-

Vika opins aðgangs
Alþjóðleg vika opins aðgangs verður dagana 19.-25. október 2020. Þemað í ár er „Open with Purpose: Taking Action to Build Structural Equity and Inclusion“ eða „Opnun með tilgangi: Grípum til aðgerða og byggjum upp jafnræði og sanngirni. Í viku opins aðgangs mun Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn ásamt öðrum háskólabókasöfnum á Íslandi vera með fræðslu um…
-

Lokað vegna samkomubanns
Þann 5. október 2020 taka í gildi breytingar á núgildandi sóttvarnarreglum vegna Covid-19. Breytingarnar fela í sér að bann verður sett á samkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman. Samkomubannið hefur áhrif á Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn og mun Þjóðarbókhlaðan vera lokuð frá og með mánudeginum 5. október 2020. Upplýsingar um þjónustu sem…
-

Nýr rekstraraðili veitingastofu Þjóðarbókhlöðunnar
Háma hefur tekið við veitingarekstri í Þjóðarbókhlöðu. Háma er í eigu Félagsstofnunar stúdenta sem rekur veitingasölu víða á háskólasvæðinu. Háma leggur áherslu á að mæta þörfum stúdenta og annarra gesta safnsins og verða fyrstu vikurnar notaðar til að leggja mat á þær og þróa framboð veitinga til samræmis. Stúdentar við HÍ njóta sömu kjara í…
-

JAÐARLÖND | BORDERLANDS
JAÐARLÖND | BORDERLANDS er sýning á vegum bókverkahópsins ARKIR sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Sýningin verður opin frá og með föstudeginum 21. ágúst 2020 í sýningarrými Þjóðarbókhlöðunnar. Sýningin stendur fram til sunnudagsins 20. september. Nánar verður tilkynnt viðburði tengda sýningunni síðar. JAÐARLÖND er sýning á bókverkum sextán listamanna frá sjö löndum: þar sýna…
-

Þjóðleikhúsið og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn í samstarf um varðveislu verðmæts leiklistararfs þjóðarinnar
Þjóðleikhúsið og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hafa tekið upp samstarf í þeim tilgangi að varðveita ómetanlegar upptökur frá leiksýningum, allt frá opnun Þjóðleikhúss til þessa dags, og gera þær aðgengilegar á stafrænu formi. Í þeim tilgangi hefur Þjóðleikhúsið afhent Landsbókasafni mikið magn af hljóð- og myndritum sem leikhúsið hefur tekið upp á undanförnum áratugum. Um…
-

Ljóðaverðlaunin Maístjarnan afhent
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 27. maí. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2019 hlýtur Jónas Reynir Gunnarsson fyrir ljóðabók sína Þvottadagur. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Þvottadagur er afar innihaldsrík og margræð ljóðabók. Einkennandi fyrir ljóðin er kraftmikið og hrífandi myndmál og þótt…
-

Sumarstörf á Landsbókasafni – Háskólabókasafni fyrir námsmenn
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tekur þátt í átaksverkefni ríkisstjórnarinnar um að bjóða öllum námsmönnum sem eru á milli anna og eru 18 ára á árinu eða eldri, tímabundið starf sumarið 2020. Hjá safninu eru sjö störf í boði og er hægt að skoða yfirlit yfir þau á vef Vinnumálastofnunar. Áætlað er að þau sem verða…
-

Þjóðarbókhlaðan opnar kl. 13 miðvikudaginn 27. maí
Kalda vatnið verður tekið af Þjóðarbókhlöðu miðvikudaginn 27. maí kl. 9-13. Af þeim sökum verður safnið ekki opnað fyrr en kl. 13, þann dag. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.
-

Íslensku safnaverðlaunin
Þjóðminjasafn Íslands hlaut þann 18. maí, á alþjóðlega safnadeginum, Íslensku safnaverðlaunin fyrir nýja varðveislu- og rannsóknamiðstöð Þjóðminjasafns Íslands í Kópavogi ásamt Handbók um varðveislu safnkosts. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) standa saman að verðlaununum sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Guðni Th. Jóhannesson…
-

Nafnasamkeppni fyrir upplýsingakerfi um rannsóknir
Sumarið 2019 var undirritaður samningur um kaup á upplýsingakerfi fyrir rannsóknir á Íslandi (Current Research Information System – CRIS). Kerfið er af gerðinni Pure frá fyrirtækinu Elsevier og er notað víða um heim. Undirbúningur fyrir innleiðingu kerfisins í háskóla og helstu rannsóknastofnanir hér á landi er í fullum gangi. Nú er leitað eftir nafni á…
-

Ný vefsíða fyrir Leikminjasafn Íslands
Ný vefsíða fyrir Leikminjasafn Íslands – leikminjasafn.is – er komin í loftið. Á síðunni er m.a. gagnagrunnur um leiksýningar og listamenn sem hefur verið endurgerður og er aðgengilegur eftir nokkurt hlé. Flest allt efni af eldri síðu Leikminjasafns er komið á nýju síðuna og smám saman munu bætast við upplýsingar um safnkostinn. Safnkostur Leikminjasafns er…
-

Þjóðarbókhlaðan opnar kl. 10 fimmtudaginn 14. maí
Fimmtudaginn 14. maí verður Þjóðarbókhlaðan opnuð kl. 10:00 vegna starfsmannafundar. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.