-
Ný reglugerð
Ný reglugerð um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nr. 170/2014 hefur verið birt í Stjórnartíðindum. Reglugerðin er í 17 liðum og er að finna hér.
-
Vegleg bókagjöf
Sendiráð Svía á Íslandi færði Háskóla Íslands veglega gjöf á dögunum, en það er stórvirkið „The Linneus Apostles“ sem fjallar um merkar uppgötvanir nemenda sænska vísindamannsins Carls von Linné tengdar vísindum og menningu á 18. öld. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tók við bókunum úr hendi Bosse Hedberg, sendiherra Svía á Íslandi. Lesa má nánar…
-
Web of Science – örkynning í dag
Í dag fimmtudaginn 20. febrúar kl 11:50-12:10 verður í fyrirlestrasal safnsins kynning á gagnasafninu Web of Science sem fékk nýtt viðmót í byrjun þessa árs. Web of Science er eitt af þremur þverfaglegu gagnasöfnum sem opin eru á landsvísu. Þar er vísað í efni rúmlega 10 þúsund virtra fræðirita ásamt tenglum við heildartexta greina sem opnast þegar notandinn…
-
Upplýsingaþjónusta í útrás
Upplýsingaþjónusta safnsins býður upp á stefnumót á Háskólatorgi kl. 11:30-13:30 næstu þriðjudaga, þ.e. 18. feb., 25. feb., og 4. mars. Við viljum minna á þá fjölbreytta þjónustu sem safnið veitir, öll gagnasöfnin, rafræn gögn sem notendum standa til boða, aðstoða við heimildaleit og sitthvað fleira. Í framhaldi verða í fyrirlestrasal safnsins örkynningar á ýmsum gagnasöfnum. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Dagskrá: Fimmtudaginn 20.…
-
Málþing Félags um átjándu aldar fræði
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Hagir kvenna á átjándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæðlaugardaginn 15. febrúar 2014. Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:30. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Kokkur og kærasta í kaupstaðGuðný Hallgrímsdóttir, doktorsnemi í sagnfræði Dæmdar konur í…
-

Kver Elku Björnsdóttur
Í lok janúar barst handritasafni kver með hendi Elku Björnsdóttur (1881-1924) sem ber titilinn „Ýmislegt ljóðmæli.“ Í kverinu má finna uppskrift Elku á ýmsum ljóðum sem henni hafa fundist áhugaverð. Aftast er greinargerð hennar á ljóðunum og tilurð þeirra, en hún segist hafa skrifað í það á sunnudögum „þegar jeg gat, og var þá stundum…
-

„sannarlegt evangelium fyrir qvennþjóðina“
Bréf Jóns Thoroddsen skálds og sýslumanns Nýlega bárust handritasafni nokkur bréf úr fórum Elínar Jónsdóttur (1841-1934), dóttur Jóns Thoroddsens skálds og sýslumanns (1818-1868). Um er að ræða fimm bréf frá Jóni til Elínar sem voru skrifuð á tímabilinu 1861-1865. Einnig er þar að finna bréf Jóns til barnsmóður sinnar, Ólafar Hallgrímsdóttur Thorlacius (1816-1854) sem skrifað…
-
Prufuaðgangur að Astronomy & Astrophysics
Næstu þrjá mánuði verður prufuaðgangur að tímaritinu Astronomy & Astrophysics opinn notendum á háskólanetinu. Aðgangur er að tímaritinu frá og með árinu 2001. Slóðin er http://www.aanda.org/
-
Web of Science – nýtt leitarviðmót
Nýtt leitarviðmót hefur verið tekið í notkun hjá Web of Science sem er eitt þeirra gagnasafna sem eru í landsaðgangi. Þar er aðgangur að Web of Science – Core Collection frá og með árinu 1970 og undir öðrum flipa Journal Citation Report . Viðmótið er talsvert einfaldara en það sem fyrir var en ítarlegri leitarmöguleika…
-
Ný handritaskrá
Jólagjöf handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns til landsmanna er rafræn handritaskrá um handrit sem hafa borist handritasafni á árunum 1964–2013. Í skránni eru lýsingar á 725 handritum sem finna má hér https://landsbokasafn.is/index.php/efni/handrit/handritaskrar. Þá hafa handritin einnig verið skráð á www.handrit.is. Enn er töluvert í land með að öll handrit sem borist hafa á þessu tímabili…
-
Samstarfssamningur um efni tengt Steini Steinarr
Fimmtudaginn 12. desember var undirritaður samstarfssamningur um efni tengt Steini Steinarr á milli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Steinshús ses – seturs um Stein Steinarr. Í samningnum felst að efld verður almenn kynning á Steini Steinarr, ævi hans og verkum. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tekur að sér að varðveita gögn sem tengjast Steini og skrá…
-

Stefna safnsins 2013 – 2017
Landsbókasafn íslands – Háskólabókasafn hefur gefið út bækling sem skýrir stefnu safnsins 2013-1017. Í upphafi árs 2013 hófst að nýju stefnumótunarvinna í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Tilgangurinn var að búa til vegvísi sem nýtist starfsfólki safnsins við að þróa starfsemina á næstu árum. Framkvæmdaráð safnsins, ásamt starfsmannastjóra, hefur verið stýrihópur í þessari vinnu og borið…