Opnuð hefur verið sýning í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Benedikts Sveinbjarnarsonar Gröndals, náttúrufræðings og skálds. Á sýningunni getur að líta fjölbreytt handrit sem varpa ljósi á líf hans og störf, þar á meðal stórfengleg handrit hans að Dýraríki Íslands og Íslenzkum fuglum. Þau eru varðveitt á sitthvorri stofnuninni, annað á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og hitt á Náttúrufræðistofnun. Það er því sérlega ánægjulegt að sjá handritin standa saman hlið við hlið í fyrsta sinn í langan tíma.

