-

50 ára afmæli Kvennasögusafnsins og kvennaársins
Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 af þremur konum, Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Það var stofnað á heimili Önnu, á fjórðu hæð í blokk á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík og starfaði hún þar sem forstöðukona Kvennasögusafns í 20 ár. Því eru 50 ár frá stofnun safnsins um þessar mundir. Allt árið…
-

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Tónlistarmiðstöð hafa undirritað samstarfssamning um varðveislu íslenskra tónverka
Samstarfssamningur Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Tónlistarmiðstöðvar markar mikilvægan áfanga í varðveislu íslenskrar tónlistar. Með undirritun þessa samnings eru nú formfest þau skref sem áður hafa verið tekin í átt að því að tryggja langtímavarðveislu frumgagna Tónlistarmiðstöðvar, en Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur varðveitt þau síðan 2009. Markmið samstarfssamningsins er þrískipt: Koma skal í réttan…
-

Tímanna safn – útgáfuhóf á 30 ára afmæli Þjóðarbókhlöðu
Haldið var upp á 30 ára afmæli Þjóðarbókhlöðu þann 4. desember og var um leið fagnað útgáfu kjörgripabókar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Tímanna safn. Halldóra Kristinsdóttir og Hildur Ploder Vigfúsdóttir ritstjórar bókarinnar kynntu hana og höfundar lásu upp. Með bókinni, sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út í samstarfi við safnið, er ætlunin að varpa ljósi á…
-

Prentsmiðjuhandrit Jóns Árnasonar komið heim frá Bæjaralandi
Þann 14. nóvember afhenti sendiherra Þýskalands menningar- og viðskiptaráðherra prentsmiðjuhandrit Jóns Árnasonar að Íslenzkum þjóðsögum og æfintýrum til varðveislu í Landsbókasafni við hátíðlega viðhöfn. Handritið var lengi talið glatað en kom í leitirnar í Bayerische Staatsbibliothek í München árið 1971, þar sem það hefur verið varðveitt síðan. Ávörp fluttu Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra,…
-

Allt sem þú þarft að vita um heimildaleit – Taktu námskeið í upplýsingalæsi!
Nýverið var Kennsluvefur í upplýsingalæsi settur í loftið. Vefurinn er afrakstur samstarfshóps háskólabókasafna um upplýsingalæsiskennslu og hlaut verkefnið styrk frá bókasafnasjóði. Upplýsingalæsi er grundvallarhæfni sem allir háskólanemar þurfa að búa yfir, ekki bara til að takast á við námskröfur heldur líka til að nýta upplýsingar á ábyrgan og gagnrýninn hátt í síbreytilegu upplýsingasamfélagi. Fræðsla um…
-

Á ferðinni – Ísland og heimur á hreyfingu
Haldin var málstofa um hreyfanleika fólks í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu þriðjudaginn 22. október. Viðburðurinn var haldinn í tengslum við sýninguna Andlit til sýnis, en sýningahöfundar eru Kristín Loftsdóttir og Anna Lísa Rúnarsdóttir sem báðar starfa við Háskóla Íslands. Erindi héldu Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við HÍ, Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við HÍ, Katla Kjartansdóttir, doktorsnemi…
-

Opið málþing um miðlun sögunnar
Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands býður til tveggja daga opins málþings um miðlun sögunnar sem var opnað í safninu fimmtudaginn 26. September og heldur áfram á Háskólatorgi og í Þjóðskjalasafni Íslands. Ráðstefnan er haldin með styrk rektors HÍ til stuðnings samfélagslegri virkni. Markmið þingsins er að hrinda af stað samtali milli akademískra sagnfræðinga og samfélagsins og spyrja…
-

Magnús Pálsson afhendir leiklistargögn
Myndlistamaðurinn Magnús Pálsson heimsótti Landsbókasafnið á dögunum ásamt eiginkonu sinni Frances Cowan og leikmynda- og búningahönnuðinum Þórunni Þorgrímsdóttur. Ástæða heimsóknarinnar var afhending Magnúsar á gögnum sem tengjast störfum hans í leikhúsinu. Þar má nefna búningateikningar fyrir Antígónu, sem var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu 1955 í leikstjórn Baldvins Halldórssonar, leikhandrit, aðgöngumiðar á leiksýningar Grímu og gífurlegt magn…
-

Bókasafn Menntavísindasviðs flutt í Þjóðarbókhlöðuna
Bókasafn Menntavísindasviðs í Stakkahlíð hefur verið sameinað Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og er það fyrsti áfanginn í flutningi Menntavísindasviðs á Háskólasvæðið. Stærstur hluti safnsins er nú kominn á sinn stað, innan um annan safnkost í Bókhlöðunni. Námsgagnasafn, ásamt úrvali barnabóka, bíður þó enn framtíðarhúsnæðis í Sögu þar sem útibú verður sett upp þegar Menntavísindasvið flytur…
-

Vefurinn einkaskjöl.is hefur verið lagður niður tímabundið
Vefurinn einkaskjöl.is hefur verið lagður niður tímabundið. Fyrirspurnir um einkaskjalasöfn í vörslu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns skal senda á eftirfarandi netföng eftir uppruna safnanna: Handritasafn: handritasafn (hjá) landsbokasafn.is Kvennasögusafn: kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is Leikminjasafn: leikminjasafn (hjá) landsbokasafn.is Miðstöð munnlegrar sögu: munnlegsaga (hjá) landsbokasafn.is Tónlistarsafn: tonlistarsafn (hjá) landsbokasafn.is
-

Vefnum doktor.landsbokasafn.is (Skrá um doktorsritgerðir Íslendinga) hefur verið lokað
Vefnum doktor.landsbokasafn.is (Skrá um doktorsritgerðir Íslendinga) hefur verið lokað. Allir titlar sem áður voru eingöngu birtir á vefnum doktor.landsbokasafn.is hafa nú verið skráðir í bókasafnskerfið Gegni og má finna með leit í leitargátt bókasafna, Leitir.is. Nýjar doktorsritgerðir sem koma út á prenti eru skráðar í bókasafnskerfið Gegni og rafrænar doktorsritgerðir eru skráðar og varðveittar í…
-

Alþjóðlegur sumarskóli í handritafræðum
Í síðustu viku lauk tveggja vikna alþjóðlegum sumarskóla í handritafræðum. Skólinn er samstarfsverkefni Árnastofnunar, Háskóla Íslands, Landsbókasafns Íslands–Háskólabókasafns og Kaupmannahafnarháskóla (Árnasafns). Þetta var í nítjánda sinn sem skólinn var haldinn. Nú í ár fór kennslan fram í Eddu, Veröld–Húsi Vigdísar og í Þjóðarbókhlöðunni, en hann er haldinn til skiptis í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Fjallað var…