-
Flett ofan af fortíðinni
Miðvikudaginn 6. maí mun Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur flytja erindið „Flett ofan af fortíðinni. Leit að handritum kvenna“ í fyrirlestrarröðinni Íslensk bóksaga í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu á milli kl. 12:05 – 12:45. Í útdrætti Guðrúnar segir: “Í fyrirlestrinum verður rætt um rannsókn sem ég vinn nú að á bókmenningu kvenna frá miðöldum og til 1730. Með bókmenningu er átt við…
-

Minni heimsins á safninu þínu?
Landsnefnd Íslands um minni heimsins auglýsir eftir fyrstu tilnefningum til skráningar á Landsskrá Íslands. Tilgangur UNESCO með verkefninu Minni heimsins (Memory of the World), ásamt samnefndri varðveisluskrá, er að vekja athygli á mikilvægum skráðum menningararfi heimsins með því að útnefna skráðar heimildir (documentary heritage) sem hafa sérstakt varðveislugildi. Landsskrá Íslands leggur áherslu á þær heimildir…
-
Prufuaðgangur að rafbókum Bloomsbury til 1. maí
Á háskólanetinu er nú prufuaðgangur að 4000 rafbókum Bloomsbury Collections sem stendur til 1.maí. Þar má meðal annars finna nýjustu rannsóknir á sviði hug- og félagsvísinda frá útgefendunum Bloomsbury, T&T Clark, Berg and Bristol Classical Press og The Arden Shakespeare og Hart Publishing. Hægt er að nota snjallsíma og lesbretti, senda og deila efni á helstu samfélagsmiðlum…
-
Alþjóðleg ráðstefna um Spánverjavígin
Alþjóðleg ráðstefna um Spánverjavígin er í Þjóðarbókhlöðu er í Þjóðarbókhlöðu mánudaginn 20. og þriðjudaginn 21. apríl í samstarfi Baskavinafélagsins við Gipuzkoa-hérað, Basknesku Etxepare stofnunina, Center for Basque Studies University of Nevada, Reno, Barandiaran Chair for Basque Studies University of California, Santa Barbara, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Erlendir fræðimenn sem halda erindi…
-
Tímamót í Evrópusögu – málþing 18. apríl
Tímamót í Evrópusögu: Horft til áranna 1814 og 1815Félag um átjándu aldar fræði heldur málþingí Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð,laugardaginn 18. apríl 2015. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Kílarfriðurinn 14. janúar 1814: Hvað gerðist?Af hverju fylgdi Ísland ekki Noregi?Anna Agnarsdóttir, prófessor í…
-
Tímarit í fornleifafræði – opinn aðgangur
Vekjum athygli á að Maney Publishing veitir opinn aðgang að 43 tímaritum í fornleifafræði og skyldum greinum næstu tvær vikurnar 13.-26. apríl nk. Notfærið ykkur tækifærið og skoðið, lesið og vistið greinar sem þið hafið áhuga á.
-

Vegleg gjöf frá Mannréttindaskrifstofu Íslands
Fimmtudaginn 9. apríl afhenti Mannréttindaskrifstofa Íslands Landbókasafni/Þjóðarbókhlöðu bókasafn sitt að gjöf. Frá stofnun skrifstofunnar hefur bókasafnið verið í uppbyggingu og margir leitað í það eftir heimildum og upplýsingum. Titlar bókasafnsins eru nú ríflega þúsund talsins, þar af helmingur tímarit, árbækur og skýrslur ýmiss konar. Formleg afhending bókanna fór fram í Landsbókasafni/Þjóðarbókhlöðu að viðstöddu starfsfólki og…
-
Enumerate: Stafræn menning
Niðurstöður Enumerate-könnunarinnar á stafrænu efni menningarstofnana 2014 Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur tekið saman niðurstöður úr Enumerate, evrópskri könnun um stafrænan safnkost menningarstofnana. Safnið hefur á undanförnum árum lagt áherslu á að auka aðgengi að efni sínu í gegnum stafræna miðla. Það hefur sett sér stefnu um stafræna endurgerð og varðveislu stafrænna gagna (https://landsbokasafn.is/wp-content/uploads/landsbokasafn/stefnuskrar/stafraen_endurgerd_stefna_2011.pdf), þar…
-
Fagstjóri upplýsingaþjónustu og notendafræðslu
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn auglýsir laust starf fagstjóra upplýsingaþjónustu. Faghópurinn veitir háskólasamfélaginu og gestum safnsins fjölþætta upplýsingaþjónustu með fræðslu og leiðsögn um safnið, vefinn og gagnasöfn. Helstu verkefni faghópsins eru safnfræðsla, kennsla í upplýsingalæsi, einstaklingsráðgjöf, heimildaleitir, millisafnalán og móttaka hópa. Fagstjóri upplýsingaþjónustu leiðir verkefni hópsins og hefur frumkvæði að þróun á starfsemi einingarinnar. Hann fer…
-
Tvö ný rafræn tímarit
Eftirfarandi tímarit voru nýlega tekin í áskrift og eru opin notendum á háskólanetinu og í tölvum Þjóðarbókhlöðu. Þau eru aðgengileg eins og önnur rafræn tímarit safnsins og landsaðgangs í skránni Finna tímarit sem er á upphafssíðu safnsins. Adaptation er alþjóðlegt ritrýnt tímarit í bókmennta- og kvikmyndafræði á sviði aðlögunarfræði, gefið út af Oxford University Press. Það er…
-
Kallað eftir skjölum kvenna
Þjóðarátaki hleypt af stokkunum í dag 19. mars kl. 11 í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðunnar Nú í ár fagna landsmenn 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Af því tilefni efna Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn, Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin til þjóðarátaks um söfnun á skjölum kvenna og hvetja landsmenn til að afhenda þau á skjalasöfn. Bréf, dagbækur og önnur persónuleg gögn…
-
Prufuaðgangur að rafbókum Bloomsbury
Á háskólanetinu er nú prufuaðgangur að 4000 rafbókum Bloomsbury Collections sem stendur til 1.maí. Þar má meðal annars finna nýjustu rannsóknir á sviði hug- og félagsvísinda frá útgefendunum Bloomsbury, T&T Clark, Berg and Bristol Classical Press og The Arden Shakespeare og Hart Publishing. Hægt er að nota snjallsíma og lesbretti, senda og deila efni á helstu samfélagsmiðlum…