Landsbókasafn
EN – English

Norðanvindur

Bókin Norðanvindur er kjörgripur safnsins í ágústmánuði í tilefni af norrænu bókbandssýningunni Norræn náttúra sem lýkur í lok mánaðarins.

Sýningin Norrænt bókband er samstarfsverkefni norrænna listbókbindara. Árið 2009 var sýningin í fyrsta sinn í höndum Íslendinga. Hún var sett upp í Þjóðmenningarhúsinu en ferðaðist svo um öll Norðurlöndin. JAM-hópurinn sem er félagssamtök íslenskra bókbindara tók að sér að annast sýninguna fyrir Íslands hönd. Sú hugmynd kom fram í hópnum að láta prenta bók með norrænum ljóðum þálifandi skálda og hver þátttakandi í verkefninu fékk eina slíka bók til að binda inn. Ákveðið var að velja fimm íslensk skáld og tvö frá hverju hinna Norðurlandanna að Færeyjum meðtöldum auk tveggja skálda frá samísku þjóðinni og eins skálds frá Finnlandi vegna tvítyngi þar í landi. JAM-hópurinn ákvað að valin skyldu fimm ljóð frá hverju skáldi. Samtals urðu ljóðskáldin átján og ljóðin alls níutíu. Birna Geirfinnsdóttir, Gunnar Þór Vilhjálmsson og Hörður Lárusson gerðu myndir í bókina. Valdimar Tómasson sá um ritsjórn, Svanur Jóhannesson sá um samantekt æviatriða skáldanna og verkefnisstjórn. Formaður JAM-hópsins var Ragnar Gylfi Einarsson. Bókin Norðanvindur var gefin út 2008.

Á meðal þáttakenda í sýningunni 2009 sem bundu inn bókina Norðanvindur var Nína Guðmundsdóttir (f. 1951). Nína notaði óhefðbundin efni í spjöldin, en roð og gler eru þar áberandi. Bókina má skoða í bókbindarasafninu í sérsöfnum Íslandssafns. Færst hefur í vöxt að bókverk séu í bland við hefðbundið bókband á bókbandssýningunum. JAM-hópurinn hefur séð um norrænar bókbandssýningar í safninu um árabil. Um það bil fimmta hvert ár hefur sýningin Norrænt bókband verið hér á landi og frá 2014 hefur hún verið í Þjóðarbókhlöðunni.

Norræna bókbandssýningin Norræn náttúra stendur yfir í safninu út ágúst.