-
Þremur sýningum lýkur 19. maí
Nú líður að lokum sýningarinnar Frá hjara veraldar – Melitta Urbancic –í útlegð frá Austurríki á Íslandi, og einnig sýninga um Nínu Tryggvadóttur og verðlaunabók Hagþenkis 2013, Af jörðu. Þessum sýninugm lýkur mánudagin 19. maí. Mánudaginn 26. maí kl 16 verður svo opnuð sýningin Michel Butor og vinir í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, franska sendiráðið, Alliance francaise,…
-
Norrænt bókband 2013
Norrænt bókband 2013 Föstudaginn 2. maí 2014 var opnuð í Þjóðarbókhlöðunni sýningin Norrænt bókband 2013. Við opnun sýningarinnar fluttu ávörp þau Svanur Jóhannesson og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður. Sérstök dómnefnd með valinkunnum mönnum dæmir bókbandið og velur 25% af bókunum í sérstakan heiðursflokk. Fyrsta keppnin eftir þessum nýju reglum fór fram 2004 og voru þátttakendur…
-
Safnahúsið fær sitt fyrra nafn
Safnahúsið hefur fengið sitt fyrra nafn aftur og opnað fésbókarsíðu. Unnið er að nýrri grunnsýningu í samstarfi nokkurra safna og verður hún opnuð í haust.
-
Prufuaðgangur að tímaritum um safnafræði o.fl
Minnum á prufuaðgang að 19 tímaritumum safnafræði frá Maney Publishing’s – Conservation & Museum Studies sem opinn er notendum á háskólanetinu til 5. júní. Undir fyrirsögninni Conservation er aðgangur að 13 tímaritum og 6 undir fyrirsögninni Museum studies á slóðinni http://www.maneyonline.com/page/archaeo Athugið að ekki er aðgangur að heftum frá síðustu 12 mánuðum. Notið tækifærið og látið okkur vita hvernig…
-
Michel Butor og vinir – sýning á Listahátíð í maí
Opnuð verður sýning í Þjóðarbókhlöðu á bókverkum Michels Butor og tólf listamanna á Listahátíð í Reykjavík mánudaginn 26 maí. Michel Butor er einn af fremstu höfundum hóps sem umbylti skáldsögunni í Frakklandi um 1960 undir merkjum nýju skáldsögunnar („nouveau roman“). Butor hætti að skrifa skáldsögur á sjöunda áratugnum. Síðan hefur hann skrifað mjög mikið af ritgerðum, ljóðum,…
-
Samningur um efni tengt Snorra Hjartarsyni
Þann 2. apríl, undirrituðu Ingibjörg Sverrisdóttir landsbókavörður fyrir hönd Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Hjörtur Hjartarson fyrir hönd Ljóðvega samstarfssamning um að taka höndum saman um að efla almenna kynningu á Snorra Hjartarsyni rithöfundi, ævi hans og verkum. Fyrirhugað er að efla miðlun efnis um Snorra Hjartarson á vef með hans nafni og með sýningu.
-
Ársfundur Landsaðgangs
Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, fimmtudaginn 20. mars kl. 15.00. Sjá nánar á vef hvar.is.
-

Austurríski sendiherrann í heimsókn
Dr. Ernst-Peter Brezovsky, sendiherra Austurríkis, með aðsetur í Kaupmannahöfn, skoðaði sýninguna Á hjara veraldar 13. mars s.l. ásamt aðstandendum Melittu Urbancic, Vigdísi Finnbogadóttur og fleiri góðum gestum.
-

Mikill áhugi á Melittu Urbancic
Laugardaginn 8. mars var opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni til heiðurs skáldkonunni, myndhöggvaranum og leikkonunni Melittu Urbancic. Málþing um ævi og verk Melittu var við opnun sýningarinnar og stóð dagskráin frá kl. 13–15.30. Ljóðabók Melittu, Frá hjara veraldar / Vom Rand der Welt, kom út sama dag í tvímála útgáfu hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Háskólaútgáfunni.…
-

Frá hjara veraldar
Málþing og sýning til heiðurs Melittu Urbancic Laugardaginn 8. mars 2014 verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðunni til heiðurs skáldkonunni, myndhöggvaranum og leikkonunni Melittu Urbancic. Málþing um ævi og verk Melittu verður við opnun sýningarinnar og stendur dagskráin frá kl. 13 – 15. Ljóðabók Melittu, Frá hjara veraldar / Vom Rand der Welt, kemur út í…
-
Kynning á ProQuest og EndNote kl. 11:50
Við verðum með tvær kynningar í fyrirlestrarsal í dag.. ProQuest kl. 11:50-12:10 og EndNote kl. 12:15-12:45. Við mælum með því að fólk komi með eigin tölvur.
-

Nína Tryggvadóttir – aldarminning
Velkomin á opnun sýningar í tilefni af 100 ára minningu listakonunnar (1913-1968) í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15. 100 ár voru nýlega liðin frá fæðingu listakonunnar Nínu Tryggvadóttur. Nína var þekkt fyrir myndlist sína en gaf einnig út nokkrar barnabækur. Hún var löngum búsett erlendis, m.a. í Kaupmannahöfn, París, London og New York…