-

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Háskóli Íslands efla saman opin vísindi
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands undirrituðu á dögunum nýjan samstarfssamning milli Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Háskóla Íslands, en safnið er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands samkvæmt lögum nr. 142/2011. Endurskoðun samningsins var unnin á vegum samstarfsnefndar Lbs-Hbs og HÍ með aðkomu sérfræðinga beggja stofnana. Meðal áhersluatriða er…
-

Ný útgáfa vefsins Ísmús
Fimmtudaginn 17. mars var formlega opnuð í safninu ný útgáfa vefsins ismus.is. Ísmús − íslenskur músík- og menningararfur − er gagnagrunnur sem geymir og birtir á vefnum gögn er varða íslenska menningu fyrr og nú: hljóðrit, ljósmyndir, kvikmyndir, handrit, texta og þjóðsögur. Verkefnið er í umsjá Tónlistarsafns Íslands, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.…
-

Arfur aldanna I-II – Viðurkenning Hagþenkis 2021
Viðurkenning Hagþenkis var veitt við hátíðlega athöfn þann 2. mars í Þjóðarbókhlöðunni. Viðurkenninguna hlaut Aðalheiður Guðmundsdóttir fyrir ritin: Arfur aldanna I: Handan hindarfjalls, Arfur aldanna II: Norðvegur sem Háskólaútgáfan gaf út. Viðurkenninguna veitti formaður Hagþenkis, Ásdís Thoroddsen. Viðurkenningarráð, skipað fimm félagsmönnum af mismunandi fræðasviðum stóð að valinu en það skipuðu: Auðunn Arnórsson, Árni Einarsson, Halldóra Kristinsdóttir,…
-

Yfirlýsing um samstöðu með Úkraínu
The Nordic National Libraries want to express their solidarity with their friends and colleagues in the besieged Ukraine. Our hearts and minds are with you and the Ukrainian people. The importance of citizens access to free and undistorted information, especially in times of war and crises, cannot be exaggerated. Libraries provide the basis for public…
-

Úthlutun úr Bókasafnasjóði
Nýlega var í fyrsta sinn úthlutað styrkjum úr Bókasafnasjóði samkvæmt tillögu bókasafnaráðs með staðfestingu menningarmálaráðherrra. Sjóðnum bárust 18 umsóknir og voru 20 milljónir til úthlutunar, samtals var sótt um ríflega 33 milljónir. Ellefu verkefni hljóta styrki úr sjóðnum að þessu sinni. Sjá má lista yfir styrkþega á vef Rannís.
-

Spil Ástu Sigurðardóttur
Um þessar mundir sýnir Þjóðleikhúsið leikrit um listakonuna Ástu Sigurðardóttur (1930–1971). Einkaskjalasafn hennar er varðveitt í handritasafni, en það hefur m.a. að geyma teikningar hennar að mannspilum sem hún gerði á árunum 1960–1963 (Lbs 300 NF). Þessum teikningum bregður fyrir í leikritinu og eru nú til sýnis við lestrarsal Íslandssafns/handritasafns á 1. hæð Þjóðarbókhlöðu. Spilin…
-

Mislingar, sérkennilegt fólk og William Faulkner – Kynning á þremur nýjum ritum sem unnin eru úr safnkosti handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns
Þriðjudaginn 14. desember verða kynnt þrjú nýleg rit sem unnin eru að meira eða minna leyti úr safnkosti handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Marín Árnadóttir sagnfræðingur segir frá greinasafninu Þættir af sérkennilegu fólki sem er 28. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Þar er fjallað um fólk sem lifði á jaðri íslensks samfélags með ýmsum…
-

Gjöf frá Leiklistarskóla SÁL
Þann 29. nóvember afhentu einstaklingar sem stunduðu nám og kenndu við Leiklistarskóla SÁL skjalasafn stofnunarinnar til Leikminjasafns Íslands. Leiklistarskóli SÁL var stofnaður af ungu fólki árið 1972 með sem brann fyrir leikhúsi og leikhúsmenntun. Nokkru áður höfðu Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið lagt niður sína skóla til að þrýsta á ríkið um að fjármagna formlegt leiklistarnám á háskólastigi. Rekstur og skipulag SÁL var hugsjónastarf, drifið áfram af sköpunargáfu og löngun til þess að færa leiklistarnám til nútímans. Nemendur skólans…
-

200 ára afmæli Fjodors Dostojevskís og sýning um rússneska norðurskautssvæðið
Þriðjudaginn 26. október var í safninu málþing í tilefni af 200 ára afmæli rithöfundarins Fjodors Dostojevskís og formennsku Rússlands í Norðurskautsráðinu. Opnuð var ljósmyndasýningin „Rússneska norðurskautssvæðið“, fluttir fyrirlestrar og sýnd heimildamynd. Þessi viðburður var hluti af Dögum rússneskrar menningar á Íslandi sem voru með áherslu á menningu á norðurslóðum; landfræði, sögu, bókmenntir og menningu Rússlands,…
-

Vika opins aðgangs 2021
Alþjóðleg vika opins aðgangs verður dagana 25.-31. október 2021. Þemað í ár er „It Matters How We Open Knowledge: Building Structural Equity“ eða „Það skiptir máli hvernig við veitum aðgang að þekkingu. Byggjum upp sanngjarnt kerfi.“ Í tilefni þess munu háskólabókasöfn á Íslandi bjóða upp á fróðleg hlaðvörp þar sem m.a. er rætt við rannsakendur…
-

Bókverk afhent safninu
Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður kom færandi hendi í safnið og afhenti bókverk sem hann vann ásamt suður-kóreska skáldinu Ko Un. Bókverkið heitir Fascination og er gefið út af Gervais Jessaud í París í 12 eintökum. Myndverk Sigurður Árna eru gerð með vatnslit og er hvert eintak handunnið. Bókverkið er tölusett og áritað af listamönnum og…
-

Galdradómar, dagbækur og kveðskapur kvenna á nítjándu öld. Kynning á þremur nýjum ritum sem unnar eru úr safnkosti handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns
Þriðjudaginn 19. október verða kynnt þrjú nýleg rit sem unnin eru að meira eða minna leyti úr safnkosti handritasafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands mun segja frá tveggja binda verki sínu, Galdur og guðlast á 17. öld, sem hefur að geyma dóma eru lúta að galdramálum á Íslandi…