-
Ný stjórn kemur saman
Ný stjórn safnsins kom saman á fundi í dag. Hana skipa Ágústa Guðmundsdóttir, sem er formaður, Elín Soffía Ólafsdóttir og Eiríkur Rögnvaldsson, fulltrúar Háskóla Íslands, Sveinn Ólafsson, fulltrúi Upplýsingar, Kristín Svavarsdóttir, frá vísinda- og tækniráði, Hrafn Loftsson, frá samstarfsnefnd háskólastigsins og Rósa Bjarnadóttir. fulltrúi starfsmanna. Á myndinni eru líka Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Edda…
-
Endnote námskeið
Miðvikudaginn 26. nóvember stendur Lbs-Hbs fyrir námskeiði í Endnote í samvinnu við Ritver Hugvísindasviðs. Námskeiðið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðunnar kl. 12-13. Sýnt verður hvernig á að frumskrá heimildir í EndNote og sækja úr gagnasöfnum eins og leitir.is, Ebsco, ProQuest og Web of Science. Að auki verður farið í hvernig hægt er að sækja tilvísanir…
-
Blái skjöldurinn
Blái skjöldurinn á Íslandi formlega stofnaður. Landsnefnd Bláa skjaldarins var formlega stofnuð 24. október á degi Sameinuðu þjóðanna á Þjóðminjasafni Íslands. Þar komu saman fjölmennur hópur fólks sem starfar að varðveislu menningarminja ásamt fulltrúum Almannavarna, Landsbjargar, ráðuneyta og Rauða krossins, en Blái skjöldurinn hefur verið nefndur rauði kross menningarminja. BLÁI SKJÖLDURINN – International Committee…
-
Lof og last
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Lof og last um Ísland og Íslendinga á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 18. október 2014. Málþingið hefst kl. 13.30 og því lýkur um kl. 16.30. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Siðlausir villimenn eða menntaðir fræðaþulir? Ímyndir Íslands…
-
Bleika slaufan
Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Í tilefni þess klæddust ýmsir starfsmenn Þjóðarbókhlöðu bleikum lit.
-
Áttavitinn
ÁTTAVITINN er nýr valkostur í vinstri dálki á vef safnsins. Honum er m.a. ætlað að vísa veginn að heppilegum hjálpargögnum við heimildaleit, kynna nýjungar og leiðbeina um notkun gagna. Áttavitinn er enn á tilraunastigi og vonir standa til að þróa efnið í samvinnu við notendur, fagfólk, nemendur og aðra áhugasama. Í flestum leiðarvísanna er því flipi…
-
Gagnasöfn um þýðingar
Í tilefni af Alþjóðadegi þýðenda 30. september og Evrópska tungumáladeginum 26. september viljum við vekja athygli á nokkrum mikilvægum gagnasöfnum sem finna má á lista um Rafræn gögn á vef safnsins. Communication & Mass Media Complete (CMMC) vísar í efni um 750 tímarita á sviðum fjölmiðlunar, tungumála, málvísinda, táknmáls- og þýðingafræða, þar af eru 500…
-
Bókagjöf Samtakanna ´78
Þriðjudaginn 23. september afhentu Samtökin ’78 námsbraut í kynjafræði og Landsbókasafni íslands – Háskólabókasafni bókagjöf við athöfn í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu. Afhendinguna bar upp á Alþjóðadag tvíkynhneigðra eða Bi Visibility Day en með því vilja Samtökin ’78 vekja athygli á málefnum tvíkynhneigðra, pankynhneigðra og fólks með „fljótandi“ kynhneigðir (e. fluid) og fagna hlutverki og hlutdeild þessa…
-
Hinsegin bókagjöf á Alþjóðadegi tvíkynhneigðra
Í dag, þriðjudag 23. september, klukkan 15:30, á Alþjóðadegi tvíkynhneigðra, afhenda Samtökin ´78 námsgreininni kynjafræði við Háskóla Íslands hluta bókasafns síns að gjöf til varðveislu í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Verið velkomin!
-
Sýning um Hallgrím Pétursson
Fimmtudaginn 11. september var opnuð í Þjóðarbókhlöðunni sýning í tilefni þess að 400 ár eru liðin frá fæðingu sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ávörp fluttu Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Margrét Eggertsdóttir prófessor við Árnastofnun sem samdi sýningartextann og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Halldóra…
-
Safnkynningar á haustmisseri
Kynningar á vegum safnsins eru komnar á fullt skrið. Um er að ræða Frumkynningar þar sem aðstaða og þjónusta safnsins er kynnt ásamt vef safnsins. Sýnikennsla er á leitargáttirnar Leitir.is og Finna tímarit . Framhaldskynningar með sýnikennslu á gagnasöfn viðkomandi greinar, auk þess sem farið er nánar í helstu atriði við heimildaleit, leitartækni og útvegun efnis Stuttar…
-

Bókagjöf á minningardegi fórnarlambanna
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur afhent Þjóðarbókhlöðunni bókagjöf frá RNH, Rannsóknarsetri um nýsköpun og hagvöxt, í tilefni minningardags fórnarlamba alræðisstefnunnar í Evrópu, nasisma og kommúnisma, 23. ágúst 2014, en þá voru rétt 75 ár liðin frá því, að Hitler og Stalín skiptu á milli sín Mið- og Austur-Evrópu með griðasáttmálanum í Moskvu. Hefur Evrópuþingið gert…