-

Frásagnir minninganna með Þórarni Eldjárn
Listir og menning sem meðferð við Alzheimers sjúkdómnum Fimmtudaginn 19. september 2013, kl 15-17 verður kynnt bókin Frásagnir minninganna með Þórarni Eldjárn og opnuð samnefnd sýning sem gefur yfirlit yfir afrakstur fyrstu smiðjunnar á Íslandi innan verkefnisins Listir og menning sem meðferð við Alzheimers sjúkdómnum. Sú rannsókn beinist að meðferð við Alzheimers sjúkdómnum án lyfja…
-
„Hvers vegna þurfum við að minnast fórnarlambanna?“
fyrirlestur dr. Andreja Valic Zver í fundarsal Þjóðarbókhlöðu mánudaginn 16. september Allir eru velkomnir á opinn fyrirlestur dr. Andreja Valic Zver í fundarsal Þjóðarbókhlöðu mánudaginn 16. september kl. 17–18. Fyrirlesturinn ber heitið „Hvers vegna þurfum við að minnast fórnarlambanna? “ Dr. Andreja Valic Zver er forstöðumaður Rannsóknarseturs um sögu og þjóðarsátt í Slóveníu og fjallar…
-
Bókasafnsdagurinn 9. september
Bókasafnsdagurinn verður haldinn í þriðja sinn á Íslandi mánudaginn 9. september. Að þessu sinni er dagurinn tengdur degi læsis sem er 8. september ár hvert. Yfirskrift dagsins er ,,Lestur er bestur – spjaldanna á milli“. Yfir 100 bókasöfn taka þátt og verða mörg þeirra með dagskrá eða tilbreytingu í starfsemi sinni. Vefurinn www.bokasafn.is með upplýsingum…
-
Heimsókn ráðherra
Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, heimsótti safnið þriðjudaginn 27. ágúst ásamt Sigríði Hallgrímsdóttur aðstoðarmanni sínum. Með í för voru Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri, Ingibjörg Ólafsdóttir ritari ráðuneytisstjóra, Eiríkur Þorláksson sérfræðingur og Leifur Eysteinsson gæðastjóri. Ráðherra skoðaði safnið og kynnti sér sýningar, en hópurinn kom m.a. við á 4. hæð, í tón- og myndsafni, upplýsingaþjónustu, á skráningargangi,…
-

Heimskommúnisminn og Ísland
Sýning og fyrirlestrar í Þjóðarbókhlöðu föstudaginn 23. ágúst 16–18 Föstudaginn 23. ágúst 2013 kl. 16-18, verður opnuð í Þjóðarbókhlöðu sýningin Heimskommúnisminn og Ísland sem fjallar um hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu og starfsemi hennar á Íslandi. Evrópuþingið hefur lýst 23. ágúst Evrópudag minningarinnar um fórnarlömb stalínismans og nasismans en þennan dag árið 1939 gerðu Hitler og Stalín…
-
Ársskýrsla 2012
Ársskýrsla safnsins 2012 hefur verið sett á vefinn ásamt útdrætti á ensku. Skýrslan er með svipuðu sniði og undanfarið en alltaf eru smá breytingar milli ára. Myndefni tengist sýningum safnsins á árinu.
-
Þjónustusamningur vegna Sarps
Landskerfi bókasafna hf. (LB) og Rekstrarfélag Sarps (RS) hafa gengið frá þjónustusamningi sem gildir til tveggja ára frá og með 1. september næstkomandi. Á grunni samstarfsins tekur LB að sér umsjón með daglegum rekstri RS og fagstjóri Sarps tekur til starfa með aðstöðu í húsakynnum LB. Markmið samstarfsins er að ná fram: auknu gæðaeftirliti með…
-
Bókagjöf frá Filippseyjum
Sendiherra Filippseyja á Norðurlöndum Bayani S. Mercado kom í heimsókn 21. júní, ásamt Maríu Priscillu Zanoria ræðismanni Filippseyja á Íslandi. Þau færðu safninu tvær bækur sem innihalda afrit af handritum tveggja skáldsagna José Rizal, sem var helsta frelsishetja Filippseyja. Hann var læknir og ákvað að skrifa skáldsögur til að vekja athygli á illvirkjum spænskra nýlenduherra.…
-
130 ár frá fæðingu Páls Eggerts Ólasonar
Í gær voru liðin hundrað og þrjátíu ár frá fæðingu Páls Eggerts Ólasonar en hann mótar sýn okkar á fortíðina enn þann dag í dag; Páll Eggert tók m.a. saman Íslenskar æviskrár og Handritaskrá Landsbókasafns Íslands auk þess sem hann ritaði ævisögu Jóns Sigurðssonar í fimm bindum. Bragi Þorgrímur Ólafsson fagstjóri handritasafns Landsbókasafns Íslands segir…
-
10.000. skjalið
Í morgun var 10.000. skjalið skráð í safn Háskóla Íslands í Skemmunni. Lokaritgerðir nemenda við háskólann hafa verið skráð í Skemmuna frá árinu 2008. Nú eiga sjö háskólar aðild að Skemmunni sem er annar mest notaði vefurinn á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á eftir Tímarit.is.
-
Europeana Newspapers
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn gerðist nýlega aðili að Evrópuverkefni sem ber yfirskriftina “Europeana – Newspapers”. Tilgangur verkefnisins er að safna saman upplýsingunum um stafræna endurgerð dagblaða og tímarita og miðlun þeirra, nýta nýjustu tölvutækni til að bæta leitir í ljóslesnum texta, nota nýjustu aðferðir við að efnisgreina innihald og nota nýjustu tækni við birtingu. Það…
-
Í tilefni sjómannadagsins
Bjarni M. Gíslason (1908–1980) fæddist að Stekkjarbakka í Tálknafirði þar sem hann var til sjós frá fermingu til rúmlega tvítugs. Bjarni var 25 ára þegar ljóð hans „Sigling“ var sungið inn á plötu, en sú plata er kjörgripur júnímánaðar í Landsbókasafninu. Sama ár, 1933, kom út fyrsta ljóðabók hans, Jeg ýti úr vör: Því skyldi…