-
Viðurkenning Hagþenkis 2016
Viðurkenning Hagþenkis 2016 var veitt í Þjóðarbókhlöðunni við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 1. mars en hana hlaut Viðar Hreinsson fyrir bókina Jón lærði og náttúrur náttúrunnar sem Lesstofan gefur út. Í ályktunarorðum Viðurkenningaráðsins sagði: Með nærfærnum hætti er fjallað um ævintýralegt lífshlaup manns á mörkum forneskju og nútímafræða í samhengi við evrópska vísindasögu. Viðurkenningin felst í…
-
Félag um átjándu aldar fræði
Af náttúruvísindum á upplýsingaröld Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Af náttúruvísindum á upplýsingaröld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 11. febrúar 2017. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Náttúruvísindi og frumspeki: Upplýsingin og Christian…
-
Handrit Ísólfs Pálssonar afhent Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
Föstudaginn 3. febrúar voru handrit Ísólfs Pálssonar (1871-1941) afhent Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Ísólfur var organisti við Stokkseyrarkirkju á árunum 1893-1912 og stjórnaði þar jafnframt kórum og kvartettum. Hann lærði hljóðfærasmíði og stillingar í Danmörku og starfaði við þá grein eftir að hann fluttist til Reykjavíkur árið 1912. Ísólfur samdi fjölmörg vinsæl sönglög um ævina…
-
Rafbókasafnið opnað
Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur í samstarfi við Landskerfi bókasafna opnað Rafbókasafnið á léninu http://rafbokasafnid.is / http://rafbókasafnið.is Markmið með Rafbókasafninu er að bjóða almenningi upp á aðgang að fjölbreyttu úrvali raf- og hljóðbóka. Fyrst um sinn verður þjónusta Rafbókasafnsins einungis fyrir lánþega Borgarbókasafnsins en gert er ráð fyrir að síðar muni fleiri almenningsbókasöfn bjóða lánþegum sínum upp á þjónustu Rafbókasafnsins.…
-
Ebsco gagnasöfn í tilraunaaðgangi
Vekjum athygli á tilraunaaðgangi að ýmsum gagnasöfnum frá Ebsco fyrstu þrjá mánuði ársins 2017, aðeins á háskólanetinu. Það skal áréttað að tilraunaaðgangurinn er viðbót við það efni sem fyrir er frá Ebsco. Tengill á gagnasöfnin eru efst á leitarviðmóti Ebsco sem er á vef Landsaðgangs, www.hvar.is og undir Rafræn gögn á vef Landsbókasafns áwww.landsbokasafn.is . Einnig er hægt að…
-
Scopus í kostuðum landsaðgangi
Samningar hafa náðst um kostaðan landsaðgang að gagnasafninu Scopus og miðast aðgangurinn við IP-tölur íslenskra netveitna og er því aðgangur á landsvísu. Scopus er tilvísanagagnasafn (líkt og Web of Science) með efni frá öllum fræðasviðum vísinda úr meira en 21 þús. ritrýndum vísinda- og fræðiritum allt frá árinu 1970, auk rafbóka og ráðstefnurita. Aðgangur er…
-
Predikanir og Passíusálmar frá fyrri öldum
Stór hluti af þeim gögnum sem berast handritasafni á hverju ári eru einkaskjalasöfn frá tuttugustu öld. Yfirleitt er um að ræða dagbækur og bréfasöfn einstaklinga eða fundargerðabækur og önnur gögn félagasamtaka frá miðbiki aldarinnar eða þar um bil. Af og til berast þó eldri gögn til safnsins. Í desember bárust þannig líkræður og predikanir úr…
-
Málþing: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri: Tilurð, samhengi og söfnun
Málþing haldið í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Þjóðarbókhlöðu 14. janúar kl. 12:30–17:00. Dagskrá: 12:30–12:45 Kynning á rannsóknarverkefninu „Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri: Tilurð, samhengi og söfnun 1864-2014″ 12:45–13:15 Terry Gunnell: Tilgangur þjóðsagnasöfnunar Jóns Árnasonar 13:15–13:45 Rósa Þorsteinsdóttir: Hver er hvurs og…
-
Stefna um opinn aðgang
Ný stefna safnsins um opinn aðgang var samþykkt af framkvæmdaráði 28. nóvember síðastliðinn. Safnið gerðist aðili að Berlínaryfirlýsingunni árið 2012. Í stefnunni kemur fram að Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn styður opinn aðgang að efni og gögnum á Internetinu. Safnið kemur með virkum hætti að því að efla opinn aðgang að menningararfi þjóðarinnar, rannsóknarniðurstöðum og fræðilegu efni…
-
Áttaviti fyrir Tón- og myndsafn
Í dag 1. desember á Landsbókasafn Íslands–Háskólabókasafn afmæli og af því í tilefni birtum við nýjan Áttavita um Tón- og myndsafn http://libguides.landsbokasafn.is/content.php?pid=661665
-
Gamansemi Íslendinga á átjándu og nítjándu öld
Gamansemi Íslendinga á átjándu og nítjándu öld Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Gamansemi Íslendinga á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 26. nóvember 2016. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15. Flutt verða fjögur erindi sem hér…
-
Námsbraut í Upplýsingafræði 60 ára
Námsbraut í Upplýsingafræði verður 60 ára háskólaárið 2016-2017. Þeim tímamótum verður fagnað með veglegri ráðstefnu sem haldin verður í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu föstudaginn 18. nóvember, kl. 9.00 til 17.00. Dagskrá Veggspjaldasýning: meðan á ráðstefnunni stendur munu doktorsnemar í upplýsingfræði kynna rannsóknir sínar á veggspjaldasýningu framan við fyrirlestrasalinn. 9.00-9.30 Setning: Ágústa Pálsdóttir, prófessor og formaður…