-
Samstarfssamningur við Miðstöð íslenskra bókmennta
Þann 22. ágúst var undirritaður samstarfssamningur við Miðstöð íslenskra bókmennta sem miðar að því að safna sem ítarlegustum upplýsingum um útgáfu íslenskra bókmennta á öðrum tungumálum en íslensku og tryggja aðgang að þeim. Miðstöðin afhendir safninu eintak af þeim bókum sem fá þýðingarstyrki og safnið tryggir varðveislu og aðgang að þeim og vinnur auk þess…
-
SG-hljómplötur 50 ára
Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því útgáfufyrirtækið SG-hjómplötur var stofnað. Af því tilefni hefur verið sett upp lítil sýning í safninu. SG-hljómplötur var útgáfufyrirtæki tónlistar- og útvarpsmannsins Svavars Gests (1926-1996) en það stofnaði hann árið 1964. Alls gaf fyrirtækið út 80 litlar, 45 snúninga (45 rpm) hljómplötur og 180 stórar hæggengar 33…
-
Hinsegin dagar
Allir litir regnbogans í bókum á safninu á Hinsegin dögum. Af því tilefni höfum við stillt út ýmsum litríkum bókum.
-
Norrænt bókband – sýningu lýkur
Í dag, 5. ágúst, er síðasti dagur sýningarinnar Norrænt bókband 2013. Að þessu sinni eru þátttakendur 80, þar af 13 Íslendingar og fá tveir þeirra heiðursviðurkenningu, þau Hrefna Ársælsdóttir og Ragnar Gylfi Einarsson. Héðan fer sýningin til Gautaborgar þar sem hún verður opnuð í Rösska Museum 2. september.
-
#FyrirÖld á Tímarit.is
Frá og með deginum í dag, 28. júlí, mun Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn birta valdar fyrirsagnir úr íslenskum dagblöðum frá því fyrir öld á vefnum Tímarit.is, Twitter-síðu safnsins og Facebook-síðu Tímarit.is með kennimarkinu #FyrirÖld. Hugmyndin er að vekja athygli á því hversu mikilvægur aldarspegill íslensku dagblöðin eru. Fyrirsagnirnar vísa bæði til stórfrétta og hversdagslegra viðburða…
-

Sýning á handritum Árnastofnunar
í tilefni af ráðstefnu New Chaucer Society Í tilefni af alþjóðlegri ráðstefnu New Chaucer Society verður sérstök sýning á handritum í vörslu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við Íslandsssafn dagana 15. -18. júlí. Á sýningunni má m.a. sjá hluta af Egilssöguhandriti frá um 1300 og Grettissögu- og Jónsbókarhandrit frá 16. öld. Sýningin kallast á við…
-
Sýning á handritum 15.-18. júlí
Sýning á handritum í vörslu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Í tilefni af alþjóðlegri ráðstefnu New Chaucer Society verður sérstök sýning á handritum í vörslu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við Íslandsssafn dagana 15. -18. Júlí. Sýningin mun kallast á við sumarsýningu handritasafns, Pappírshandrit og skinnblöð. Sjá nánar um Chaucer-ráðstefnuna á slóðinni: http://www.arnastofnun.is/page/frettasafn_frett&detail=1028541…
-
Ársskýrsla 2013
Ársskýrsla safnsins fyrir árið 2013 er komin á vefinn og hægt að nálgast hér. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi safnsins á síðasta ári.
-
Pappírshandrit og skinnblöð
Sumarsýning handritasafns í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni Opnuð hefur verið í safninu sýningin Pappírshandrit og skinnblöð. Um er að ræða sumarsýningu á vegum handritasafns og má þar sjá ýmis dæmi um skinnblöð og pappírshandrit.. Á sýningunni má m.a. sjá hið merkilega Kveisubelti en það er líklega hið eina sinnar tegundar sem varðveist hefur á Íslandi. Blaðið…
-
Kerguelen á Íslandi – opnun sýningar
Fimmtudaginn 5. júní kl. 16.00 verður opnuð sýning um franska landkönnuðinn Yves-Joseph de Kerguelen í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Á sýningunni er rakin saga fyrsta vísindaleiðangurs Frakka til Íslands. Sá leiðangur er talinn marka upphaf vináttu Frakka og Íslendinga. Sýningin rekur ferðir Yves-Joseph de Kerguelen til Íslands 1767 og 1768. Árið 1767 fékk hinn þrítugi…
-
Michel Butor og vinir – sýning í Þjóðarbókhlöðu
Michel Butor og vinir – sýning í Þjóðarbókhlöðu í samstarfi við Listahátíð mánudag 26. maí kl. 16 Opnuð verður sýning í Þjóðarbókhlöðu á bókverkum Michels Butor og tólf listamanna á Listahátíð í Reykjavík mánudaginn 26 maí kl. 16. Michel Butor er einn af fremstu höfundum hóps sem umbylti skáldsögunni í Frakklandi um 1960 undir merkjum…
-
Ráðstefna um Dewey-flokkunarkerfið
Alþjóðleg ráðstefna um Dewey-flokkunarkerfið verður haldin í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu þann 22. maí næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Dewey-flokkunarkerfið – trending DDC topics in Iceland and other parts of Europe. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Dagskrá og nánari upplýsingar er að finna á vef Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Skráning er til 21. maí á netfangið erlabj (hjá)…