-
Sveinspróf í bókbandi
Hér á Landsbókasafni tóku þau Haukur Hallsteinsson Bára Steinunn Jónasdóttir og Kristin Søberg Henriksen hluta af sveinsprófi sínu í bókbandi. Þau voru undir dyggri handleiðslu Stefáns Jóns yfirbókbindara safnsins, sem kenndi þeim einnig í náminu.
-
Notkun Ebenezers Hendersons á Gamla testamentinu í Ferðabók sinni
Í tengslum við sýningu í safninu í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags verður erindi í fyrirlestrasal safnsins miðvikudaginn 9. mars 2016, kl. 12:10- 12:40. Sigfús Jónasson guðfræðinemi flytur erindið „Gullni ljóminn kemur úr norðrinu – Notkun Ebenezers Hendersons á Gamla testamentinu í Ferðabók sinni“. Málstofustjóri verður Þuríður Björg Wium Árnadóttir, guðfræðinemi. Boðið…
-
Verkefnavaka HÍ í Þjóðarbókhlöðunni
Verkefnavaka í Háskóla Íslands verður haldin í Þjóðarbókhlöðunni fimmtudaginn 3. mars 2016 kl. 17-22. Ritver Menntavísindasviðs, Ritver Hugvísindasviðs, Bókasafn Menntavísindasviðs, Náms- og starfsráðgjöf HÍ og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn standa að verkefnavökunni en tilgangur hennar er að aðstoða nemendur HÍ í verkefnavinnu.
-
Íslensk bóksaga – erindi á miðvikudag
Miðvikudaginn 2. mars mun Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands flytja erindið „Bændur skrifa kóngi. Heimildasafn Landsnefndarinnar fyrri 1770–1771“ í fyrirlestrarröðinni Íslensk bóksaga sem fram fer í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45. Í útdrætti erindisins segir: Landsnefndin fyrri var nefnd þriggja manna sem send var hingað til lands á vegum konungs…
-
Gegnir.is í nýjum búningi
Mánudaginn 15. febrúar nk. mun vefurinn gegnir.is verða fluttur yfir í vefinn leitir.is og verður öllum þeim sem fara inn á gegnir.is vísað inn í nýja útlitið á leitir.is vefnum. Á vefnum leitir.is verða tveir nýir hnappar:Nýr hnappur: „Leit í Gegni“: Leit er takmörkuð við gögn úr Gegni.Nýr hnappur: „Leit í leitir.is“: Leit í öllum…
-
Nýjar þýðingar íslenskra bókmennta í Íslandssafni
Nýjar þýðingar íslenskra bókmennta eru komnar í Íslandssafn. Höfundar eru m.a. Ragnar Jónsson, Yrsa Sigurðardóttir, Jón Kalman Stefánsson, Jón Gnarr, Þórarinn Leifsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Steinar Bragi, Einar Már Guðmundsson og Sjón.
-
Landskerfi í hópi framúrskarandi fyrirtækja
Landskerfi bókasafna hf. eru á lista sem CreditInfo tekur saman yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2015. 682 fyrirtæki uppfylltu þau skilyrði sem fyrirtækið setur fyrir inngöngu á listann. Sjá nánar frétt á vef Landskerfa.
-
Prufuaðgangur að The Digital Loeb Classical Library
Þann 27. janúar sl. var opnað fyrir 60 daga prufuaðgang að The Digital Loeb Classical Library http://www.loebclassics.com sem er safn bókmennta á grísku og latínu. Aðgangurinn er fyrir notendur Landsbókasafns og Háskóla Íslands þ.e. opið er fyrir aðgang á háskólasvæðinu. Til að vista leitarniðurstöður og vinna með gögn þarf hver notandi að skrá sig inn,…
-
Ný þjónusta í Þjóðarbókhlöðu!
Þarftu aðstoð við ritgerðaskrif, frágang heimilda, sniðmátið og margt fleira? Komdu þá og spjallaðu við okkur. Við erum í Þjóðarbókhlöðu mánudaga-fimmtudaga kl. 13-16. Við hlökkum til að sjá þig. Kveðja, Starfsfólk sameiginlegs Ritvers hugvísindasviðs og menntavísindasviðs. Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt þau námskeið sem Ritver Hugvísindasviðs stendur fyrir. Námskeiðin eru nemendum að kostnaðarlausu. Athugið að…
-
Netbirtingarréttur þýðinga Íslendingasagna
Mennta- og menningarmálaráðherra, landsbókavörður og fulltrúi Sögu forlags undirrituðu nýlega samning um netbirtingarrétt af heildarútgáfum Íslendingasagna og þátta á dönsku, norsku og sænsku. Markmið samningsins er að tryggja sem best aðgengi almennings að þeim mikilvæga menningararfi sem í sögunum og þáttunum felst. Samningurinn gerir ráð fyrir að aðgangur að textunum verði opinn að fullu árið 2025.…
-
Einkaskjöl Jónu Margrétar Tómasdóttur
Nú stendur yfir þjóðarátak um söfnun á skjölum kvenna. Handritasafn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Þjóðskjalasafn Íslands, Kvennasögusafn Íslands og héraðsskjalasöfn um land allt vilja nýta 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til að vekja athygli á að skjöl kvenna skila sér í mun minna mæli inn á söfnin en skjöl karla. Einkaskjalasafn Jónu Margrétar Tómasdóttur (1913-2005)…
-
Samstarfssamningur við Hið íslenska bókmenntafélag
Fimmtudaginn 17. desember var undirritaður samstarfssamningur á milli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Hins íslenska bókmenntafélags um sýningu í tilefni af 200 ára afmæli félagsins sem verður opnuð vorið 2016. Jón Sigurðsson forseti HÍB og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður undirrituðu samninginn.