-

Þorvaldur Thoroddsen – aldarminning
Þann 28. september var öld liðin frá láti Þorvalds Thoroddsen, frumkvöðuls á sviði jarð- og náttúrufræða. Hans var minnst með málþingi og opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðu. Erindi fluttu Álfheiður Ingadóttir, Náttúruminjasafni Íslands, Gísli Már Gíslason, verkfræðingur og bókaútgefandi, Helga Kress, prófessor emeritus, Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur, Karl Skírnisson, dýrafræðingur, Trausti Jónsson, veðurfræðingur og Gerður Kristný, rithöfundur.…
-

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 50 ára
Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands fagnar 50 ára starfsafmæli árið 2021. Í tilefni afmælisins var opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu fimmtudaginn 2. september um sögu stofnunarinnar og starfsemi hennar. Við opnun sýningarinnar fluttu ávörp Guðmundur Jónsson, fyrrv. forstöðumaður Sagnfræðistofnunar, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. Auk þess flutti Helgi Þorláksson, fyrrv. prófessor…
-

Fálkaorðan
Í gær, á þjóðhátíðardegi Íslendinga, sæmdi forseti Íslands fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Rósa Björg Jónsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur og starfsmaður Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns var sæmd riddarakrossi fyrir sjálfsboðastörf í þágu Móðurmáls, samtaka um tvítyngi, við skráningu og miðlun barnabóka á öðrum tungumálum en íslensku. Samstarfsfólk óskar Rósu Björgu innilega til hamingju…
-

Halla Þórlaug Óskarsdóttir hlýtur Maístjörnuna 2020
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni þriðjudaginn 8. júní. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2020 hlýtur Halla Þórlaug Óskarsdóttir fyrir bókina Þagnarbindindi. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Þagnarbindindi er áhrifarík ljóðsaga sem sver sig í ætt við ýmis eftirtektarverð verk frá síðasta áratug, jafnt innlend sem…
-

Jón Múli Árnason – afhending skjala
Þann 25. maí afhenti fjölskylda Jóns Múla Árnasonar safninu ýmis skjöl úr hans fórum. Þau sem afhentu gögnin voru Birna Gunnarsdóttir, Eyþór Gunnarsson, Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Oddrún Vala Jónsdóttir. Sýning í tilefni af aldarminningu Jóns Múla stendur yfir í safninu til 16. ágúst.
-

Tilnefningar til Maístjörnunnar 2020
Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Rithöfundasambands Íslands verða veitt í fimmta sinn í maí.Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2020 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi þann 27. apríl. Tilnefndar bækur eru:Taugaboð á háspennulínu eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur. Útgefandi: Una útgáfuhús.Draumstol eftir Gyrði Elíasson. Útgefandi: Dimma.Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur. Útgefandi: Benedikt.Kyrralífsmyndir eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. Útgefandi: Mál og menning.1900 og eitthvað eftir Ragnheiði Lárusdóttur.…
-

Samið hefur verið um opinn aðgang við Karger útgáfuna
Samningurinn tryggir landsaðgang að öllum rafrænum tímaritum Karger frá og með 1998. Vísindamenn á Íslandi geta birt vísindagreinar í tímaritum Karger í opnum aðgangi án þess að greiða birtingargjöld og er fjöldi greina til birtingar ótakmarkaður. Lesa frétt á Hvar.is Fréttatilkynning
-

Leiðsögn um sýninguna Paradísarheimt 60/40
Björn G. Björnsson var með leiðsögn um sýninguna Paradísarheimt 60/40 þann 2. mars fyrir leikmyndahöfunda og aðstandendur sýningarinnar. Sýningin Paradísarheimt 60/40 hefur staðið frá 25. september 2020. Hún er í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá útkomu bókar Halldórs Laxness og 40 ár frá frumsýningu sjónvarpsmyndar sem gerð var eftir bókinni. Á…
-

Íslenska myndasögusamfélagið gefur Landsbókasafninu myndasögur
Íslenska myndasögusamfélagið færði nýlega Landsbókasafni Íslands − Háskólabókasafni íslenskar myndasögur að gjöf. Atla Hrafney afhenti Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur landsbókaverði myndasögurnar. Íslenska myndasögusamfélagið er nýtt félag sem hefur það markmið að efla menningu og iðnað íslenskra myndasagna á Íslandi, meðal annars með viðburðum, námskeiðum og útgáfu. Landsbókasafnið safnar og varðveitir allar tegundir efnis sem gefið er út…
-

Niðurstaða lestrarkönnunar 2020
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tekur þátt í gerð könnunar á viðhorfi Íslendinga til bóklestrar, bókasafna, áhrif Covid-19 á lestur og fleira. Lestur heldur áfram að aukast og þá sérstaklega notkun hljóðbóka, svipað og kom fram í könnun sem gerð var í fyrra. Covid-19 hefur haft áhrif á lestrarvenjur landsmanna, sérstaklega í notkun hljóðbóka. Þeir sem…
-

Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Jónas Hallgrímsson er einna þekktastur fyrir kveðskap sinn, náttúrufræðistörf og nýyrðasmíði. Jónas fæddist að Hrauni í Öxnadal 16. nóvember 1807. Hann var með lærðustu mönnum síns tíma, lauk guðfræðiprófi hér heima og lagði síðan stund á lögfræði og náttúruvísindi við Kaupmannahafnarháskóla.…
-

Vika opins aðgangs 2020
Alþjóðleg vika opins aðgangs var haldin í 13. skiptið dagana 19.-25. október 2020. Þema vikunnar í ár var Opnun með tilgangi: Grípum til aðgerða og byggjum upp jafnræði og sanngirni (Open with Purpose: Taking Action to Build Structural Equity and Inclusion). Háskólabókasöfn á Íslandi tóku sig saman og birtu greinar tengdar opnum aðgangi í vikunni. Safnið…