-
Starfsemi og safnkostur Tónlistarsafns Íslands flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns
Sú starfsemi sem hefur verið á vegum Tónlistarsafns Íslands í Kópavogi og safnkostur þess, verða flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á grundvelli samkomulags sem Kópavogsbær, söfnin og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér. Auk þess sem safnkostur og verkefni Tónlistarsafnsins verða flutt til ofangreindra safna er í samkomulaginu fjallað um…
-
Sýning um Sigvalda Kaldalóns opnuð
Sýning um Sigvalda Kaldalóns var opnuð í Þjóðarbókhlöðu þann 24. maí. Sýningin er unnin með styrk frá Minningarsjóði Sigvalda Kaldalóns og er í samstarfi sjóðsins, Snjáfjallaseturs og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Við opnun flutti Hallveig Rúnarsdóttir sópran nokkur laga Kaldalóns við píanóundirleik Hrannar Þráinsdóttur. Gunnlaugur A. Jónsson flutti ávarp fyrir hönd Kaldalónsniðja og Sigvaldi…
-
Sigurður Pálsson hlaut Maístjörnuna
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Rithöfundasamband Íslands og veita ný verðlaun fyrir ljóðabók sem kom út á árinu 2016. Verðlaunin, sem bera heitið Maístjarnan, voru afhent í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 18. maí á Degi ljóðsins. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2016 hlýtur Sigurður Pálsson fyrir ljóðabók sína Ljóð muna rödd Í…
-
Maístjarnan – ný ljóðabókaverðlaun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Rithöfundasamband Íslands hafa stofnað til nýrra ljóðabókaverðlauna sem bera heitið Maístjarnan og verða veitt árlega, í fyrsta sinn 18. maí 2017. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Kristín Helga Gunnarsdóttir formaður RSÍ undirrituðu samstarfssamning um ljóðaverðlaunin í Gunnarshúsi um leið og fyrstu tilnefningar til Maístjörnunnar voru kynntar. Tilnefndar bækur eru: Eyþór Árnason…
-
Varðveisla fréttamiðla – Ráðstefna í Þjóðarbókhlöðu
Dagana 27. og 28. apríl 2017 verður haldin í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni ráðstefna á vegum IFLA, sem eru alþjóðasamtök bókasafna og bókavarðafélaga, þar sem fjallað verður um söfnun, varðveislu, aðgengi og miðlun á fréttum og fréttatengdu efni. Fyrirlesarar og þátttakendur koma frá þjóðbókasöfnum, háskólabókasöfnum, útgefendum dagblaða og fréttaveitum. Fjallað verður m.a. um reynslu notenda…
-
Svipþyrping – Svipmyndir úr 200 ára sögu Hins íslenska bókmenntafélags
Hið íslenska bókmenntafélag frumsýndi í fyrirlestrasal safnsins fimmtudaginn 6. apríl myndbandið Svipþyrping – Svipmyndir úr 200 ára sögu Hins íslenska bókmenntafélags sem það lét gera í tilefni af 200 ára afmæli félagsins. Efni myndbandsins er fengið úr dagskrá sem flutt var á afmælishátíð Bókmenntafélagsins í Ráðhúsi Reykjavíkur 19. nóvember 2016. Sýning um sögu Bókmenntafélagsins stendur…
-
Prufuaðgangur að ProQuest Ebook Central
Opnaður hefur verið prufuaðgangur á háskólanetinu að ProQuest Ebook Central, sjá https://ebookcentral.proquest.com/lib/landsbokasafn, þar sem veittur er aðgangur að rafbókum með efni á flestum fræðasviðum Háskóla Íslands. Sjá kynningarmynd um ProQuest Ebook Central hér ProQuest Ebook Central verður aðgengilegt í tilraunaáskrift Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns til 20. maí nk.
-
Kínversk temenning í safninu
Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi, flutti lokaerindi fyrirlestraraðarinnar um samskipti Íslands og Kína þriðjudaginn 28. mars og kallaði hann erindi sitt „How to drink Chinese Tea and Tea ceremony “ og var erindið flutt á ensku. Sýnd var stutt heimildarmynd um kínverska temenningu og þau Kailiang Liu og Hinrik Hólmfríðarson Ólason framkvæmdu te-athöfn. Viðburðurinn…
-
Gögn Kínversk-íslenska menningarfélagsins afhent
Þriðjudaginn 28. mars afhenti Kínversk-íslenska menningarfélagið safninu til varðveislu tvær fundargerðabækur úr fórum félagsins. Um er að ræða bók með fundargerðum frá upphafi stofnunar þess 20. október 1953 fram til upphafs 9. áratugarins. Þá er einnig um að ræða smærri bók með nokkrum fundargerðum. Arnþór Helgason formaður félagsins og Kristján Jónsson, varaformaður afhentu gögn félagsins. Þórhallur…
-
Bókagjöf tengd Kína
Unnur Guðjónsdóttir afhenti safninu í tengslum við sýninguna Kína-Ísland þrjár bækur um Kína. Um er að ræða eintak af bókinni Kína – æfintýralandið eftir Oddnýju Sen, áritað af höfundi til Kristmanns Guðmundssonar rithöfundar. Einnig eintak af bókinni Kynnisför til Kína eftir Jakob Straume sem Ólafur Ólafsson kristniboði þýddi og loks einstaklega fallega bók um kínverska…
-
Verkefnavaka 2017 í Þjóðarbókhlöðu fimmtudaginn 16. mars kl.17-22
Verkefnavaka 2017 Þjóðarbókhlaðan fimmtudaginn 16. mars kl. 17:00–22:00 Unnið í verkefnum eina kvöldstund í góðum félagsskap – gegn frestunarpest og ritkvíða Dagskrá í Þjóðarbókhlöðunni fyrir alla stúdenta Háskóla Íslands sem eru með verkefni í smíðum, smá eða stór, námskeiðsverkefni eða lokaverkefni. Hvetjandi fræðsla í boði. Leiðsögn sérfræðinga um allt það sem viðkemur verkefnaskrifum Vinnustofur og…
-
Kína og Ísland – samskipti vinaþjóða – fyrirlestraröð í Þjóðarbókhlöðu
Nú stendur yfir fyrirlestraröð í Þjóðarbókhlöðu sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn stendur að ásamt Kínverska sendiráðinu, Konfúsíusarstofnuninni Norðurljósum og Kínversk íslenska menningarfélaginu um samskipti Íslands og Kína. Fyrirlestraröðin verður í hádeginu næstu þriðjudaga og tengist sýningu í Þjóðarbókhlöðu, sjá: https://landsbokasafn.is/index.php/news/977/56/KiNA-OG-iSLAND-samskipti-vinathjoda Dagskrá fyrirlestraraðarinnar er sem hér segir: 17. janúar kl. 12-13: Egill Helgason fjölmiðlamaður kynnti „14 ár…