-

Hin íslenska fálkaorða
Á nýársdag, sæmdi Forseti Íslands fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor við Háskóla Íslands var sæmd riddarakrossi fyrir kennslu og rannsóknir á sviði upplýsingafræði og skjalastjórnunar. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn óskar Jóhönnu innilega til hamingju með viðurkenninguna. Nánar má lesa um afhendinguna á vef RÚV.
-

Rannsóknarkerfið PURE
Í sumar keypti Mennta- og menningarmálaráðuneytið rannsóknarkerfið PURE og er því ætlað að vera upplýsingakerfi (Current Research Information System (CRIS)) fyrir rannsóknarstarf í landinu. Þann 17. desember sl. var haldinn svokallaður kick-off fundur þar sem innleiðingarferlinu var formlega hleypt af stokkunum. Búið er að skipa stýrihóp og verkefnahópa sem munu taka þátt í innleiðingarferlinu, í…
-

Morgunfundur Kvennasögusafns
Á morgunfundi Kvennasögusafns Íslands í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu í dag 5. desember kynnti Arnheiður Steinþórsdóttir, MA-nemi í sagnfræði, lokaritgerð sína úr grunnnámi: „Þegar konur lögðu undir sig útvarpið.“ Einnig kynntu Anna Dröfn Ágústsdóttir, fagstjóri fræða og Lóa Auðunsdóttir, lektor í grafískri hönnun við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, rannsóknarverkefnið Ásýnd íslenskrar kvennabaráttu. Á myndinni má sjá…
-

Þjóðarbókhlaðan 25 ára
Í dag 1. desember eru liðin 25 ár frá því Þjóðarbókhlaðan var opnuð. Í viðtali við Morgunpóstinn þann 14. nóvember 1994 sagði Einar Sigurðsson landsbókavörður m.a.: „Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, eins og nýja bókasafnið á að heita, verður bókasafn 21. aldarinnar sem á að geta valdið byltingarkenndum umskiptum til hins betra, bæði hvað varðar starfsaðstöðu…
-

Ráðstefnan Nordic Workshop on Bibliometrics and Research Policy
Norræna ráðstefnan Nordic Workshop on Bibliometrics and Research Policy, verður haldin í 24. sinn dagana 27.-29. nóvember 2019 í Veröld – húsi Vigdísar. Markmið ráðstefnunnar er að kynna nýlegar bókfræðilegar rannsóknir á Norðurlöndum. Upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar og fleira er á vef hennar (https://nwb2019.hi.is/). Ráðstefnan er skipulögð af Háskóla Íslands, Rannís og Landsbókasafni Íslands –…
-

Niðurstöður nýrrar lestrarkönnunar
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tekur þátt í gerð könnunar á viðhorfi Íslendinga til bóklestrar, bókasafna og fleira. Niðurstöður sýna að lestur eykst milli ára og að hlustun á hljóðbækur eykst verulega. Afkastamestu lesendurnir eru konur og barna-fjölskyldur. Rúmlega 60% les einungis eða oftar á íslensku og um 76% svarenda telja mikilvægt að stutt sé við íslenska…
-

Jónas Hallgrímsson og stjörnufræðin
Á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember, er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur. Jónas Hallgrímsson er einna þekktastur fyrir kveðskap sinn, náttúrufræðistörf og ekki síst nýyrðasmíði. Árið 1842 kom út bókin Stjörnufræði, létt og handa alþýðu, sem var þýðing Jónasar Hallgrímssonar á bók danska stærðfræðingsins G.F. Ursin (1797-1849) Populært Foredrag over Astronomien. Í ritinu eru…
-

Bókargjöf frá sendiherra Kína
Sendiherra Kína, Jin Zhijian, kom í safnið þriðjudaginn 12. nóvember og fundaði með landsbókverði. Við það tækifæri afhenti hann safninu veglega ljósmyndabók með myndum frá 1949 til 2019 sem gefin var út í tengslum við 70 ára afmæli alþýðulýðveldisins Kína.
-

Hvenær verða baráttumál að baráttusögu? – Kvennasögusafn á Kynjaþingi
Laugardaginn 2. nóvember kl. 13-17:30 verður Kvennasögusafn Íslands með örsýningu á Kynjaþingi í Norræna húsinu. Kvennasögusafn sýnir þar brot úr þeim gögnum sem safnið varðveitir frá jafnréttisbaráttu síðastliðinna 50 ára. Sögu, sem ekki væri til staðar nema vegna þess að einstaklingar og félagasamtök héldu utan um gögn frá starfi sínu og afhentu þau til varðveislu.
-

Minningarskjöldur af Jóni Árnasyni í anddyri safnsins
Þann 7. sept. afhjúpaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra minningarskjöld um Jón Árnason landsbókavörð og þjóðsagnasafnara í anddyri safnsins, í tilefni af því að 200 ár eru frá fæðingu hans. Myndin er eftir Helga Gíslason myndhöggvara, en samskonar mynd var sett upp á Skagaströnd 17. ágúst s.l. Helgi á einnig verkið Silfra, sem er…
-

Ráðstefna og sýning um Jón Árnason í Þjóðarbókhlöðu
Í tilefni þess að 200 ár eru frá fæðingu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara og landsbókavarðar verður haldin ráðstefna og opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu, 7. september 2019. Dagskrá: 13:00 – 13:15 Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, flytur ávarp og afhjúpar lágmynd í anddyri Þjóðarbókhlöðu. 13:20 – 13:30 Landsbókavörður, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, flytur ávarp. 13:30 –…
-

Dagskrá til minningar um Jón Árnason landsbókavörð og þjóðsagnasafnara
Dagana 17. og 18. ágúst 2019 verður þess minnst í Skagabyggð og á Skagaströnd að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Árnasonar landsbókavarðar og þjóðsagnasafnara en hann fæddist að Hofi í Skagabyggð 17. ágúst 1819. Dagskráin hefst með messu kl. 11:00 þann 17. ágúst í Hofskirkju þar sem Árni faðir Jóns þjónaði. Klukkan 12:00…