-

Tilnefningar til Maístjörnunnar 2019
Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Rithöfundasambands Íslands verða veitt í fjórða sinn í maí. Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2019 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi þann 7. maí. Tilnefndir eru: Jónas Reynir Gunnarsson – Þvottadagur (Páskaeyjan) Kristín Eiríksdóttir – Kærastinn er rjóður (JPV) Sigurlín Bjarney Gísladóttir – Undrarýmið (Mál og menning)…
-

Þjóðarbókhlaðan verður opnuð 4. maí
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Þjóðarbókhlaðan, verður opnað 4. maí 2020, eftir að hafa verið lokað frá 16. mars þegar bann á samkomur, vegna kórónuveirunnar (Covid-19), var sett. Safnið verður opið með ákveðnum takmörkunum sem samkomubannið sem tekur gildi 4. maí, setur. Takmörkin eru að ekki séu fleiri en 50 einstaklingar (gestir og starfsmenn) á sama…
-

Íslensk-dönsk orðabók eftir Sigfús Blöndal
Þann 23. apríl er þess minnst að 100 ár eru frá því að Íslensk–dönsk orðabók kom út, en hún var gefin út í tveimur bindum á árunum 1920–24. Bókin er 1052 blaðsíður og hefur að geyma 114.000 uppflettiorð. Orðabókin er lykilverk í íslenskri orðabókasögu og er enn stærsta íslenska skýringaorðabókin sem hefur verið unnin til…
-

Landsaðgangur styður yfirlýsingu ICOLC samtakanna um áhrif COVID-19
Landsaðgangur að rafrænum áskriftum styður yfirlýsingu ICOLC samtakanna um áhrif COVID-19 heimsfaraldursins á safnkost bókasafna og þjónustu. Yfirlýsingin er birt af ICOLC – alþjóðlegum samtökum áskriftarsamlaga sem Landsaðgangur að rafrænum áskriftum á Íslandi er aðili að. Hún er samin af meðlimum samtakanna í skugga þess að starfsemi skóla og háskóla í 49 löndum hefur verið…
-

Covid-19: söfnun persónulegra heimilda
Í handritasafni er að finna fjölmargar persónulegar heimildir á borð við bréf og dagbækur þar sem finna má frásagnir af bæði hversdagslegum og sögulegum viðburðum frá síðari öldum. Þannig hafa persónulegar heimildir varpað ljósi á Skaftárelda, spænsku veikina og hernámsárin svo fátt eitt sé nefnt. Ljóst er að áhrif Covid-19 faraldursins eru söguleg og því…
-

Þjónusta safnsins á meðan samkomubann varir
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er lokað frá 16. mars 2020 í fjórar vikur, vegna samkomubanns vegna kórónuveirunnar (Covid-19). Meðan á lokuninni stendur munu starfsmenn leggja sig fram um að koma til móts við óskir um þjónustu eins og hægt er. Þjónustan verður einungis í rafrænu formi og símleiðis á meðan á lokun stendur. Netspjall safnsins…
-

Prestaköll – Viðurkenning Hagþenkis 2019
Viðurkenning Hagþenkis var veitt 4. mars í Þjóðarbókhlöðunni við hátíðlega athöfn en viðurkenninguna hlaut Björk Ingimundardóttir fyrir ritið Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II sem Þjóðskjalasafn gaf út. Í ályktunarorðum viðurkenningaráðsins segir um ritið: „Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á eftir að nýtast í margvíslegum rannsóknum um langan aldur. Sagnfræðilegt stórvirki.“…
-

Hugvísindasvið HÍ og Lbs-Hbs kynna rafrænar bækur í áskrift
Á undanförnu ári hefur aðgengi nemenda og kennara við Háskóla Íslands að rafbókum aukist mikið. Munar þar mestu um samninga sem gerðir hafa verið að frumkvæði Hugvísindasviðs en fjármagn til sviðsins úr Aldarafmælissjóði, sem veitt er til eflingar rannsóknarinnviða, hefur verið nýtt til að opna aðgang að stórum söfnum rafbóka frá mörgum af helstu útgefendum…
-

Medúsa – erindi og samningur um gögn
Fimmtudaginn 20. febrúar var Benedikt Hjartarson prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands með erindi í safninu um Medúsu með hliðsjón af alþjóðlegu starfi súrrealista á níunda áratug 20. aldar í tengslum við sýningu sem sett hefur verið upp um Medúsu í anddyri safnsins. Benedikt er m.a. einn af ritstjórum ritraðarinnar A Cultural History of the…
-

Fjölskyldusmiðja: Galdrar og galdratákn
Sunnudaginn 16. febrúar kl. 14–16 munu Guðrún Laufey Guðmundsdóttir og Halldóra Kristinsdóttir, sérfræðingar frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni bjóða upp á fræðslu um galdra og galdrahandrit í Safnahúsinu. Stutt leiðsögn verður um galdrahandrit sýningarinnar Sjónarhorn kl. 14 og 15 og í listasmiðju gefst börnunum tækifæri að læra góð galdratákn og vinna með þau á pappír.…
-

Sérfræðileiðsögn frá Landsbókasafni á Safnanótt í Safnahúsinu
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 7. febrúar frá klukkan 18.00 til 23.00. Í Safnahúsinu er stendur sýningin Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim yfir. Í sjö álmum Safnahússins eru jafn mörg sjónarhorn. Þau tengja saman ólík listaverk og áhugaverða muni, þvert á efni og tímabil.Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns, Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum…
-

Íslensku bókmenntaverðlaunin 2019
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent í 31. skipti við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 28. janúar. Verðlaun eru veitt í flokki fagurbókmennta, flokki fræðibóka og bóka almenns efnis og flokki barna- og unglingabóka. Handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár eru Sölvi Björn Sigursson í flokki fagurbókmennta fyrir bók sína Selta: Apókrýfa úr ævi landlæknis, Bergrún Íris Sævarsdóttir í flokki…