Í hverjum mánuði veljum við einn grip úr safnkostinum og segjum sögu hans: handrit, ljósmynd, kort, plakat eða bréf sem hefur legið óhreyft í áratugi. Sumir gripirnir eru þekktir, aðrir hafa aldrei verið sýndir opinberlega.
-

Ein ný sálmabók 1589
Í biskupstíð Guðbrands Þorlákssonar (um 1541-1627) á Hólum verða tímamót í bókaprentun og útgáfu kirkjulegra rita þar sem einna hæst ber útgáfu Biblíunnar 1584 og Sálmabókar 1589. Breytingar innan kirkjunnar í kjölfar siðskiptanna kröfðust þess að söfnuðurinn syngi sálma á sínu móðurmáli í stað latínusöngs kaþólskunnar og var því brýn þörf á að þýða á…
-

Leikmynd og búningar Lothars Grund við Spádóminn
Lothar Grund var fæddur í Schwering í Þýskalandi 22. október 1923. Árið 1950 flutti Lothar til Íslands í leit að nýjum tækifærum. Stuttu seinna kynntist hann leikkonunni Önnu Þorbjörgu Halldórsdóttur, þau giftust 25. júlí 1952 og eignuðust þrjá syni: Pétur Adolf Garðar, Atla Halldór og Alfreð. Fjölskyldan flutti til Þýskalands í lok sjötta áratugarins og…
-

‚Reiða stelpan‘
Kjörgripur októbermánaðar er teikning úr skjalasafni Rauðsokkahreyfingarinnar sem er til varðveislu á Kvennasögusafninu. Hreyfingin notaði myndefni markvisst í baráttu sinni fyrir jafnrétti og bættum kjörum kvenna, bæði teikningar eftir meðlimi í hreyfingunni en einnig fundið efni svosem úrklippur úr erlendum tímaritum. Þessi teikning, ‚Reiða stelpan‘, er dæmi um fundna teikningu sem birtist endurtekið í efni…
-

Fimmtíu fyrstu söngvar
Ingólfur Guðbrandsson varð þekktur í íslensku skólalífi fyrir störf sín í Laugarnesskólanum frá 1943 til1957. Menntamálaráðherra skipaði Ingólf námsstjóra í tónlist 1956 og fékk Ingólfur meðal annars opinberan styrk til að kynna sér tónlist í norrænum skólum, einkum í Svíþjóð. Staða söngkennara var bágborin á þessum árum. Allt skorti; hljóðfæri, námsefni og þekkingu. Beitti Ingólfur…
-

Einkaskjalasafn Róberts Arnfinnssonar
Þann 16. ágúst hefði stórleikarinn Róbert Arnfinnsson orðið 100 ára og í tilefni þess eru kjörgripir mánaðarins tvö gögn úr einkaskjalasafni hans (LBS 2019/27 og LBS 476 NF) sem eru varðveitt á Leikminjasafni. Annars vegar ljósmyndaalbúm sem inniheldur myndir frá fyrstu leiksýningum Róberts og hins vegar fyrsta úrklippubókin sem hann setti saman, en hlutverkin og…
-

Tengdamamma eftir Kristínu Sigfúsdóttur
Kjörgripur júlímánaðar er leikritið Tengdamamma, eftir Kristínu Sigfúsdóttur, sem var gefið út á bók árið 1923 vegna vinsælda sinna. Það var samið ár 1920 og sett á svið ári síðar víða um Eyjafjörð og á Akureyri en einnig í Iðnó í Reykjavík árið 1923. Það var eitt af fáum leikritum eftir íslenska konu sem sýnd…
-

Deleríum búbónis eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni
Jónas Árnason alþingismaður og rithöfundur var fæddur á Vopnafirði þann 28. Maí 1923 og er því öld liðin frá fæðingu hans um þessar mundir. Jónas lést þann 5. Apríl 1998. Jónas starfaði við blaðamennsku, sjómennsku og kennslu á yngri árum. Hann sat á Alþingi fyrir Sósíalistaflokkinn frá 1949 til 1953 og fyrir Alþýðubandalagið frá 1967 til…
-

Teikningar Gísla J. Ástþórssonar
Kjörgripir safnsins í maí eru teikningar Gísla J. Ástþórssonar (1923-2012) sem hafa nýlega verið afhentar safninu. Gísli kvaðst í viðtali við Sjómannadagsblaðið 1988 ekki hafa farið að teikna í fullri alvöru fyrr en hann tók við ritstjórn á Alþýðublaðinu í upphafi tólf mílna þorskastríðsins 1958. Þá fór hann að teikna myndir í blaðið sem voru…
-

Pólýfónkórinn – veggspjald fyrir tónleika í Kristskirkju, Landakoti, í apríl 1961
Ingólfur Guðbrandsson stofnaði Pólýfónkórinn árið 1957 og opnaði um leið þjóðinni kórtónlist frá endurreisnar- og barokktímabilinu, tónlist sem í mörgum tilfellum hafði aldrei heyrst á Íslandi. Allt frá upphafi var mikil aðsókn að tónleikum kórsins og umfjallanir um söng kórsins í flestum tilfellum lofsamlegar. Vakti efnisvalið oftast sérstaka athygli, tónlist frá 16. og 17. öld…
-

Safn Lárusar Sigurbjörnssonar
Kjörgripur mánaðarins er gagn úr safni Lárusar Sigurbjörnssonar, fyrrum skjala- og minjavarðar Reykjavíkurborgar. Þann 22. maí næstkomandi verða 120 ár liðin frá fæðingu þessa merkilega manns en Landsbókasafnið varðveitir sviðslistasafn hans. Safnið inniheldur fjölmörg forvitnileg gögn þar á meðal óútgefin leikhandrit, bæði íslensk og erlend, ýmsar bækur um sviðslistir og spjaldskrár. Kjörgripur mánaðarins er þó…
-

Dárahöfuð og brotnir stafir, JS 27 fol.
Handritið JS 27 fol. er sögubók, skrifuð um 1670. Hún inniheldur einkum riddara- og fornaldarsögur, eða „Nokkrar fróðlegar fornmannasögur til leyfilegrar skemmtunar“ eins og segir á titilsíðu. Band handritsins er líkast til upprunalegt skinnband með tréspjöldum og spennum og í því má sjá skreytta upphafsstafi, skrautbekki og bókahnúta. Upphafsstafir eru í rómönskum stíl, með áberandi…
-

Viðbrögð Gunnlaugs Briem við valdaráni Jörundar Hundadagakonungs 1809
Kjörgripur janúarmánaðar er ritgerð Gunnlaugs Briem sýslumanns (1773–1834), Quid sentimus? Quid faciendum? sem mætti útleggja á íslensku sem Hvað álítum vér? Hvað ber að gera? Gunnlaugur tók ritgerðina saman í kjölfar valdaráns Jörundar Hundadagakonungs (1780–1841) sumarið 1809. Jörundur kom hingað til lands í júní 1809 sem túlkur í verslunarskipi Samuel Phelps sápukaupmanns. Þeir sáu sér…