-

Íslenskar myndasögur
Í samhengi við sýningu á verkum Gísla J. Ástþórssonar hefur Landsbókasafnið efnt til samstarfs við Íslenska myndasögusamfélagið um litla yfirlitssýningu á íslenskum myndasögum fyrr og nú í Þjóðarbókhlöðunni og var hún opnuð fimmtudaginn 11. maí kl. 16. Við opnun sagði Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður nokkur orð og Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur flutti fróðlegt erindi sem…
-

Upplestur úr bókum sem tilnefndar hafa verið til Maístjörnunnar
Í hádeginu fimmtudaginn 4. maí var lesið úr bókum sem tilnefndar hafa verið til Maístjörnunnar í fyrirlestrasal safnsins að viðstöddu fjölmenni. Emma Björk Hjálmarsdóttir var kynnir.Ugla Egilsdóttir las úr Skurn eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur. Útgefandi: Una útgáfuhús.Bergþóra Snæbjörnsdóttir las úr bók sinni Allt sem rennur. Útgefandi: Benedikt.Ólafur Egilsson las úr bókinni Sjófuglinn eftir Egil Ólafsson.…
-

Erasmus+ heimsókn
Í vikunni var starfsfólk háskólabókasafna frá Vín í Austurríki, Varsjá og Kraká í Póllandi, Ostrava í Tékklandi, Cagliari á Ítaliu og Kýpur, í heimsókn á safninu. Heimsóknin er á vegum Erasmus+ en Erasmus+ er styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál 2021-2027. Gestirnir hittu starfsfólk frá öllum sviðum safnsins, sem kynntu fyrir þeim hin fjölbreyttu…
-

Gísli J. Ástþórsson – afhending gagna
Í tilefni af aldarminningu Gísla J. Ástþórssonar afhenti fjölskylda hans safninu fjölbreytt gögn úr hans fórum; handrit, frumteikningar, útgáfur og fleira og opnuð var sýning í safninu á fæðingardegi hans, 5. apríl. Á myndinni eru, auk Ingibjargar Steinunnar Sverrisdóttur landsbókavarðar, Hrafnkell Gíslason, Kristín Erla Boland, ekkja Hólmfríðar Gísladóttur og Ástþór Gíslason.
-

Upplýsinga- og miðlalæsisvika
Upplýsinga- og miðlalæsisvika verður haldin í fyrsta skipti á Íslandi 13.-17. febrúar 2023. Að vikunni stendur Tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi (TUMI) með styrk frá Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og Sóley, styrktarsjóði á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúi Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns í tengslanetinu er Hilma Gunnarsdóttir sérfræðingur. Í vikunni verður nýtt fræðsluefni í…
-

Málþing um Leiklistarskóla SÁL
Þann 2. febrúar fór fram málþing í fyrirlestrasal Landsbókasafns um Leiklistarskóla SÁL (Samtaka áhugafólks um leiklistarnám). Málþingið var haldið samhliða sýningu sem stendur yfir í Þjóðarbókhlöðu á myndum og gögnum sem nemendur og kennarar skólans gáfu Leikminjasafni Íslands til varðveislu í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá stofnun Leiklistarskóla SÁL sem var…
-

Gögn leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur afhent
Þann 11. janúar 2023 fékk Leikminjasafnið merkilega gjöf frá fyrrum nemendum og kennurum leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur. Þessi góði hópur ánafnaði Leikminjasafninu hin ýmsu gögn sem tengjast starfsemi skólans. Athöfnin fór fram í fyrirlestrarsal Landsbókasafns á stofndegi Leikfélags Reykjavíkur sem fagnar 126 ára afmæli sínu um þessar mundir. Leiklistarskóli Leikfélags Reykjavíkur var starfræktur í um áratug,…
-

Áritaðar bækur frá Halldóri Laxness til Nikólínu Árnadóttur
Í dag afhentu Sverrir Guðmundsson og Þórdís Ingvarsdóttir Landsbókasafninu þrjár bækur eftir Halldór Laxness sem höfundurinn áritaði til Nikólínu Árnadóttur fyrir tæplega 100 árum síðan. Í Grikklandsárinu, fjórðu æskuminningarbók Halldórs, sem út var gefin 1980, kemur fram að Nikólína átti stóran þátt í tilurð bókanna Þú vínviður hreini og Fuglinn í fjörunni sem seinna fengu…
-

Leiðsögn um Banks-sýninguna þriðjudaginn 8. nóvember
Í tengslum við sýninguna um Íslandsleiðangur Sir Joseph Banks 1772 í Þjóðarbókhlöðu mun Anna Agnarsdóttir prófessor emeritus segja frá leiðangrinum í máli og myndum og veita leiðsögn um sýninguna þriðjudaginn 8. nóvember kl. 16:30. Verið öll velkomin!
-

Vefur um Rauðsokkahreyfinguna
Síðla árs 2018 komu fulltrúar stofnenda Rauðsokkahreyfingarinnar saman og ræddu möguleika á að opna sérstakan skjala- og upplýsingavef í samstarfi við Kvennasögusafn og Landsbókasafn. Á fundi þeirra með landsbókaverði, sviðstjóra varðveislu og fagstjóra Kvennasögusafns þann 19. nóvember sama ár var tillagan samþykkt og samstarfið fór af stað. Vefurinn var opnaður formlega þan 24. október 2022.…
-

Þekkingarveita í allra þágu
Nýrri stefnu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns fyrir árabilið 2023–2027 var nú ýtt úr vör eftir nokkurn undirbúningstíma 14. október 2022. Stefnan byggir á þeim lagaramma sem safnið starfar eftir, eldri stefnum og þeim málefnasviðum sem lögbundin verkefni safnsins taka til. Stefnumótunarhópur innan safnsins vann að greiningu á starfseminni, tækifærum til breytinga og til að gera…
-

Vinnustofa á vegum Turnitin
Þann 5. október sl. héldu þeir Dennis Van Bart og Jason Gibson, sérfræðingar frá Turnitin, fræðsludagskrá fyrir umsjónarmenn Turnitin í íslenskum skólastofnunum. Um 30 manns af öllu landinu sóttu dagskrána, ýmist í Setbergi, húsi kennslunnar í HÍ, eða í gegnum fjarfundabúnað. Van Bart og Gibson fóru í gegnum helstu virkniþætti Turnitin, kynntu væntanlegar nýjungar og…