Landsbókasafn
EN – English

Saumastofan − leikmyndarmódel

Kjörgripur mánaðarins er leikmyndarmódel hannað af Jóni Þórissyni fyrir uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Saumastofunni eftir Kjartan Ragnarsson.

Saumastofan var frumsýnd þann 28. október 1975, fjórum dögum eftir fyrsta Kvennafrídaginn þegar konur lögðu niður störf og efndu til stærstu mótmæla Íslandssögunnar. Söngleikurinn fjallar um heldur óvenjulegan dag í lífi saumakvenna á saumastofunni Saumur. Sigga, elsta saumakonan, kemur með veisluföng á vinnustaðinn en daginn áður hélt hún boð í tilefni sjötíu ára afmælis síns en fáir komu. Ása, Didda, Lilla, Gunna og Magga, í slagtogi við Siggu, ákveða að leggja niður störf og halda partí á saumastofunni. Á meðan á gleðskapnum stendur deila þær sögum af lífi sínu sem er allt annað en dans á rósum en húmorinn er aldrei langt undan.

Leikarar voru Ásdís Skúladóttir, Harald G. Haraldsson, Hrönn Steingrímsdóttir, Karl Guðmundsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigríður Hagalín, Sigurður Karlsson og Soffía Jakobsdóttir. Daníel Williamsson hannaði ljósin, Jón Þórisson var leikmynda- og búningahönnuður og Magnús Pétursson var hljómsveitarstjóri.

Saumastofan fagnar fimmtíu ára afmæli sínu þann 28. október á þessu ári. Sömuleiðis fagnar Kjartan, sem einnig leikstýrði sýningunni og samdi tónlistina, áttatíu ára afmæli sínu þann 18. september. Saumastofan sló í gegn, gekk næstu þrjú leikárin í Iðnó og urðu sýningar tæplega tvö hundruð.

Leikmyndarmódelið er varðveitt undir safnmarkinu LMÍ 2024/18 og eru Leikfélagi Reykjavíkur færðar bestu þakkir fyrir gjöfina. Ártalið á módelinu er rangt, á að vera 1975.

Módelið er staðsett á fyrstu hæð, Íslandssafni.