-
Geirfuglinn – sérsýning í Safnahúsinu
Þann 16. júní var opnuð sérsýning um geirfuglinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu en í sérsýningarrými hússins skiptast á sýningar á vegum þeirra sex stofnana sem standa að sýningunni Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim. Sýningin er samstarfsverkefni Náttúruminjasafns Íslands og Ólafar Nordal myndlistarmanns í samvinnu við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Náttúrufræðistofnun Íslands og nefnist Geirfugl…
-
Bréf Nönnu Boëthius afhent Landsbókasafni
Miðvikudaginn 18. maí afhenti Elisabet Björklund bréfasafn ömmu sinnar, Nönnu Boëthius, til handritasafns Landsbókasafns Íslands. Nanna var fyrri eiginkona Sigurðar Nordal. Í bréfasafni hennar eru fjölmörg bréf frá Sigurði en einnig frá Björgu C. Þorláksson og Einari H. Kvaran. Lars Lönnroth fv. prófessor skrifaði grein um samband Sigurðar og Nönnu nýlega í tímaritið Scripta Islandica…
-
Rafrænn aðgangur að International Journal of Heritage Studies á háskólanetinu
Tímaritið International Journal of Heritage Studies er nú aðgengilegt í rafrænum aðgangi á háskólanetinu frá og með árgangi 1997. International Journal of Heritage Studies er þverfaglegt, ritrýnt tímarit á sviði þjóðfræði, mannfræði og safnafræði, gefið út af Taylor og Francis. Skoða ritið
-
Opnun sýningar: Bókmenntafélagið 200 ára
Hið íslenska bókmenntafélag 200 ára afmælissýning í Þjóðarbókhlöðu Fimmtudaginn 12. maí klukkan 14:00 var opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska bókmenntafélags að viðstöddu fjölmenni. Ávörp fluttu Jón Sigurðsson forseti Hins íslenska bókmenntafélags, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt opnaði sýninguna. Boðið var…
-
Skemman í Áttavitanum
Áttaviti hefur verið útbúinn um Skemmuna og þar er m.a. að finna leiðbeiningar varðandi skil í Skemmuna, sjá:
-
Íslensk bóksaga – erindi á miðvikudag
Miðvikudaginn 4. maí mun Gunnar Örn Hannesson, sagnfræðingur og skjalavörður við Þjóðskjalasafn Íslands, flytja erindið „Um vatnsmerki í nokkrum íslenskum pappírsbréfum frá 17. öld“ í fyrirlestrarröðinni Íslensk bóksaga sem fram fer í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45. Í útdrætti erindisins segir: „Elstu vatnsmerki sem sögur fara af eru talin vera frá seinni…
-
Oxford Music Online í stofnanaaðgangi
Vakin er athygli á að eftirfarandi bókasöfn hafa gert stofnanasamning um aðgang að gagnasafninu Oxford Music Online: Landsbókasafn Íslands – HáskólabókasafnBókasafn HafnarfjarðarBókasafn ListaháskólansBókasafn RÚV Oxford Music Online er nú aðgengilegt á öllum IP-tölum þessara bókasafna en ekki í landsaðgangi eins og áður var.
-
Opnun sýningar: Inn á græna skóga
Föstudaginn 22. apríl kl. 16 var opnuð sýning á ljóðum Snorra Hjartarsonar í Þjóðarbókhlöðunni. Hún ber heitið Inn á græna skóga. Um leið var fagnað 3. útgáfu Forlagsins á Kvæðasafni skáldsins. Fjölmenni var við opnun þar sem Páll Valsson bókmenntafræðingur afhenti Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni gögn úr fórum Snorra Hjartarsonar. Kór Neskirkju flutti „Hvíld“, lag Huga…
-
Prufuaðgangur að tímaritum og rafbókum frá GeoScienceWorld
Búið er að opna fyrir prufuaðgang á Háskólanetinu að tímaritum http://www.geoscienceworld.org/ og rafbókum http://ebooks.geoscienceworld.org/ frá GeoScience World. Um er að ræða aðgang að 146 þúsund greinum úr 46 tímaritum á sviði jarðvísinda aftur til 1920, og 17 þúsund bókarköflum úr 1.050 bókum frá virtustu útgefendum heims á þessu sviði. Aðgangurinn er til og með 30.…
-
IICP Web Archiving Conference 2016
Aðalfundur IIPC (International Internet Preservation Consortium) á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er hafinn á Radisson Blu Hotel Saga í Reykjavík. Aðalfundur IIPC árið 2016 í Reykjavík stendur dagana 11. og 12. apríl en þessa má geta að Landsbókasafnið er aðili að IIPC og á fulltrúa í stjórn samtakanna. Alþjóðleg ráðstefna IIPC (International Internet Preservation Consortium) um…
-
Íslensk bóksaga – erindi
Miðvikudaginn 6. apríl mun Ingibjörg Eyþórsdóttir, doktorsnemi í íslenskum bókmenntum, flytja erindið „Tvær sálmabækur úr hvelfingu Bókhlöðunnar – Lbs 524 4to og Lbs 1927 4to eða Hymnodia Sacra“ í fyrirlestrarröðinni Íslensk bóksaga sem fram fer í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45. Í útdrætti erindisins segir: Margar sálmabækur eru varðveittar í handritasafni Landsbókasafns.…
-
10. ársfundur Landsaðgangs, 18. mars 2016
Eiríkur Rögnvaldsson prófessor spjallaði um opinn aðgang út frá sjónarmiði háskólakennara á ársfundi Landsaðgangs að rafrænum áskriftum sem var haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu, föstudaginn 18. mars kl. 15.00 Dagskrá fundarins: 1. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor spjallar um opinn aðgang frá sjónarmiði háskólakennara2. Fundargerð 9. ársfundar3. Starf stjórnarnefndar4. Ársskýrsla 20155. Ársreikningur 20156. Greiðsluskipting…