-
„Vitleysan í henni Önnu Sigurðar!“
5. desember kl. 13-15 i Þjóðarbókhlöðu Jólafundur Kvennasögusafns og Kvenréttindafélags Íslands er helgaður minningu Önnu Sigurðardóttur og félagsskapnum Úurnar. Kvennasögusafn Íslands fagnar á þessu ári 40 ára afmæli sínu, en það var stofnað af Önnu Sigurðardóttur sem var öflug í starfi Kvenréttindafélagsins til margra ára. Á 7. áratugnum hvatti Anna ungar stúlkur til að stofna…
-
Erindi um konkretljóð, dadaisma og útgáfur Medúsu og Smekkleysu
Þriðjudaginn 24. nóvember kl. 12.05 verða flutt tvö erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í tengslum við sýninguna „dadadieterdúr – samruni orðlistar og myndlistar“ : https://landsbokasafn.is/index.php/news/824/56/dadadieterdur Úlfhildur Dagsdóttir verður með erindi um konkretljóð Óskars Árna Óskarssonar og Sjón og Ólafur Engilbertsson fjalla um dadaisma og útgáfur Medúsu og Smekkleysu.
-
Prufuaðgangur að SPORTDiscus
Prufuaðgangur er nú um stundir að gagnasafninu SPORTDiscus with Full Text sem vísar í og birtir greinar úr um 670 helstu tímaritum á sviði íþrótta og -heilbrigðisvísinda frá og með 1970. Þar á meðal er fjöldi tímarita sem ekki er að finna í öðrum gagnasöfnum. Aðgangurinn er á upphafssíðu EbscoHost gagnasafnanna og er opinn á…
-
Erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld
Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12.05 verða flutt tvö erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í tengslum við sýninguna „dadadieterdúr – samruni orðlistar og myndlistar“ : https://landsbokasafn.is/index.php/news/824/56/dadadieterdur Benedikt Hjartarson flytur erindi sem hann kallar: „Hver síða verður að springa“: Um framúrstefnu, ljóðsmíðar og prenttilraunir“og Vigdís Rún Jónsdóttir fjallar um kortlagningu…
-
Málþing um opinn aðgang að rannsóknargögnum 11. nóvember
Opinn aðgang að rannsóknarniðurstöðum hefur borið hátt í umræðunni undanfarin ár. Á Íslandi hafa háskólar s.s. Háskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík og ýmsar stofnanir, s.s. Landspítali – Háskólasjúkrahús og Rannís sett sér stefnu um opinn aðgang. Næsta skref í þessari umræðu er opinn aðgangur að rannsóknargögnum sem verða til við rannsóknir…
-
Íslensk bóksaga
Miðvikudaginn 4. nóvember mun Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands, halda erindið „Sparðatíningur. Berfættir sagnfræðingar og þekking“ í fyrirlestraröðinni Íslensk bóksaga sem fram fer í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45.
-
Háskólabókasafn 75 ára
Þann 1. nóvember eru liðin 75 ár síðan Háskólabókasafn var stofnað. Aðalbygging Háskóla Íslands var vígð 17. júní 1940 og síðar sama ár var bókasafninu fundinn staður í bakálmu hennar. Þá sameinuðust í eitt safn bókasöfn guðfræðideildar, læknadeildar og lagadeildar Háskóla Íslands. Þessi bókasöfn höfðu í öndverðu verið byggð upp af Prestaskólanum (stofnaður 1847), Læknaskólanum…
-
Velkomin á opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðunni þriðjudaginn 27. október klukkan 17.
Velkomin á opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðunni þriðjudaginn 27. október klukkan 17 í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að Halldór Laxness hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels. Dagskrá: Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður býður gesti velkomna Ávarp Halldórs Laxness. Þór Tulinius leikari flytur fyrri hluta Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra flytur ávarp Hundur í óskilum flytur…
-
Ráðstefnan eBooks: Putting Librarians and Researchers „In The Know“
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir setur ráðstefnuna sjá dagskrá
-
Minni, frásögn og munnleg saga
Minni, frásögn og munnleg saga Miðstöð munnlegrar sögu og Sagnfræðistofnun H.Í. efna til málþings í Þjóðarbókhlöðu 8. október kl. 14.00-16.30 með yfirskriftinni Minni, frásögn og munnleg saga. Á málþinginu verður fjallað um samspil minnis, minninga og munnlegrar sögu og hvernig sagnfræðingar og mannfræðingar hafa glímt við það í eigin rannsóknum. Sérstakur gestur málþingsins er Mats…
-
Íslensk bóksaga: erindi 7. október
Miðvikudaginn 7. október munu Halldóra Kristinsdóttir og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir halda erindið „Á jaðri samfélagsins. Utangarðs í handritasafni“ í fyrirlestraröðinni Íslensk bóksaga sem fram fer í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45. Í útdrætti erindisins segir: „Sumarið 2013 var haldin í Þjóðarbókhlöðunni sýning sem hlaut nafnið Utangarðs? Þar var gerð grein fyrir lífi og starfi um þrjátíu…
-
Bókin í rafheimum – opið málþing
Í dag, föstudaginn 2. október, á öðrum degi Lestrarhátíðar í Reykjavík, verður haldið opið málþing um mögulega framtíð bóka á íslensku í stafrænum heimi. Þingið er samstarfsverkefni Rithöfundasambands Íslands, Félags íslenskra bókaútgefenda, Hagþenkis, Landsbókasafns Íslands, Borgarbókasafns, Miðstöðvar íslenskra bókmennta og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. Þingið verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns og stendur frá kl. 13 –…