-
Alþjóðlegt nótunúmerakerfi – ISMN
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur innleitt alþjóðlegt númerakerfi fyrir nótur og nótutengda útgáfu, ISMN, International Standard Music Number. ISMN kerfið er systurkerfi alþjóðlega bókanúmerakerfisins ISBN og virkar á sama hátt. Útgefendur sem gefa út nótur eða nótnabækur geta sótt um að fá númeraraðir með útgefendatölu sinni eða stök ISMN númer fyrir einstaka útgáfu. Útgefendur sem…
-
Af raunvísindum fyrr á öldum
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Af raunvísindum fyrr á öldum í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 4. maí 2013. Málþingið hefst kl. 13.30 og því lýkur um kl. 16.30. Flutt verða fjögur erindi sem hér segir: Hugmyndir lærðra manna um náttúruna á 17. og 18. öld. Sigurður Steinþórsson, prófessor emeritus…
-
Nýtt gagnasafn í lögfræði
Lagadeild hefur fengið aðgang að gagnasafninu Westlaw UK – Westlaw International og er það opið notendum á háskólanetinu. Þar er að finna margvíslegar lagaheimildir, lög, reglugerðir, bækur, alfræði o.fl. Þegar inn í gagnasafnið er komið þarf smella á Services efst til hægri til að velja Westlaw International. Minnum einnig á HeinOnline, Law Journal Library með heildartextum um 1690 tímarita ásamt English Reports,…
-
Skráartegundir í íslenska vefsafninu
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur safnað markvisst íslenskum vefsíðum allt frá haustinu 2004. Vefsafnið okkar er miklu ítarlegra hvað varðar íslenskt efni en sambærilegt safn Internet Web Archive sem safnar vefsíðum frá öllum heiminum. Vefsafnið er gríðarstórt og telur nú tæpa tvo milljarða hluta (safnaðar slóðir að frádregnum tvítekningum). Auk þess að gera fólki kleift…
-
Málþing um Eirík Magnússon
Málþing um Eirík Magnússon bókavörð í Cambridge (1833-1913) í Þjóðarbókhlöðu laugardag 20. apríl 2013 kl. 14-16:30. Laugardaginn 20. apríl 2013 kl. 14-16:30 verður haldið málþing og opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu í tilefni af 100. ártíð Eiríks Magnússonar bókavarðar í Cambridge (1833-1913). Eiríkur var menntaður guðfræðingur en sinnti fræðastörfum á mörgum sviðum. Hann var mikilvirkur þýðandi…
-
Nýtt viðmót á Europeana
Evrópska menningargáttin Europeana hefur nú fengið nýtt viðmót sem á að auðvelda notendum aðgang að stafrænum endurgerðum safna um alla Evrópu. Meðal nýjunga eru sveigjanlegt viðmót fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og notendavænni leit. Lýsigögn í Europeana eru nú gefin út með sérstöku notandaleyfi, CC0, eða almenningsleyfi Creative Commons. Europeana býður auk þess upp á forritunarviðmót…
-
7. ársfundur Landsaðgangs, 22. mars 2013
Ársfundur Landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum verður haldinn í fyrirlestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, föstudaginn 22. mars kl. 15.00. Dagskrá Fundargerð 6. ársfundar Starf stjórnarnefndar Ársskýrsla 2012 Ársreikningur 2012 Greiðsluskipting 2013 Önnur mál Gögn fundarins verða vistuð á þessa síðu eftir því sem þau eru tilbúin. Ársskýrsla 2012 Fundargerð ársfundar…
-
Gagnasafnið Orlando: Women´s writing
Í marsmánuði er opinn aðgangur að gagnasafninu Orlando: Women’s Writing in the British Isles from the Beginnings to the Present’ Þar er að finna fjölbreyttan fróðleik um breska kvenrithöfund, æviágrip, ritaskrár og ýmislegt bókmenntatengt efni. Smellið á Orlando og Skráið ykkur inn með: Username: womenshistory2013 Password: orlando
-
Biblía Elku kemur í leitirnar
Miðvikudaginn 20. febrúar afhenti Björn Þ. Axelsson Biblíu sem var eitt sinn í eigu Elku Björnsdóttur, verkakonu í Reykjavík, en dagbækur hennar eru varðveittar í handritasafni og voru nýlega gefnar út í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Fyrsta blaðsíða Biblíunnar er óheil en Elka hefur gert við hana og bætt inn texta þar sem vantaði. Víða…
-
Einkaskjalasöfn gerð aðgengileg
Þann 24. janúar var haldið upp á að formlega er lokið samstarfsverkefni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Alþýðuhúss Reykjavíkur ehf. og Styrktarsjóðs Magnúsar Bjarnasonar, um flokkun og skráningu einkaskjalasafna fólks sem tengdist Alþýðuflokknum og jafnaðarstefnunni og varðveitt eru í handritasafni. Það fólk sem um ræðir er: Barði Guðmundsson, Emil Jónsson, Hannibal Valdimarsson, Hallbjörn Halldórsson, Kristín Guðmundardóttir,…
-
Verðlaun fyrir skrif um jarðhita
Í sumar kom út hjá forlaginu Elsevier í Oxford átta binda fræðsluverk, Comprehensive Renewable Energy, um endurnýjanlega orku. Verkið spannar alla endurnýjanlega orku og er heilt bindi í verkinu helgað jarðhita undir ritstjórn Þorsteins I. Sigfússonar prófessors og forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Á fundi í Washington í vikunni tilkynnti Samband bandarískra útgefenda að verkið hefði hlotið…
-
Fjallkonan og Reykvíska eldhúsið
Sýning um matar- og veitingahúsamenningu í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar verður opnuð í Þjóðarbókhlöðu á safnanótt, kl. 20 þann 8. febrúar 2013. Samstarfsaðilar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um sýninguna eru Vetrarhátíð í Reykjavík, félagið Matur – saga – menning, Reynir Ingibjartsson, Kvennasögusafnið og Miðstöð munnlegrar sögu. Boðið verður upp á sagógrjónagraut með rúsínum…