-
Ráðstefna um þýðingar – 7. desember
Á milli frænda: Ráðstefna um þýðingar á milli norsku og íslensku Athugið að vegna forfalla verða breytingar á dagskránni hér á eftir og stendur ráðstefnan frá kl. 10:00 – 12:30 Laugardaginn 7. desember 2013 kl. 10.00-16.00 í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal Dagskrá Kl. 10.00: Sendiherra Noregs á Íslandi, Dag Wernø Holter, setur ráðstefnuna Kl.…
-
Nýtt (og gamalt) í íslenska vefsafninu
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn var opnað 1. desember 1994. Í tilefni af afmæli safnsins í ár verða kynntar nýjungar í vefsafninu, en í Landsbókasafni hefur verið safnað íslensku efni af veraldarvefnum síðan 2004 og gert aðgengilegt á vefnum Vefsafn.is. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur safnað íslensku efni af veraldarvefnum síðan 2004 og gert aðgengilegt á…
-

Málþing um Wikipediu
Í tilefni af 10 ára afmæli íslenska hluta Wikipediu verður haldið stutt málþing um frjálsa alfræðiritið sem slegið hefur í gegn og er í dag ein af fjölsóttustu vefsíðum í heimi. Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu þann 5. desember klukkan 12:15 til 14:00. Dagskráin er sem hér segir: 12:15-12:25 – Málþing sett. Stuttar tilkynningar.…
-

Danskt-íslenskt gagnasafn
Föstudaginn 22. nóvember var undirritað samkomulag um danskt-íslenskt gagnasafn, DAN-ÍS, í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Viðstödd viðburðinn voru Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti og Mette Kjuel Nielsen, sendiherra Dana á Íslandi, Auður Hauksdóttir, forstöðumaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Anna Agnarsdóttir forstöðumaður Sagnfræðistofnunar, Guðmundur…
-
Teikningar Tryggva Magnússonar
Í dag skrifuðu Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Andrés Úlfur Helguson, afkomandi Tryggva Magnússonar, undir samning um afhendingu á teikningum Tryggva til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Tryggvi var einn þekktasti teiknari þjóðarinnar á tuttugustu öld og teiknaði m.a. íslenska skjaldarmerkið, fornmannaspilin, teikningar við jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum og var í fjölda ára skopmyndateiknari Spegilsins. Eftir…
-
Frá skruddum til skýja
Frá skruddum til skýja – Rannsóknir í bókasafns- og upplýsingafræði 8. nóvember 2013 – 9:00 til 15:30 í fyrirlestrasal á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu: Frá skruddum til skýja – Rannsóknir í bókasafns- og upplýsingafræði er heiti ráðstefnu nýútskrifaðra meistaranema í bókasafns- og upplýsingafræði. Ráðstefnan er árlegur viðburður á vegum námsbrautar í bókasafns- og…
-
Fyrsti íslenski tölvuleikurinn
Þann 14. október 2013 afhenti Bjarki Þór Jónsson Landsbókasafninu tölvuleikinn Sjóorrusta. Leikurinn er talinn vera fyrsti íslenski tölvuleikurinn sem seldur var á Íslandi en hann hönnuðu feðgarnir Erlingur Örn Jónsson og Jón Erlings Jónsson árið 1986. Leikurinn var hannaður í Basic og Assembler fyrir Sinclair Spectrum-tölvur og seldist upp að sögn feðganna. Hann kom út…
-
Sýning um einkaútgáfur, örforlög og …
Sýningin Einkaútgáfur, örforlög og annars konar miðlun frá 1977 til samtímans verður opnuð í anddyri Þjóðarbókhlöðu, föstudaginn 11. október 2013 kl. 15:00 Við opnunina munu skáldin Sjón, Bragi Ólafsson, Óskar Árni Óskarsson og Kristín Svava Tómasdóttir lesa upp nokkur ljóða sinna og kynna útgáfur sem þau hafa komið að. Sýningin er samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, pólsk-íslenska ljóðaverkefnisins ORT og…
-
Handritasafn lokað vegna ráðstefnu
Handritasafn verður lokað eftir hádegi á fimmtudag og allan föstudag vegna ráðstefnunnar „Heimur handritanna“. Ef gestir vilja skoða handrit þessa daga er hægt að panta þau fyrirfram með því að senda tölvupóst á handrit (hjá) landsbokasafn.is, hringja í síma 525-5678 eða með því að leggja inn pöntun fyrir hádegi á fimmtudag.
-
Sagan í munnlegri geymd
Á mánudaginn kemur hefur göngu sína þáttur á Rás 1 í umsjón meistaranema í sagnfræði við Háskóla Íslands sem nefnist Sagan í munnlegri geymd. Þættirnir verða átta talsins og fjalla um mannlíf og atburði á liðinni öld. Efnið er fengið úr viðtölum og frásögnum einstaklinga sem varðveitt eru í hljóðritasafni Miðstöðvar munnlegrar sögu. Þættirnir voru…
-
Utangarðssýningin framlengd
Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að framlengja sýninguna Utangarðs? til næsta sunnudags, 6. október. Verið velkomin! https://landsbokasafn.is/index.php/news/526/15/Utangards
-
Gagnasafn fyrir þýðendur og fleiri
Í tilefni af degi þýðenda 30. september viljum við minna á gagnasafnið ‘Communication & Mass Media Complete’ sem vísar m.a. í efni 750 tímarita á sviði fjölmiðlunar, þýðingar- og táknmálsfræði. Þar af eru um 500 tímarit með heildartextum. Gagnasafnið er hjá EBSCOhost en aðgangur er takmarkaður við tölvur á háskólanetinu. Sjá einnig á lista yfir Rafræn gögn á…