-
Prentverkstæði og bókverkasmiðja í Safnahúsinu á Safnanótt
Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn tekur þátt í Safnanótt í kvöld á Vetrarhátíð í samstarfi við Safnahúsið og Þjóðminjasafnið kl. 18-22. Hið færanlega prentverkstæði Prent & vinir, verður í gamla lestrarsalnum í Safnahúsinu. Gestir geta prentað eigið bókverk á staðnum. Til að fá innblástur má sérsýninguna Bókverk á þriðju hæð Safnahússins. Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn sýnir þar ýmis áhugaverð dæmi…
-
Bókagjöf frá Ungverska menningarfélaginu á Íslandi
Fimmtudaginn 24. janúar afhenti Ungverska menningarfélagið á Íslandi safninu bókagjöf, bækur um sögu Ungverjalands og ungverskar bókmenntir, bæði á ensku og ungversku. Afhendingin var liður í röð viðburða sem Ungverska menningarfélagið stendur fyrir um þessar mundir og var sendiherra þeirra viðstaddur. Við afhendinguna var sungið og ungversk tónlist leikin á píanó.
-
Handritaskrá í 100 ár
Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá því að útgáfa hófst á skrá yfir handritasafn Landsbókasafns, en fyrsta heftið af skránni kom út í desember 1918. Í Tímanum 28. desember segir: „Handritasafnið hefir hingað til verið fólginn fjársjóður. Enginn hefir vitað til fulls hvað þar væri að finna. Afleiðingin [var] vitanlega sú að það…
-
Tímanna safn 1818-2018, fimmtudaginn 6. desember: „Hráefni og sögur – af Steindóri Sigurðssyni á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni“
Fimmtudaginn 6. desember mun Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og ljóðskáld, flytja erindið „Hráefni og sögur – af Steindóri Sigurðssyni á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni“ í fyrirlestraröðinni Tímanna safn sem haldin er í tilefni af 200 ára afmælis Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í erindi sínu mun Kristín Svava Tómasdóttir ræða Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sem vettvang…
-
Tímanna safn 1818-2018, fimmtudaginn 1. nóvember: „Bókasafn 21. aldar. Hlutverk bókasafns- og upplýsingafræðinga á okkar tímum“
Fimmtudaginn 1. nóvember mun Hilma Gunnarsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í upplýsingaþjónustu og notendafræðslu á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, halda erindið „Bókasafn 21. aldar. Hlutverk bókasafns- og upplýsingafræðinga á okkar tímum“ í fyrirlestraröðinni Tímanna safn sem haldin er í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í útdrætti erindisins segir: „Við getum átt fullkomið…
-
Málþing í minningu Halldórs Hermannssonar bókavarðar Fiskesafns í Þjóðarbókhlöðu 11.-12. október 2018
BÓKFRÆÐI – NORRÆN FRÆÐI – MENNING Málþing í minningu Halldórs Hermannssonar bókavarðar Fiskesafns við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu 11.-12. október næstkomandi. Málþingið er haldið í tilefni 200 ára afmælis Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í samstarfi við The Fiske Icelandic Collection við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og…
-
Frímerki með mynd af Þjóðarbókhlöðunni
Þann 15. febrúar s.l. gaf Íslandspóstur út frímerki með mynd af Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Hönnuður merkisins er Tryggvi T. Tryggvason grafískur hönnuður. Hægt er að kaupa fyrstadagsumslög og sjálflímandi arkir í öllum póstútibúum. Stakt frímerki kostar 180 kr. og dugar fyrir 50 grömm. Sjá nánar á vef…
-
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn 200 ára 28. ágúst
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er 200 ára um þessar mundir, en opinber afmælisdagur er talinn 28. ágúst. Safnið er því ein af elstu stofnunum landsins. Haldið er upp á afmælið allt árið og stendur safnið fyrir margvíslegum viðburðum, auk þess að taka þátt í viðburðum vegna 100 ára afmælis fullveldis Íslands. Á afmælisdaginn var almenningi…
-
Minningarganga í tengslum við sýningu um Guðrúnu Lárusdóttur 27. ágúst
Minningarganga í tengslum við sýningu um Guðrúnu Lárusdóttur í Þjóðarbókhlöðunni „En tíminn skundaði burt…“ verður farin mánudaginn 27. ágúst kl. 16 – á útfarardegi Guðrúnar Lárusdóttur og dætra hennar tveggja Guðrúnar Valgerðar og Sigrúnar Kristínar sem létust með henni. Gangan hefst kl. 16 við Ás, Sólvallagötu 23 í Reykjavík. Málfríður Finnbogadóttir leiðir gönguna. Farin verður sama…
-
Örsýning með frummyndum og bókverkum í Safnahúsi opin til mánudags 27. ágúst nk.
Meðal viðburða á Menningarnótt þann 18. ágúst 2018 var örsýningin Frummynd/fjölfeldi í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15. Sýningin sem er með frummyndum og bókverkum eftir myndlistarmennina Höllu Birgisdóttur, Ólöfu Björk Ingólfsdóttur og Steinunni Önnudóttur verður opin til mánudags 27. ágúst nk. Viðburðurinn er sá fyrsti í viðburðadagskrá Sjónbókaútgáfunnar In volumes í Lestrarsal Safnahússins veturinn 2018-19. Listamannabókum og bókverkum…
-
Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum 1.-10. ágúst 2018
Í síðustu viku heimsóttu Þjóðarbókhlöðuna nokkrir nemendahópar úr sumarskóla í handritafræðum sem Árnastofnun, Árnasafn í Kaupmannahöfn, Háskóli Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn standa að. Nemendurnir fengu inngangskynningu á handritasafni Landsbókasafns, um handrit síðari alda, tónlist í handritum og um þátt kvenna í handritum. Þá fengu þeir að skoða vel valin handrit úr handritasafninu. Loks…
-
Bókagjöf Sigrúnar Júlíusdóttur
Sigrún Júlíusdóttir fyrrum prófessor við HÍ og formaður stjórnar Rannsóknaseturs í barna og fjölskylduvernd afhenti Lbs-Hbs stóran hluta af bókasafni sínu þann 14. júní s.l. Um er að ræða sérfræðisafn á sviði félagsráðgjafar og endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni greinarinnar. Auk þess er úrval bóka eftir helstu höfunda á sviði félagsvísinda. Einnig er mikið af nýlegum og…