-

Afhending gagna til Tónlistarsafns – Göran Bergendal
Sænski tónlistarfræðingurinn Göran Bergendal, sem vann lengi fyrir Sveriges Radio, afhenti 2. júlí Tónlistarsafni gögn sín um íslenska tónlistarmenn. Safn hans hefur að geyma handrit að greinum um íslenska tónlist og upptökur af viðtölum. Göran gaf út bókina New music in Iceland 1991 í samstarfi við þáverandi Tónverkamiðstöð og er hún aðgengileg á vefnum á…
-
Gyrðir Elíasson hlýtur Maístjörnuna 2023
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 15. maí. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2023 hlýtur Gyrðir Elíasson fyrir ljóðabókatvennuna Dulstirni & Meðan glerið sefur Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Ljóðin í ljóðatvennu Gyrðis Elíassonar eru hljóðlát, hlédræg, ásækin og jafn áhrifamikil og skáldið sem…
-

Upplestur úr ljóðabókum sem tilnefndar eru til Maístjörnunnar
Lesið verður úr ljóðabókum sem tilnefndar hafa verið til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í hádeginu, kl. 12-13, miðvikudaginn 8. maí.Tilnefndar bækur eru:Áður en ég breytist eftir Elías KnörrDulstirni/Meðan glerið sefur eftir Gyrði ElíassonVandamál vina minna eftir Hörpu Rún KristjánsdótturFlagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Unu Hlíf BárudótturTil hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu…
-

Synir Lothars Grund heimsóttu safnið
Alfred og Atli, synir Lothars Grund og Önnu Halldórsdóttur, heimsóttu safnið og sýninguna um föður sinn, Lothar Grund, í fylgd frænda síns, Brynjars Bragasonar, Ingibjargar Steinunnar Sverrisdóttur landsbókavarðar, Sigríðar Jónsdóttur sérfræðings á Leikminjasafni og Ólafs J. Engilbertssonar sýningahönnuðar.
-

Eramus+ heimsókn
Í vikunni hefur verið árleg Erasmus+ heimsókn á safninu. Gestirnir koma víða að en þetta er um 20 manna hópur starfsfólks bókasafna í Evrópu og koma frá Möltu, Grikklandi, Svíþjóð, Póllandi og Litháen. Vel var tekið á móti hópnum og öll svið safnsins lögðu sitt af mörkum með kynningum og fræðslu.
-

Tilnefningar til Maístjörnunnar
Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar 2024 voru kynntar í Gunnarshúsi miðvikudaginn 17. apríl 2024. Allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2023, alls 83, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns voru gjaldgengar. Tilnefndar bækur eru: Áður en ég breytist eftir Elías Knörr Dulstirni/Meðan glerið sefur eftir Gyrði Elíasson Vandamál vina minna eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur Flagsól eftir Melkorku Ólafsdóttur og Unu…
-

Gulur dagur hjá starfsfólki safnsins
Í dag er gulur dagur með grænu ívafi hjá starfsfólki safnsins. Um leið og starfsfólk óskar landsmönnum gleðilegra páska vekjum við athygli á að afgreiðslutíminn um páskana verður eftirfarandi: Hefbundinn afgreiðslutími verður 25.-27. mars eða 8:15-22:00. Lokað 28. mars – 1. apríl. Opnum aftur þriðjudaginn 2. apríl kl. 8:15.
-

Hvað eru skylduskil?
Á Íslandi eru í gildi lög um skylduskil til safna (nr. 20/2002). Lögin kveða á um að skila skuli til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns eintökum af öllu efni sem gefið er út á Íslandi eða ætlað til dreifingar á íslenskum markaði utan kvikmynda og útvarpsefnis en því skal skila til Kvikmyndasafns Íslands. Það þýðir…
-

Starfsmannafélagið Sámur í Eddu í heimsókn
Starfsmannafélagið Sámur í Eddu kom í heimsókn til starfsmannafélagsins Hlöðvers á miðvikudaginn og fékk leiðsagnir um Þjóðarbókhlöðuna.
-

Skráning og lýsing handrita
Safnið hlaut nýverið styrk úr Innviðasjóði Rannís til að vinna að skráningu og lýsingu handrita á handrit.is. Matthías Aron Ólafsson og Kjartan Atli Ísleifsson hafa starfað við verkefnið frá því í haust. Þeir sögðu frá verkefninu og áhugaverðum handritum sem hefur rekið á fjörur þeirra í erindum í fyrirlestrasal safnsins.
-

Helmingur þjóðarinnar notar bókasöfn
Skv. niðurstöðum nýrrar lestrarkönnunar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, sem voru birtar í dag á degi íslenskrar tungu, kemur fram að s.l. ár hafi um helmingur þjóðarinnar farið á bókasöfn eða nýtt sér rafræna þjónustu þeirra. Konur nota sér þjónustu bókasafna oftar en karlar. Mikill meirihluti landsmanna telur mikilvægt að íslenskar bókmenntir hafi aðgang að opinberum stuðningi.…
-

Opnun sýningar um Lothar Grund
Fimmtudaginn 2. nóvember var opnuð í safninu sýning um leikmynda- og búningahöfundinn Lothar Grund. Í tilefni dagsins var boðið upp á stutta dagskrá í fyrirlestrarsal safnsins. Landsbókavörður bauð gesti velkomna og sérfræðingur Leikminjasafns, Sigríður Jónsdóttir, hélt stutta kynningu um tildrög og hugmyndafræði sýningarinnar. Að lokum sagði Brynjar Bragason nokkur orð fyrir hönd fjölskyldu Lothars og…