-
Ráðstefna Evrópskra landsbókavarða 4. og 5. júní 2018
32. ráðstefna Evrópskra landsbókavarða (CENL) var haldin á Íslandi dagana 4. og 5. júní 2018, auk þess sem hópurinn fór í dagsferð til Þingvalla og heimsótti Gljúfrastein, heimili Halldórs Laxness þann 3. júní.
-
Kristín Ómarsdóttir hlaut Maístjörnuna
Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaun fyrir ljóðabók sem kom út á árinu 2017. Verðlaunin, sem bera heitið Maístjarnan, voru afhent í annað sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag 29. maí. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2017 hlýtur Kristín Ómarsdóttir fyrir ljóðabók sína Kóngulær í sýningargluggum.
-
Sýning um Guðrúnu Lárusdóttur
Sýning um Guðrúnu Lárusdóttur var opnuð í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 9. maí að viðstöddu fjölmenni. Við opnun fluttu ávörp Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, dr. María Ágústsdóttir fyrir hönd afkomenda Guðrúnar og Málfríður Finnbogadóttir höfundur sýningarinnar. Sýningin er á dagskrá fullveldisafmælisins.
-
Bókagjöf – Ole Lokensgard
Mánudaginn 7. maí heimsótti Ole Lokensgard Lbs-Hbs og færði safninu að gjöf handgerða bók með ljóðum sínum og myndum. Bókin er gerð í 100 eintökum með 17 vatnslitamyndum. Faðir Ole, Dr Paul Holbrook, var sendikennari í amerískum bókmenntum við Háskóla Íslands 1957-58. Þá var Ole 12 ára og gekk í Austurbæjarskóla. Bókina gefur hann safninu…
-
Tímanna safn 1818-2018. Erindi Einars Sigurðssonar 3. maí
Fimmtudaginn 3. maí mun Einar Sigurðsson, fv. landsbókavörður, flytja erindið „Sameining safna og ný bygging“ í fyrirlestraröðinni Tímanna safn sem haldin er í tilefni af 200 ára afmælis Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í útdrætti erindisins segir: „Farið er yfir aðdraganda þess að Landsbókasafn Íslands og Háskólabókasafn voru sameinuð, sem og hina hægu framvindu þess að…
-
Tímanna safn – opnun sýningar í tilefni 200 ára afmælis safnsins
Á síðasta vetrardag, þann 18. apríl, var opnuð stór sýning um sögu safnsins í 200 ár sem ber heitið Tímanna safn. Á sýningunni er stiklað á stóru í helstu áföngum í sögu safnsins, allt frá hugmynd til þróunar safnsins á hinum ýmsu stöðum eins og Dómkirkjuloftinu, í Alþingishúsinu, Lærða skólanum og Safnahúsinu til sameiningar við Háskólabókasafnið…
-
Tímanna safn 1818-2018. Erindi Péturs H. Ármannssonar 5. apríl
Fimmtudaginn 5. apríl mun Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, flytja erindið „„Veglegasta og vandaðasta steinhús þessa lands“ – Safnahúsið frá sjónarhóli íslenskrar húsagerðarsögu“ í fyrirlestraröðinni Tímanna safn sem haldin er í tilefni af 200 ára afmælis Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í útdrætti erindisins segir: „Safnahúsið við Hverfisgötu var helsta opinbera bygging…
-
Verkefnavaka 2018 í Þjóðarbókhlöðu – dagskrárliðum streymt úr fyrirlestrasal
Streymi frá dagskrárliðum Verkefnavökunnar í fyrirlestrasal Verkefnavaka 2018 Þjóðarbókhlaðanfimmtudaginn 22. mars kl. 17:00–22:00 Unnið í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap – gegn frestunarpest og ritkvíða Dagskrá í Þjóðarbókhlöðunni fyrir alla stúdenta Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Hvetjandi fræðsla í boði.Leiðsögn sérfræðinga um allt það…
-
Sýning um Eddu II – Líf guðanna eftir Jón Leifs
Þann 14. mars var opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og afmælisnefnd fullveldisársins í tilefni af því að þann 23. mars ætlar Sinfóníuhljómsveit Íslands að frumflytja óratoriuna Edda II: Líf guðanna eftir Jón Leifs. Árni Heimir Ingólfsson tók saman sýningartextann og flutti ávarp við opnunina ásamt landsbókaverði. Á sýningunni eru nótnahandrit að…
-
Reykjavík árið 1918: sjónarhorn persónulegra heimilda
Á Hugvísindaþingi á laugardag mun starfsfólk handritasafns og Kvennasögusafns segja frá heimildunum sem eru nýttar í tengslum við verkefnið „R1918.“ Verkefnið, sem unnið er í samstarfi við Listahátíð og RÚV, felst einkum í upplestri á heimildum á borð við dagbækur og sendibréf frá árinu 1918 sem varðveittar eru á Landsbókasafni (handritasafni og Kvennasögusafni) þar sem…
-
Félag um átjándu aldar fræði – málþing um Goethe
Johann Wolfgang von Goethe (1749–1832) – stórskáld og vísindamaður Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing, sem halda átti 10. febrúar, en fresta þurfti vegna slæmrar veðurspár fyrir þann dag, undir yfirskriftinni Johann Wolfgang von Goethe (1749–1832) – stórskáld og vísindamaður í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 24. febrúar 2018. …
-
Safnahús á safnanótt
Landsbókasafnið tekur þátt í safnanótt með því að Gunnar Marel Hinriksson sérfræðingur á handritasafni segir frá Íslandskortum Guðbrands biskups og galdrahandritum í Safnahúsinu í kvöld, 2. febrúar, á milli kl. 20 og 21. Auk Gunnars verða þar aðrir sérfræðingar frá söfnunum sem eiga verk á sýningunni Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim í Safnahúsinu. Frá…