- og omgangsliv eftir Carl Frederik Wilckens
Kaupmannahafnarborg ákvað að gefa Íslendingum styttu af Bertel Thorvaldsen (1770-1844) í tilefni af þjóðhátíðinni 1874 og 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar. Myndastyttan var afhent 7. ágúst 1874 en afhjúpuð og vígð á Austurvelli á afmælisdegi Thorvaldsens 19. nóvember 1875. Styttan var fyrsta útilistaverkið á Íslandi og markaði tímamót í listum á Íslandi og skil í sögu…
-

Skýrsla um bækur sem gefnar voru Stiptisbókasafninu 1874
Jón Árnason var bókavörður við Stiftsbókasafnið, er síðar var nefnt Landsbókasafn frá 1848 til 1887. Hann var fyrsti starfsmaður safnsins, en áður hafði stjórnarnefnd safnsins sinnt því í hjáverkum. Safnið var formlega sett á fót árið 1818 og opnað til notkunar árið 1825. Það var til húsa á Dómkirkjuloftinu allt fram til 1881 þegar það…
-

Handrit að Lofsöngnum / Ó, guð vors lands
Lofsöngur er sálmur eftir Matthías Jochumsson við lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, hvorttveggja samið fyrir þjóðhátíð í tilefni af þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1874. Lag og ljóð voru frumflutt af blönduðum kór við hátíðarguðsþjónustu sem hófst klukkan 10:30 í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 2. ágúst 1874 sem Lofsöngur í minningu Íslands þúsund ára og var konungur…
-

Reykjavíkurkort og Njóla eftir Björn Gunnlaugsson
Björn Gunnlaugsson (1788-1876) var sagður fremsti stærðfræðingur og stjörnufræðingur á Íslandi um sína daga. Hann var mikilvirkur landmælinga- og kortagerðarmaður og fyrsti eiginlegi kennarinn í stærðfræðilegum lærdómslistum hér á landi. Jafnframt lagði hann áherslu á að upplýsa almenning um náttúruvísindi, bæði í bundnu máli og óbundnu. Björn var heimspekilega sinnaður og þótt hann væri kannski…
-

Drög Tryggva Magnússonar að skjaldarmerki Íslands
Í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns eru varðveittar skissur að skjaldarmerki Íslands eftir Tryggva Magnússon. Tryggvi gerði fjölmargar skissur að skjaldarmerkinu uns það fékk sitt endanlega form. Þegar leið að endurreisn lýðveldisins 1944, fól Björn Þórðarson forsætisráðherra þremur ráðuneytisstjórum; Vigfúsi Einarssyni, Agnari Kl. Jónssyni og Birgi Thorlacius, ásamt Matthíasi Þórðarsyni þjóðminjaverði, sem hafði verið ráðunautur…
-

Arnbjörg æruprýdd dándis-kvinna á Vestfjördum Íslands. Lbs 2405 4to
Á þessu ári eru 300 ár frá fæðingu séra Björns Halldórssonar (1724-1794) frá Sauðlauksdal. Björn var á meðal upplýstari manna síns tíma þegar kom að jarðyrkju og búrekstri. Hann skrifaði leiðbeiningarit fyrir húsmæður um 1780 sem kom út á prenti árið 1843 í Búnaðarriti Suðuramtsins. Samkvæmt Birni átti góð húsmóðir að vera guðhrædd og laus…
-

Fyrsta íslenska LP platan í plötuskrá Fálkans 1956
Fyrsta íslenska hljómplatan var 78 snúninga, tekin upp í Kaupmannahöfn 1910. Upp úr miðri 20. öldinni urðu miklar breytingar á miðlun tónlistar þegar hæggengar og sveigjanlegri vinylplötur komu til sögunnar. Íslenzkir tónar gáfu út fyrstu íslensku 45 snúninga plöturnar 1954. Fyrsta 33 snúninga platan (LP) kom út 1956 og var hún með Gísla Magnússyni píanóleikara.…
-

Lokaðar dyr – leikmynd eftir Lothar Grund
Nú stendur yfir sýning á verkum Lothars Grund í safninu og má þar m.a. sjá teikningar fyrir sviðsetningu Þjóðleikhússins á Lokuðum dyrum (Draußen vor der Tür) eftir Wolfgang Brochert árið 1954. Lothar Grund var fæddur í Schwerin í Þýskalandi 22. október 1923. Árið 1950 flutti Lothar til Íslands í leit að nýjum tækifærum. Stuttu seinna…
-

Póesíbók Kristínar Vídalín Jacobson
Nú í febrúar eru liðin 160 ár frá fæðingu Kristínar Vídalín Jacobson (1864–1943), stofnanda og fyrsta formanns Hringsins sem fagnaði einmitt 120 ára stofnafmæli sínu í janúar síðastliðnum. Þá átti hún hlut í stofnun Bandalags kvenna í Reykjavík 1917 og sat um tíma í stjórn þess. Kristín var lærð myndlistarkona en hún var við Kvennakademíuna…
-

Skjalasafn Hringsins
Hringurinn, kvenfélag í Reykjavík, fagnar 120 ára stofnafmæli sínu þann 26. janúar 2024. Félagið vinnur að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Skjalasafn Hringsins er kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni. Það er varðveitt á Kvennasögusafni og var afhent í kjölfar glæsilegrar útgáfu á starfssögu félagsins sem Björg Einarsdóttur ritaði og Hið íslenska bókmenntafélag gaf út…