-
Íslensk málnefnd veitir safninu viðurkenningu
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni veitt viðurkenning Íslenskrar málnefndar fyrir vefina Tímarit.is og Bækur.is Á málræktarþingi sem Íslensk málnefnd stóð fyrir þriðjudaginn 15. nóvember 2016 og bar yfirskriftina Tungan og netið voru veittar viðurkenningar nefndarinnar og hlaut Landsbókasafn viðurkenningu fyrir vefina Tímarit.is og Bækur.is. Kristinn Sigurðsson, yfirmaður upplýsingatækni, og Örn Hrafnkelsson, sviðsstjóri varðveislu og stafrænnar endurgerðar,…
-
Scopus gagnasafnið kynnt
Þriðjudaginn 8. nóvember var haldinn kynningarfundur um gagnasafnið Scopus í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu.Gestir fundarins hlýddu á kynningu Guillaume Warnan frá Elsevier á gagnasafninu og Sólveig Þorsteinsdóttir sagði frá reynslu Landspítala og Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands af Scopus. Birgir Björnsson umsjónarmaður Landsaðgangs að rafrænum áskriftum og Guillaume Warnan
-
Listaverk í Þjóðarbókhlöðu
Listaverkin í safninu koma úr ýmsum áttum. Verkið hér að ofan er Haustkvöld/Engjafólk eftir Gunnlaug Scheving1904-1972. Sum verkin koma frá Landsbókasafni Íslands eða Háskólabókasafni frá fyrri tíð þessara safna en önnur eru nýrri viðbætur. Margar gjafir bárust í tilefni af stofnun nýs safns, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, við sameiningu eldri safnanna tveggja árið 1994. Nokkur verk eru í láni…
-
Upptaka af málþingi um opin vísindi
Þann 15. september síðastliðinn var málþing um opin vísindi í Þjóðarbókhlöðu. Málþingið var tekið upp og er hægt að horfa á það hér en einnig á upptökuvef HÍ.
-
Dagbækur dr. Áskels Löve afhentar Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
Í tilefni af aldarafmæli dr. Áskels Löve prófessors í grasafræði afhentu afkomendur hans Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni dagbækur sem Áskell hélt frá 18 ára aldri fram undir ævilok, frá 1935 til 1989. Alls eru bækurnar 35 talsins auk nokkurra lausra blaða frá vetrinum 1945-46. Áskell lauk stúdentsprófi 1937 frá Menntaskólanum í Reykjavík og doktorsprófi í…
-
Skýrsla um innleiðingu RDA-skráningarreglna
Út er komin skýrsla um innleiðingu RDA-skráningarreglnanna á Íslandi frá 1. janúar 2015 til 20. maí 2016. Höfundur skýrslunnar er Magnhildur Magnússtjóri sem var verkefnisstjóri innleiðingarteymisins. Skýrsluna er hægt að nálgast á Rafhlöðunni, hér.
-
Fagurfræði óvissunnar: Snorri Hjartarson og John Keats
Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, heldur erindi í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 5. október kl. 12 sem hann nefnir „Fagurfræði óvissunnar: Snorri Hjartarson og John Keats“. Erindið er hluti af dagskrá Lestrarhátíðar í Reykjavík. John Keats (1795–1821) setti fram hugmyndir um skáldskap sem má hafa til hliðsjónar við lestur á ljóðum…
-
Tímarit frá Royal Society of Chemistry
Búið er að opna fyrir prufuaðgang á Háskólanetinu í tvo mánuði að tímaritum Royal Society of Chemistry „Gold journal package“ http://pubs.rsc.org/en/journals?key=title&value=current. Um er að ræða rúmlega 40 tímarit aðgengileg frá upphafi. Hér má sjá nánari upplýsingar um tímaritin http://www.rsc.org/journals-books-databases/about-journals/#journal-categories.
-
Málþing um opin vísindi 15. september
Málþing 15. september kl. 15:00-17:40 – Opnun varðveislusafns opinvisindi.is Kl. 15:00 Setning og opnun vefs Ingibjörg Sverrisdóttir, landsbókavörður, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni: Opin vísindi á Íslandi. Opnun vefsins opinvisindi.is. Kl. 15:10 Sigurgeir Finnsson, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni: Kynning á vefnum opinvisindi.is Kl. 15:20 Dr. Kenneth D. Crews, Attorney at Gipson Hoffman & Pancione, Los Angeles, California,…
-
Bókasafnsdagurinn
Í dag, þann 8. september er bókasafnsdagurinn og einnig alþjóðlegur Dagur læsis. Af því tilefni eru bækur gefnar og boðið upp á dagskrá í fyrirlestrasalnum. Þema bókasafnsdagsins er „Lestur er bestur út fyrir endimörk alheimsins.“ Dagskrá Landsbókasafns í dag: kl. 08:15 Gjafahlaðborðið okkar víðfræga með fjölbreyttu efni. kl.. 11:20 Sýning á bíómyndinni StarWars: A New…
-
Ritver í Þjóðarbókhlöðu
Ritverið er samvinnuverkefni ritveranna á Hugvísindasviði og Menntavísindasviði. Veitt er alhliða ráðgjöf við fræðileg skrif. Viðtalstímar í september: Mánud. lokað Þriðjud. 10-13 Miðvikud. 13-16 Fimmtud. 12-16 Föstud. 13-16 Hægt að bóka viðtalstíma á http://ritver.hi.is/ og http://vefir.hi.is/ritverhugvisindasvids/
-
Manfreð Vilhjálmsson arkitekt
Grein um Manfreð Vilhjálmsson arkitekt Þjóðarbókhlöðu birtist í veftímaritinu T-RANSFER. Global Architecture Platform http://www.transfer-arch.com . Greinina skrifaði Halldóra Arnardóttir.