-
Mótun framtíðar – opnun sýningar
Fimmtudaginn 1. október kl. 16-18 verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af starfslokum Trausta Valssonar, prófessors og útkomu starfsævisögu hans „Mótun framtíðar“. Dagskrá: Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður, býður gesti velkomna Opnunarerindi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra Hilmar Bragi Janusson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ flytur erindi Trausti Valsson og landsbókavörður undirrita samning um afhendingu gagna…
-
Springer – kynning
Timon Oefelen, þjónustu- og þróunarstjóri hjá Springer verður með kynningu 29. september kl. 15 -16.30 í fyrirlestarsal Landsbókasafns Íslands. Fyrri hluti kynningarinnar heitir; „Springer Technology Update – Discovery and Altmetrics“
-
„Þann arf vér bestan fengum“
Laugardaginn 26. september 2015 kl. 13 verður opnuð sýning á íslenskum biblíuútgáfum í Þjóðarbókhlöðu. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns og Hins íslenska biblíufélags. Hið íslenska biblíufélag er elsta starfandi félag á landinu og fagnar 200 ára afmæli árið 2015. Stjórnandi: Dögg Harðardóttir, varaforseti Hins íslenska biblíufélagsSéra Sigurður Ægisson flytur erindi um biblíuþýðingarTónlistaratriði: Þórunn Harðardóttir, víóluleikariSéra…
-
Íslensk bóksaga 2015-2016
Í vetur mun Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn standa að fyrirlestraröðinni Íslensk bóksaga í annað sinn. Markmið hennar er að búa til vettvang þar sem fjallað verður um íslenska bóksögu síðari alda í víðu samhengi, bæði um prentaðar bækur og handskrifaðar. Þar verður greint frá sögu einstakra bóka og handrita, tilurð þeirra og viðtökur, heimildaflokkar kynntir…
-
Bókasafnsdagurinn 8. september
Kl. 08:30 – ? Okkar geysivinsæla og rómaða gjafahlaðborð með bókum og kannski einhverju öðru. Kl. 11:00-11:30 Landsbókasafn Íslands myndband Kl. 11:30-12:00 Þjóðarbókhlaða (fyrstu árin) myndband Kl. 13:30 Upplestur skálda í fyrirlestrarsal safnsins á 2. hæð (þó ekki endilega í þessari röð) Ásta Fanney Sigurðardóttir Kristín Svava Tómasdóttir Júlía Margrét Einarsdóttir Helga Sóley Viðarsdóttir Kl. 15:00-15:30…
-
Rafbækur í lögfræði
Í september verður prufuaðgangur á háskólanetinu að rafbókum í lögfræði frá University Press Scholarship Online. Um er að ræða um 1400 titla frá ýmsum háskólaútgáfum. Notið tækifærið til þess að kynna ykkur málið og gott væri að heyra hvernig ykkur líst á: upplys (hjá) landsbokasafn.is.
-
Bókagjöf frá Vinafélagi Vestur-Sahara
Í dag afhenti Stefán Pálsson, fyrir hönd Vinafélags Vestur-Sahara, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni bækur að gjöf. Bækurnar fjalla um sögu og stjórnmál Vestur-Sahara.
-
Spegillinn
Í framhaldi af breytingu á almennum hegningarlögum sem samþykkt var á Alþingi 2. júlí 2015 hefur Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn opnað fyrir aðgang að 2. tölublaði 43. árgangs tímaritsins Spegillinn frá 1983 á vefsíðunni timarit.is. Pappírseintak blaðsins er jafnframt aðgengilegt á lestrarsal í Íslandssafni á 1. hæð Þjóðarbókhlöðunnar.
-

Börn skrifa
Fáein handrit og bréf barna eru varðveitt í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og voru á sýningu í forsal Íslandssafns á 1. hæð í Þjóðarbókhlöðu nokkur dæmi um handrit sem tengjast börnum frá júlí og fram í október 2015. Tvö bréf eru frá systrum sem skrifuðu bróður sínum, sem var fluttur að heiman, annað bréf…
-
Bókagjöf frá taílenska sendiráðinu
Morakot Janemathukorn, fulltrúi taílenska sendiráðsins á Íslandi með aðsetur í Kaupmannahöfn, heimsótti safnið 19. júní síðastliðinn ásamt Önnu M.Þ. Ólafsdóttur, sem er heiðurskonsúll fyrir Taíland á Íslandi. Þær afhentu safninu bókagjöf, meðal annars bók um jarðræktarumbætur í Taílandi á vegum konungsfjölskyldunnar og bækur um stjórnmál, efnahag og menningu.
-
„Vér heilsum glaðar framtíðinni“
Laugardaginn 16. maí 2015 verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Jafnframt verður opnaður vefur um sögu kosningaréttar, konurogstjornmal.is, og er hann aðgengilegur öllum. Yfirskrift sýningarinnar ,,Vér heilsum glaðar framtíðinni“ er tilvitnun í ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttir þann 7. júlí 1915 þegar kosningaréttinum var fagnað í fyrsta sinn á Austurvelli.…
-
Handritamenning síðari alda – málþing 9. maí
Málþing 9. maí til kynningar á niðurstöðum rannsókna sem unnar hafa verið innan fjögurra stórra rannsóknaverkefna styrkt af Rannsóknasjóði á árunum 2010‒15. Rannsóknaverkefninin eru Prentsmiðja fólksins: Handrita- og bókmenning síðari alda (verkefnastjóri: Matthew Driscoll); Menningarlegt og félagslegt hlutverk íslenskra kvæða- og sálmahandrita eftir siðskipti (verkefnastjóri: Margrét Eggertsdóttir); Kvæðabók sr. Ólafs Jónssonar á Söndum: Greining, samhengi,…