Þjónustuborð
Starfsmenn í þjónustuborði á 2. hæð sinna almennri þjónustu og afgreiða erindi sem berast símleiðis eða í tölvupósti. Í þjónustuborði er hægt að skrá bækur í útlán og skila, panta efni og fá ýmsar leiðbeiningar og aðstoð. Tölvupóstfang útlánaþjónustu er utlan (hjá) landsbokasafn.is
Starfsmenn upplýsingaþjónustu eru með vakt í þjónustuborði 9-16 alla virka daga. Þeir veita upplýsingar um heimildir á einstökum fræðasviðum, heimildaskráningu og aðstoða við heimildaleitir ásamt því að sinna erindum sem berast í netspjalli. Upplýsingaþjónustan stendur einnig fyrir margvíslegri fræðslu og kynningum. Tölvupóstfang upplýsingaþjónustu er upplys (hjá) landsbokasafn.is
Opin vinnuaðstaða fyrir hópa
Á 2. hæð eru hópvinnuborð fyrir litla hópa og stóra. Í Þjóðarbókhlöðu er áhersla lögð á að tryggja vinnufrið gesta og skilgreina hljóðvist á einstökum svæðum. 2. hæð er „talandi hæð“ sem þýðir að þar mega gestir spjalla og nota síma. Ritakostur á 2. hæð eru handbækur og uppsláttarrit til notkunar á staðnum.
Tölvur og Internet
Á móti þjónustuborði: Aðgangur að Interneti og ritvinnsluforritum.
Í Þjóðarbókhlöðu er þráðlaust net (LBS-HotSpot) sem allir geta tengst með eigin fartölvu/snjalltæki.
Prentun og ljósritun
Almennir safngestir geta prentað úr tölvum safnsins á prentara í þjónustuborði. Prentuð skjöl eru afhent við afgreiðslu útlána.
Ljósritunarvél er á 2. hæð hússins.
Hópvinnuherbergi
Í Þjóðarbókhlöðu eru hópvinnuherbergi á 3. og 4. hæð. Herbergin taka 2-10 manns í sæti. Á bókunarvef safnsins er hægt að bóka hópvinnuherbergi. Lágmarksstærð hópa sem geta bókað herbergi eru 2-3 einstaklingar. Neysla matar og drykkja er óheimil, aðeins er leyfilegt að vera með drykki í lokuðum ílátum.
Lesherbergi
Á 3. og 4. hæð eru 26 lesherbergi sem fyrst og fremst eru ætluð fræðimönnum, nemendum í framhaldsnámi á háskólastigi og öðrum sem vinna að ákveðnum verkefnum og þurfa að nota rit safnsins í því skyni. Í tveimur herbergjum eru tölvur með aðgangi að ritvinnslu, Netinu o.fl.
Geymsluskápar
Samtals eru um 150 geymsluskápar til afnota fyrir gesti. Lyklar eru afhentir við útlánaborð á 2. hæð gegn framvísun bókasafnsskírteinis og greiðslu tryggingargjalds. Óheimilt er að geyma rit safnsins í skápunum nema þau hafi fyrst verið fengin að láni. Rit sem ekki er hægt að fá að láni má ekki geyma í geymsluskápum. Geymið aldrei matvæli í skápunum.