Landsbókasafn
EN – English

Mold ert þú – Jarðvegur og íslensk náttúra

Sýning í Þjóðarbókhlöðu 06.03.2024 – 29.09.2024

Viðurkenningu Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2023 hlaut Ólafur Gestur Arnalds fyrir ritið Mold ert þú – Jarðvegur og íslensk náttúra. Útgefandi er Iðnú. Í ályktunarorðum viðurkenningarráðs Hagþenkis segir um ritið:

„Stórvirki á sviði náttúru- og umhverfisfræði með áherslu á sérstöðu íslensks jarðvegs. Fjallað er ýtarlega um mikilvægi moldarinnar í vistkerfum þurrlendis með ríkulegum gögnum og myndefni.“

Af þessu tilefni hefur verið sett upp örsýning í Þjóðarbókhlöðunni.