-

Endurminningar Guðrúnar Borgfjörð afhentar handritasafni
Nýlega gaf bókaforlagið Sæmundur út endurminningar Guðrúnar Borgfjörð (1856-1930). Guðrún var dóttir hjónanna Jóns Borgfirðings fræðimanns, lögregluþjóns og handritasafnara og Önnu Guðrúnar Eiríksdóttur húsfreyju. Hún hélt lengst af heimili fyrir bróður sinn, Klemens, sýslumann og landritara. Á sjötugsaldri hóf Guðrún að rita endurminningar sínar þar sem hún segir frá lífinu í Reykjavík á seinni hluta…
-

Leiðsögn um Banks-sýninguna þriðjudaginn 27. september
Í tengslum við sýninguna um Íslandsleiðangur Sir Joseph Banks 1772 munu höfundar sýningarinnar, Anna Agnarsdóttir og Sumarliði Ísleifsson, segja frá leiðangrinum í máli og myndum og veita leiðsögn um sýninguna þriðjudaginn 27. september kl. 16:30. Öll velkomin!
-

Fornkortasafn frá Landmælingum Íslands
Á Degi íslenskrar náttúru, 16. september 2022, afhentu Landmælingar Íslands Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni fornkortasafn sitt til eignar og varðveislu. Gunnar Haukur Kristinsson forstjóri Landmælinga undirritaði gjafabréf við þetta tilefni ásamt landsbókaverði. Uppistöðu safnsins, 49 kort, keyptu Landmælingar Íslands árið 1993 af kortasafnaranum Mark Edwin Cohagen sem hafði lagt mikla alúð og vinnu bæði við söfnun…
-

Styrkur úr Bókasafnasjóði
Vinnuhópur íslenskra háskólabókasafna um upplýsingalæsi hlaut á dögunum 4.500.000 kr styrk úr Bókasafnasjóði til að hanna kennsluvef í upplýsingalæsi. Markmið verkefnisins er að efla starfsemi háskólabókasafna og samhæfa upplýsingalæsiskennslu á háskólastigi í samræmi við viðmið um æðri menntun og prófgráður á Íslandi (sjá Lög um háskóla nr 63/2006). Kennsluvefnum er ætlað að þjálfa nemendur í…
-

John Swedenmark þýðandi í heimsókn
John Swedenmark þýðandi og rithöfundur heimsótti safnið á dögunum. Hann er búsettur í Stokkhólmi og hefur þýtt skáldsögur eftir fjölmarga íslenska höfunda á sænsku, þar á meðal bækur eftir Einar Kárason, Gyrðir Elíasson, Friðrik Erlingsson, Hallgrím Helgason, Jón Kalman Stefánsson, Steinunni Sigurðardóttur, Kristínu Steinsdóttur, Sjón, Eirík Örn Norðdahl, Þórarin Eldjárn og marga fleiri. Hann hefur…
-

Málþing um Joseph Banks, Daniel Solander og Íslandsleiðangurinn 1772
Fullt var út úr dyrum á málþingi sem haldið Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands hélt í Lóni þann 29. ágúst í samvinnu við sænska sendiráðið á Íslandi í tilefni að því að 250 ár voru liðin síðan fyrsti breski vísindaleiðangurinn sótti Ísland heim árið 1772. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði málþingið og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands…
-

Bókagjöf frá Lettlandi
Sendiherra Lettlands í Noregi og á Íslandi, Martins Klive, heimsótti safnið og afhenti bókagjöf í samstarfi við Menningarmálaráðuneyti Lettlands til að minnast aldarafmælis viðurkenningar á lýðveldinu Lettlandi. Edda G. Björgvinsdóttir tók við gjöfinni í fjarveru landsbókavarðar. Um er að ræða bækur á ensku um Lettland, sögu landsins og menningu.
-

Rannsóknargáttin IRIS opnuð
Miðvikudaginn 15. júní var rannsóknasafnið IRIS formlega opnað í Þjóðarbókhlöðu. Ávörp fluttu Sara Stef. Hildardóttir, verkefnastjóri IRIS sem opnaði vefinn, Berglind Fanndal Káradóttir, verkefnastjóri hjá RANNÍS, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar. IRIS (The Icelandic Research Information System) er upplýsingakerfi sem byggir á hugbúnaðinum PURE frá Elsevier. Kerfið sýnir…
-

Heimsókn tveggja sendiherra
Þann 14. júní kom sendiherra Svíþjóðar, Pär Ahlberger ásamt sendherra Ástralíu, Kerin Ayyalaraju, í safnið og fengu leiðsögn um Banks-sýninguna.
-

Haukur Ingvarsson hlýtur Maístjörnuna 2021
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 18. maí. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2021 hlýtur Haukur Ingvarsson fyrir bókina Menn sem elska menn. Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: „Í Menn sem elska menn yrkir Haukur Ingvarsson um þunga kroppa og sviflétta anda, um þyngdarkraft…
-

Í minningu Guðrúnar Helgadóttur
Í minningu Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar hefur verið tekið saman örlítið úrval verka hennar á örsýningu í safninu. Guðrún var einn ástsælasti barnabókahöfundur landsins. Hún gaf út sína fyrstu barnabók árið 1974, bókina um Jón Odd og Jón Bjarna. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál svo sem sænsku, þýsku og japönsku. Ævintýri tvíburanna voru…
-

Savanna tríó afhendir gögn
Um þessar mundir eru liðin 60 ár síðan Troels Bendtsen, Björn Björnsson og Þórir Baldursson hófu feril sinn sem Savanna tríó. Þeir störfuðu aðeins í fimm ár en sungu sig inn í hjörtu þjóðarinnar í sjónvarpi, á mörgum hljómplötum og ótal samkomum, innanlands og utan. Í tilefni af þessum tímamótum afhentu þeir Tónlistarsafni Íslands í…