-
Málþing Félags um átjándu aldar fræði 14. febrúar
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþingundir yfirskriftinniNýjar rannsóknir á þjóðtrú Íslendinga á seinni öldum í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð,laugardaginn 14. febrúar 2015.Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:30. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Fatlað fólk með sérstaka og yfirnáttúrulega hæfileikaEva Þórdís Ebenezersdóttir, þjóðfræðingur Fylgjutrú í kjölfar…
-
Tvær sýningar opnaðar
Laugardaginn 9. febrúar voru tvær sýningar opnaðar í safninu og haldið málþing um Hafstein Guðmundsson. Flutt voru átta erindi auk þess sem Guðmundur sonur Hafsteins hélt stutta tölu og afhenti safninu teikningar föður síns. Fullt var út úr dyrum og góður rómur gerður að erindum og sýningum.
-
Málþing um Hafstein Guðmundsson
Laugardaginn 7. febrúar kl. 13–16 verður haldið í Þjóðarbókhlöðu málþing um Hafstein Guðmundsson og opnuð sýning um lífsstarf hans. Jafnframt verður opnuð sýningin Prentsmiðjueintök. Dagskrá málþingsins: Svanur Jóhannesson um prentsmiðjur á Íslandi og kynni af Hafsteini Bragi Þórðarson hjá Hafsteini í Hólaprenti Þorgeir Baldursson um Odda og samstarf Baldurs föður hans og Hafsteins Þröstur Jónsson um bókbandsnám hjá Hafsteini…
-
EndNote námskeið – fimmtudaginn 5. febrúar
Fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 12.00–13.00 mun Landsbókasafn Íslands – Háskólabóksafn bjóða nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands upp á námskeið í heimildaskráningarforritinu EndNote. Sýnt verður hvernig á að frumskrá heimildir í EndNote og sækja úr gagnasöfnum eins og leitir.is, Ebsco, ProQuest og Web of Science. Að auki verður farið í hvernig hægt er að sækja tilvísanir…
-
Fræðslufundur um heimildaleit
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn heldur fræðslufund um heimildaleit í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar fimmtudaginn 29. janúar klukkan 12:00-13:00. Fundurinn er í samvinnu við Ritver Hugvísindasviðs. Sýnikennsla verður á Leitir.is og tímaritskrána Finna tímarit með áherslu á mismunandi tækni við leit í gagnasöfnum. Auk þess verður kynning á vef safnsins og þjónustu þess. Við hvetjum alla háskólanema til…
-
Sýningum lýkur
Sunnudaginn 25. janúar lýkur sýningunni Á aðventu 1994 við Íslandssafn. Þá lýkur líka örsýningu þar um þýðingar á bókum Arnalds Indriðasonar og Auðar Ólafsdóttur. Sýningunni Tryggvi Magnússon og skjaldarmerkið lýkur svo viku síðar, 1. febrúar.
-
Cambridge University Press – prufuaðgangur
Fram til loka mars-mánaðar er aðgangur á landsvísu að heildartextum 330 rafrænna tímarita Cambridge University Press frá árinu 2010 til dagsins í dag. Tímaritin eru á ýsmsum fræðasviðum s.s. landbúnaður, dýrafræði, fornleifafræði, mannfræði, líffræði, líftækni, stjórnun, tölvunarfræði, umhverfisfræði, hagfræði, verkfræði, sögu, lög, bókmenntir, stærðfræði, læknis- og heilbrigðisfræði, tónlist, næringarfræði, heimspeki, eðlisfræði, stjórnmálafræði, sálfræði, trúarbragðafræði og félagsfræði. Þá verður einnig…
-
Íslensk bókaskrá 1534-1844
Á tuttugu ára af mæli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns 1. desember 2014 var opnað fyrir aðgang að íslenskri bókaskrá til 1844 á vefslóðinni bokaskra.landsbokasafn.is. Sögu bókaskrárinnar má rekja aftur til miðrar síðustu aldar en þá hófst vinna við það í Landsbókasafni Íslands að semja bókfræðilega skrá yfir öll rit íslenskra höfunda, rit erlendra höfunda prentuð…
-
Kosningaréttur í 100 ár
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tekur þátt í viðburðum tengdum 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna með veglegri sýningu sem verður opnuð 16. maí 2015. Fyrsti viðburðurinn á vegum afmælisnefndar – og upptaktur að afmælisárinu – er fyrirlestur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá 1887, fyrsti fyrirlestur konu á Íslandi, sem verður leiklesinn í Iðnó 30. desember kl 16.00. Fyrirlesturinn Fyrirlesturinn er…
-
20 ára afmæli Þjóðarbókhlöðunnar
Í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá opnun Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðunni voru opnaðar tvær sýningar þann 1. desember, Tryggvi Magnússon og skjaldarmerkið og Á aðventu 1994. Jafnframt voru þrjú verkefni safnsins kynnt; Hljóðsafn, Söguleg íslensk bókaskrá 1534-1844 og Áttavitinn. Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) var með stutt erindi um Tryggva…
-
Bókagjöf á sviði biblíurannsókna og þýðinga
Fjölskylda Jóns Rúnars Gunnarssonar háskólakennara hefur fært Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni veglega bókagjöf úr safni hans. Jón stundaði nám í Tékkóslóvakíu, Póllandi og Noregi og lauk mag. art. prófi í indóevrópskri samanburðarmálfræði og cand. mag. prófi í forngrísku og latínu. Hann var lektor í samanburðarmálfræði við Óslóarháskóla í nokkur ár áður en hann var skipaður…
-
Opinn aðgangur og Bill & Melinda Gates sjóðurinn
Föstudaginn 21. nóvember samþykkti Bill & Melinda Gates sjóðurinn stefnu um opinn aðgang sem varðar allar rannsóknir sem hljóta styrk úr sjóðnum. Stefnan tekur gildi 1. janúar 2015. Stofnunin er ein sú allra stærsta meðal bandarískra styrkveitenda. Stefnan varðar ekki einungis niðurstöður styrktra rannsókna heldur einnig rannsóknargögnin sjálf. Sjá nánar hér: http://www.gatesfoundation.org/how-we-work/general-information/open-access-policy