Skip to content

Víðsvegar heimsækir Þjóðarbókhlöðuna

    Víðsvegar heimsækir Þjóðarbókhlöðuna

    Gígja Hólmgeirsdóttir, umsjónarmaður útvarpsþáttarins Víðsvegar á RÚV, heimsækir Þjóðarbókhlöðuna í nýjum þætti. Þar gengur hún um húsið og ræðir við landsbókavörð og sérfræðinga safnsins um starfsemina, safnkostinn og verkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

    Í þættinum ræðir Gígja meðal annars við landsbókavörð um hlutverk safnsins, starfsemi þess og þróun. Hún hittir einnig sérfræðinga á ólíkum sviðum og kynnist verkefnum sem gestir Þjóðarbókhlöðunnar verða ekki endilega varir við í daglegri heimsókn.

    Á ferð sinni um húsið fær Gígja meðal annars að kynnast söfnun og varðveislu íslenskrar útgáfu, handrita, skjala, hljóðefnis og stafræns menningararfs. Hún ræðir við starfsfólk um safnkostinn sem það vinnur með og hvernig heimildir eru varðveittar, skráðar og gerðar aðgengilegar almenningi og fræðasamfélaginu.

    Þátturinn gefur þannig innsýn í ólíkar hliðar starfseminnar í Þjóðarbókhlöðunni og verkefni starfsfólks sem fara að stórum hluta fram á bak við tjöldin.

    Hlustaðu á Víðsvegar á RÚV.