-
Einkaskjalasafn Nóbelskáldsins
Einkaskjalasafn Nóbelskáldsins Haldórs Laxness er varðveitt á Handritasafni Landsbókasafns Íslands. Þar má meðal annars finna margar gerðir af verkum hans, allt frá upprunalegu handriti til lokaútgáfu. Bragi Þorgrímur Ólafsson, fagstjóri handritasafns, segir í viðtali við nemanda við Háskóla Íslands að gaman sé að geta skoðað hvernig Halldór þróaði verk sín smám saman. Sjá viðtal
-
Nýr upplýsingavefur um opinn aðgang
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur nú aftur tekið við vefnum openaccess.is/opinnadgangur.is og mun sjá um rekstur hans í framtíðinni. Vefnum er ætlað að vera upplýsingaveita um allt sem viðkemur opnum aðgangi bæði á Íslandi sem og erlendis. Ýmsar upplýsingar um opinn aðgang munu birtast á vefnum, sér í lagi um þróun mála erlendis, en ýmislegt…
-
Tímanna safn 1818 – 2018. Erindi forseta Íslands 11. janúar
Árið 2018 fagnar Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn því að 200 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni stendur safnið fyrir hádegisfyrirlestraröð þar sem fjallað verður um sögu og hlutverk safnsins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opnaði fyrirlestraröðina með erindinu „Skjöl skapa þjóð. Landsbókasafnið og mótun minninga í aldir tvær“ í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu þann 11.…
-
Undirritun yfirlýsingar um opinn aðgang – OA2020
Þann 9. nóvember 2017 undirritaði Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Expression of Interest in the Large-scale Implementation of Open Access to Scholarly Journals. Yfirlýsingin byggir á Berlínaryfirlýsingunni um opinn aðgang (2003), sem safnið undirritaði árið 2012, og tekur þannig undir að opinn aðgangur sé að rannsóknaniðurstöðum sem unnar eru fyrir opinbert fé, auk þess sem menningarstofnanir…
-
200 ár frá stofnun Landsbókasafns
Árið 2018 fagnar Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn því að 200 ár eru liðin frá stofnun þess. Af því tilefni stendur safnið fyrir hádegisfyrirlestraröð þar sem fjallað verður um sögu og hlutverk þess í víðu samhengi. Meðal fyrirlesara verða fyrrverandi og núverandi starfsmenn safnsins, rithöfundar, arkitektar, fræðimenn, myndlistarfólk og fleiri góðir gestir. Guðni Th. Jóhannesson, forseti…
-
ImageQuest myndabanki Britannica í tilraunaaðgangi
Vakin er athygli á tilraunaaðgangi að ImageQuest myndabanka Encyclopædia Britannica. Aðgangurinn er í landsaðgangi og er öllum sem tengjast Internetinu í gegnum íslenskar netveitur frjálst að nota myndirnar. ImageQuest verður aðgengilegt til 31. janúar 2018.
-
Nýjung: Netspjall safnsins
Hafðu samband er nýr tengill (í leiðarstiku) á vef safnsins. Þar er í boði: Netspjall við upplýsingafræðinga Upplýsingar um símanúmer og netföng Tengill á bókunarvél fyrir hópvinnuherbergi Tenglar á ýmis eyðublöð
-
Vika opins aðgangs – fræðslufundir
Alþjóðleg vika opins aðgangs er dagana 23. – 29. október 2017 Þema vikunnar: „Open in order to…“ sem útleggst á íslensku: „Opið til þess að…“. Í tilefni vikunnar var kynning á stefnu Háskóla Íslands um opinn aðgang, ORCID auðkennum og varðveislusafninu Opnum vísindum þriðjudag 24. október 2017, kl. 12:20 – 13:00 á Háskólatorgi í stofu 103. Á…
-
Félag um átjándu aldar fræði – málþing
Nýjar rannsóknir á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Nýjar rannsóknir á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 21. október 2017. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15.…
-
Sýning og blysför til heiðurs Benedikt Gröndal
Föstudaginn 6. október, á fæðingardegi Benedikts Gröndal, var opnuð í safninu sýning um Benedikt Gröndal í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Dagskráin hófst í húsi Gröndals í Fishersundi þar sem Þórarinn Eldjárn sagði frá blysför sem farin var að húsi Gröndals á áttræðisafmæli hans árið 1906, en nemendur hans úr Lærða skólanum fóru þá blysför.…
-
Leiðsögn sérfræðings Landsbókasafns í Safnahúsi
Sunnudaginn 24. september kl. 14 mun Gunnar Marel Hinriksson, sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, veita leiðsögn um sýninguna Sjónarhorn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Gunnar mun sérstaklega fjalla um þau verk á sýningunni sem tengjast galdri og 17. öld en einnig mun Jón lærði Guðmundsson koma við sögu. Jón er í sviðsljósinu nú um stundir…
-
Samningur um afhendingu á veggspjöldum frá Smekkleysu
Þann 7. september afhenti Ásmundur Jónsson fyrir hönd Smekkleysu S.M. ehf. Landsbókasafni til eignar og varðveislu veggspjöld úr fórum Smekkleysu. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Ásmundur undirrituðu afhendingarsamning og opnuð var sýning á veggspjöldum og öðru útgáfuefni frá 30 ára starfi Smekkleysu og félaga sem störfuðu í aðdraganda stofnunar fyrirtækisins. Við opnun sýningarinnar fluttu Ingibjörg…