-

NordLic fundur haldinn í Þjóðarbókhlöðu
Dagana 6. og 7. júní var haldinn fundur hjá NordLic í Þjóðarbókhlöðu. Fundurinn er haldinn árlega og er samstarfsvettvangur norrænna samlaga sem sjá um áskriftir að rafrænu vísindaefni. Fundurinn færist á milli Norrænu þjóðanna og var nú haldinn á Íslandi. Meðal efnis á fundinum voru atriði sem að lúta að opnum aðgangi, en eins og…
-

Málstofa um Opinn aðgang
Mánudaginn 3. júní 2019 var haldin málstofa um Opinn aðgang í Þjóðarbókhlöðu. Aðalfyrirlesarar voru Colleen Campbell, sem starfar við verkefnið „Open Access 2020 Initiative“ hjá Max Planck Digital Library, München og Michael Svendsen hjá Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn. Um 40 boðsgestir sóttu viðburðinn, einkum starfsfólk bókasafna og rannsóknarþjónustu háskólanna. Málstofan var skipulögð og í boði…
-

Heimsókn mennta- og menningarmálaráðherra í Þjóðarbókhlöðu
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti safnið þann 28. maí 2019 og hitti stjórn safnsins. Gengið var um Þjóðarbókhlöðuna, húsnæðið skoðað og starfsemin kynnt.
-

Notendaráðstefna Aleflis
Alefli – notendafélag Gegnis hélt sína árlegu ráðstefnu fimmtudaginn 23. maí 2019 í Þjóðarbókhlöðu. Á fundinum greindu fulltrúar Landskerfis frá vinnu við innleiðingu nýs bókasafnskerfis og fóru yfir skiptingar safna í hópa. Einnig kynntu fulltrúar Innovative Interfaces fyrirtækið, þjónustuna og bókasafnskerfið Sierra.
-

Stofnun Vinafélags um sviðslistaarfinn
Aðalfundur Leikminjasafns Íslands var haldinn í Þjóðarbókhlöðu 23. maí 2019 og var það síðasti aðalfundur safnsins. Tillaga um að safnið verði lagt niður í núverandi mynd var samþykkt á fundinum. Jafnframt var samþykkt að safnkostur Leikminjasafnsins og hlutverk verði falið Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og Þjóðminjasafni Íslands í samræmi við samkomulag þessara aðila dags. 8.…
-

Árlegur fundur NING-hópsins í Þjóðarbókhlöðu
NING-hópurinn (Nordic Information Network Gender) hittist á árlegum fundi sínum í Þjóðarbókhlöðunni 21. maí síðastliðinn. Norðurlöndin skiptast á að halda fundinn og skipulögðu Kvennasögusafn Íslands og Jafnréttisstofa fundinn í ár. Fundurinn fór síðasta fram á Íslandi árið 2011, þá einnig í Þjóðarbókhlöðunni. NIKK – Norræna þekkingar- og upplýsingamiðstöðin um jafnréttismál (Nordisk Information för Kunskap om…
-

Erindi um opinn aðgang
Þann 13. maí 2019 var erindið Breytingar á birtingum fræðilegra skrifa: þróun á Norðurlöndunum flutt í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Erindið var um opinn aðgang og flutt af Ninu Karlstrøm á vegum NOH-HS. NOS-HS er samstarfsvettvangur í hug- og félagsvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna á Norðurlöndum. Nina Karlstrøm er yfir samninganefndinni um opinn aðgang í Noregi…
-

Við tökum vel á móti þér – Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára
Í tilefni af 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu á degi ljósmæðra, sunnudaginn 5. maí. Ljósmæðrafélag Íslands stendur að sýningunni í samstarfi við Kvennasögusafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Þann 2. maí árið 1919 komu 20 ljósmæður saman á heimili Þórdísar Elínar Jónsdóttur Carlquist ljósmóður og eiginmanns hennar, Alex Wilhelm…
-

Að vera kjur eða fara burt?
Á fæðingardegi Halldórs Laxness þann 23. apríl, var sýningin Að vera kjur eða fara burt? opnuð. Tilefnið er aldarafmæli Barns náttúrunnar, fyrstu skáldsögu Halldórs. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Gljúfrasteins, Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO og Forlagsins. Safnaráð og Vinafélag Gljúfrasteins styrkja verkefnið. Fjöldi fólks sótti opnunina. Ávörp fluttu auk landsbókavarðar, Pétur Gunnarsson rithöfundur, Unnur…
-

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hlýtur jafnlaunavottun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn fékk þann 24. apríl síðastliðinn heimild Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerkið. Formleg úttekt á jafnlaunakerfi safnsins var framkvæmd í mars 2019 af Vottun hf.. Jafnlaunavottunin er staðfesting á að safnið starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Heimild Vottunar hf. gildir til 10. apríl 2022.Jafnlaunakerfi Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nær…
-

Leikminjasafn flytur í Þjóðarbókhlöðu og Þjóðminjasafn
Í tilefni af flutningi Leikminjasafns Íslands í Þjóðarbókhlöðu og Þjóðminjasafn var efnt til móttöku í Þjóðarbókhlöðu föstudaginn 8. mars þar sem farið var yfir sögu Leikminjasafnsins og hvernig vinnu við safnkostinn er háttað í dag og hvernig fólk sér fyrir sér næstu skref. Erindi fluttu Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Margrét Hallgrímsdóttir og Lilja Árnadóttir frá…
-

Kristín Svava Tómasdóttir hlýtur viðurkenningu Hagþenkis 2018
Viðurkenning Hagþenkis var veitt þann 6. mars í Þjóðarbókhlöðunni við hátíðlega athöfn en hana hlaut Kristín Svava Tómasdóttir fyrir ritið Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar sem Sögufélag gaf út. Í ályktunarorðum Viðurkenningaráðsins sagði um ritið: „Brautryðjandaverk um sögu kláms og kynverundar á Íslandi sem byggir á afhjúpandi rannsóknum á vandmeðförnu efni.“ Jón…