-

Kvennaverkfall 24. október
Á safninu starfa 2/3 konur og kvár, því verður þjónusta safnsins mjög skert á kvennaverkfallsdaginn þriðjudaginn 24. október 2023. Safnið verður opið 8:15-17:00. Í þjónustuborði safnsins á 2. hæð verður einungis hægt að skila bókum í kassa og taka bækur að láni með því að nota sjálfsafgreiðsluvélina sem staðsett er fyrir framan þjónustuborðið. Til að…
-

Erlend handrit úr bókasafni Willards Fiske
Einn dyggasti stuðningsmaður Landsbókasafns var bandaríski auðkýfingurinn og bókavörðurinn Willard Fiske (1831–1904). Í lifanda lífi gaf hann safninu yfir 1.500 bækur en ánafnaði safninu síðan stóran hluta bóka sinna í erfðaskrá og taldi dánargjöf hans yfir 2.500 bindi, bækur sem margar hverjar eru dýrmætar og fáséðar. Barst gjöfin til safnsins fljótlega eftir andlát hans en…
-

Vika opins aðgangs 2023
Dagana 23.-29. október nk. verður haldin alþjóðleg vika opins aðgangs 2023. Dagskráin í ár er sérstaklega fjölbreytt, þökk sé Bókasafnasjóði sem styrkti vikuna veglega. Skipulagningu hefur annast samstarfshópur háskólabókasafna um opinn aðgang/opin vísindi. Dagskrána má sjá hér og þar er einnig hægt að skrá sig á hvern viðburð fyrir sig: https://opinnadgangur.is/vika-opins-adgangs-2023 Vefkynningar eru fjórar og fara…
-

Gervigreind nýtt við lestur handrita og skjala
Á síðustu misserum hafa komið fram stórstígar framfarir á sviði gervigreindar. Ein birtingarmynd þessarar þróunar er stafrænn lestur handrita og skjala. Þar má nefna austurríska forritið Transkribus sem rekja má til Evrópuverkefnanna TranScriptorium frá árunum 2013-2015 og READ frá 2016-2019. Forritið getur lesið handskrifaðan texta og skilað af sér uppskrift hans á stafrænu formi. Það…
-

Starfsfólk Hljóðbókasafnsins í heimsókn
Starfsfólk Hljóðbókasafnsins heimsótti safnið þann 13. september. Þau skoðuðu safnið, en aðallega tón- og myndsafn og frumupptökur íslenskrar tónlistar. Örn Hrafnkelsson, Bryndís Vilbergsdóttir og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður tóku á móti þeim.
-

Aukið aðgengi að eldri upptökum og handskrifuðum textum
Miðvikudaginn 13. september voru tvö verkefni kynnt í fyrirlestrasal safnsins á vegum Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista. Þeir Trausti Dagsson frá Árnastofnun og Luke O’Brien kynntu Talgreiningu á Ísmús og uppbyggingu textasafns fyrir eldra talmál sem var unnið í samstarfi við Árnastofnun og tæknifyrirtækið Tíró og snerist um gerð talgreinis sem þjálfaður var með hljóðupptökum úr…
-

Örsýning í minningu Guðbergs Bergssonar
Í minningu Guðbergs Bergssonar (1932-2023) hefur verið stillt upp í safninu nokkrum bóka hans og einu handriti. Fyrsta bók Guðbergs var skáldsagan Músin sem læðist sem kom út árið 1961. Tómas Jónsson metsölubók, sem kom út fimm árum síðar, vakti talsverða athygli og er oft talin fyrsta móderníska skáldsagan á íslensku. Guðbergur hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna…
-

Róbert Arnfinnsson 100 ára – minningarsýning
Kjörgripur ágústmánaðar á Landsbókasafni er fyrsta albúmið sem Róbert Arnfinnsson leikari setti saman um sitt stórmerkilega ævistarf og er það til sýnis á Íslandssafni. Í tilefni af því að Róbert hefði orðið 100 ára þann 16. ágúst fékk Leikminjasafnið afskaplega góða heimsókn frá nánustu fjölskyldu Róberts. Í heimsókn komu Stella Guðmundsdóttir, ekkja Róberts, Alma Ch.…
-

Heimsókn frá Möltu
Sendiherra Möltu á Íslandi, Jesmond Cutajar, heimsótti safnið 22. júní s.l. Hann var að afla upplýsinga um bókasöfn á Íslandi, bókaútgáfu/bóksölu, þýðingarmál og ekki síst um starfsemi Lbs-Hbs. Hann óskaði eftir upplýsingum og samstarfi auk þess að skoða húsakynni safnsins. Hann færði safninu tvær bækur eftir Maroma Camilleri, um búninga og tísku fyrri alda á…
-

Styrkir úr Bókasafnasjóði
Menningar- og viðskiptaráðuneytið úthlutaði úr Bókasafnasjóði í dag, 14. júní. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tengist tveimur verkefnum sem fengu styrk, Átaksverkefni um skráningu nafnmynda í Gegni, sem hlaut 7 m.kr. og Samstarf um Alþjóðlega viku opins aðgang, sem hlaut 2 m.kr. Á myndinni eru Ragna Steinsdóttir sviðsstjóri aðfanga og skráningar og Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður.
-

Einkaskjalasafn afhent
Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir, fv. landsbókavörður afhenti einkaskjalasafn sitt til handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns þann 26. maí síðastliðinn. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður (til hægri) tók á móti safninu, en í handritasafni eru fyrir einkaskjalasöfn landsbókavarðanna Guðmundar Finnbogasonar, Finnboga Guðmundssonar og Finns Sigmundssonar.
-

Bergþóra Snæbjörnsdóttir hlýtur Maístjörnuna 2022
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 24. maí. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2022 hlýtur Bergþóra Snæbjörnsdóttir fyrir bókina Allt sem rennur. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Ljóðin í Allt sem rennur virðast jafnvel hrjúf brot úr veruleikanum, en mynda ægifagra heild sem knýja…